Friday, December 28, 2007

Óvæntar heimsóknir


Það er fátt sem fer meira í taugarnar á mér en óvæntar heimsóknir.

Af hverju fólki finnst þetta vera góð hugmynd er gjörsamlega beyond me. Flesta daga er ég búin að ákveða fyrirfram og líð áfram í alveg hreint ágætu flæði doing my stuff. Oft þegar ég er heima er ég að gera alveg fullt af hlutum og vil ekki vera trufluð við það. Hver dagur hefur sinn ramma. Mér finnst voða gott að kjafta í símann þegar ég er heima hjá mér en óvæntar heimsóknir vil ég alls ekki.

Ekki misskilja mig. Ég hef alls ekkert á móti heimsóknum. Mér finnst mjög skemmtilegt að fá heimsóknir og fara í heimsóknir. En heimsóknir er eitthvað sem á plana fyrirfram. Allaveganna deginum áður. Yes? Þá geta allir verið tilbúnir fyrir heimsóknina, búnir að taka til og svona og tilbúnir með kaffi og með því. Annað er bara rugl.

Úff, ég bara varð að koma þessu frá mér.

BTW, ég veit kynið á barninu.

Elsku pabbi minn vill samt ekki fá að vita kynið þannig að ég læt vera að setja þetta á internetið eins og ég var búin að segja stelpunum að ég ætlaði að gera. Talandi um það, takk fyrir gærkvöldið stelpur, þetta var frábært. Sjaldan sem ég vinn í Trivial... Þetta var einmitt alveg æðisleg heimsókn. ENDA VAR HÚN ÁKVEÐIN FYRIRFRAM.

Love

P.s. Er að fara á Jesus Christ Superstar á morgun og gæti óskað að ég ætti diskinn svo ég gæti hitað almennilega upp fyrir þennan stórviðburð.

P.p.s. Ég elska fátt annað í heiminum en frí. Sem er gott af því að ég er í fríi.

:)

Tuesday, December 25, 2007

Love this day


Elska jóladag.

Þetta er dagurinn sem fólk hefur flest vit á því að vera rólegt og að halda sig heima við. Ég fór í einkar friðsælan göngutúr áðan (áður en veðrið var vont). Það var varla bíll á ferli og mannfólkið hélt sig innan dyra. Fór og labbaði aðeins í Stigahlíðinni. Elska að fara þarna á rólegum dögum og dagdreyma um að eiga eitt af þessum einbýlishúsum.. Það er pottþétt markmiðið.

Já, eða einbýlishús í Vesturbænum, já eða Þingholtunum.. eða Fossvoginum..

Annars, er borgin farin að fara í taugarnar á mér. Hraðinn og umferðin finnst mér stundum verða mjög yfirþyrmandi og oft langar mig út í sveit í kyrrðina. En þá ætti ég kannski bara að fá mér sumarbústað í staðinn fyrir að flytja alfarið út í sveit.

Já, en þá þyrfti ég lottóvinning..

Æ, er farin að bulla.

Gleðileg jól:)

Friday, December 21, 2007

Wish granted

Ja hérna. Ég secretaði þetta ekki einu sinni að neinu ráði en óskin uppfylltist. Ég sit hérna EIN í vinnunni. Kom í ljós að allir starfsmennirnir voru voða spenntir að fara með börnin í bæjarferð og enginn langaði að vera einn eftir hérna. Nema mér:)

Venjulega hefði ég viljað fara með en ég vaknaði klukkan fimm í nótt til að pissa og gat ekki sofnað aftur. Svo er barnið byrjað að vera með derring í leginu á mér þannig að ég er frekar sjúskuð og tussuleg.

Núna er Tom kominn í vinnuna:) Jæja, best að fara að gera eitthvað..

Thursday, December 20, 2007

Bara einn dagur eftir...

Oh.. my.. God.

Það er bara einn dagur eftir í vinnunni og ég get ekki beðið eftir að hann sé búinn. Eftir daginn á morgun er ég komin í 10 daga frí!!! Me happy then.

Frí. Frí. Frí. Frí. Get ekki beðið eftir að komast í frí.

Er búin að gera allt jóladót. Bara eitthvað smotterí eftir. Eftir daginn á morgun bíður mín því bara afslöppun og frí. Það er allaveganna planið.

Erum að fara með gríslingana í vinnunni í bæjarferð á morgun. Ég bið almættið um rólegan og aflappaðan vinnudag.

Þó að það sé nú ansi langsótt...

Monday, December 17, 2007

Loftslagsbreytingar




Einhvern veginn hefur skapast sú skilyrðing í hausnum á mér að þegar veðrið er vont er það vegna mengunar af mannanna völdum og loftslagsbreytinga. Þegar ég tala um skilyrðingu er ég að meina orsakasamband. Orsök og afleiðing.

Daginn eftir að ég var 1 og 1/2 tíma að skreppa niðrá Grænan Kost frá Tónabæ og aftur heim vegna umferðarþunga (bíl við bíl allan tímann, mikil mengun og by the way flestir einir í bíl) kemur óveður dauðans. Ekki orsök og afleiðing? Þó hún sé óbein?

Um sama leyti er loftslagsráðstefna á Bali. Það er greinilegt að þjóðir heimsins verða að fara gera eitthvað í málunum. Bandaríkin eru þrándur í götu og neita að skrifa undir bindandi tölulegar viðmiðanir. Fellibylir hafa herjað á Bandaríkin sem aldrei fyrr. Ekki orsök og afleiðing?

Mér er alveg sama hvað Hannesar Hólmsteinar landsins segja. Við þurfum víst að aðlaga okkar lífshætti vegna loftslagsbreytinga og hætta að menga svona mikið. Hannes (jackass) Hólmsteinn var að segja í sjónvarpinu um daginn að þessar loftslagsbreytingar væru bara eðlilegar, það kæmu alltaf svona skellir af og til eins og sagan hefði nú kennt okkur.. Maðurinn hefur greinilega ekki haft vit á að hlusta á Al Gore. Hannes ætti frekar að einbeita sér að því að laga almenningssamgöngur í landinu svo að það beinlínis borgi sig að nota strætó frekar en einkabílinn. Það gerir það allaveganna ekki núna þegar ferð til og frá bænum kostar um 600 kall.

Og hana nú.

Friday, December 14, 2007

Ja hérna..


Það er naumast.

Fór út í morgun með svona óljósa hugmynd um að kannski væri nú dáldið vont veður. Var ekki fyrr komin út en bíllyklarnir hreinlega fuku út úr höndunum á mér. Út í veður og buskann. Gone with the wind. Aint no sign of them what so ever.

Eins og sönnum bíleiganda sæmir stóð ég úti í um 20 mín. í óveðrinu til að reyna að finna lyklana en nei, nei. Fann þá ekki. Eins gott að ég var með aukalykla í læstu skúffunni. Pheeww.

Skrifað seinna: Lyklarnir fundust síðar þennan dag. Kom í ljós að þeir höfðu nú bara fokið beint niður í pokann sem ég hélt á.. Tíhí.. var ansi nálægt því að skjótast niður í Toyota og redda nýjum masterslykli (sem hefði kostað mig 11.000 kall).

Tuesday, December 11, 2007

OMG!


Mikið ofboðslega get ég átt bágt stundum.

Blóðtökudagurinn mikli var í dag. Þessi blóðprufa kostaði mig:

1 andvökunótt, 1 geðsýkiskast, 1 og 1/2 klukkutíma grátkast og geðshræringu, 1 veikindadag og 1 deyfiplástur

Ég mætti á heilsugæsluna í morgun með fullan hagkaupspoka af dóti til að létta mér lífið á þessum tíma; bláan bangsa sem ég hélt utan um með vinstri hendinni meðan á ósköpunum stóð, augnmaska yfir augun svo ég myndi örugglega ekki sjá neitt og i-podinn minn með slökunartónlist. Ég kom líka með svala og smákökur.

Mjög heiftarlegt grátkast braust fram um leið og ég settist í blóðtökustólinn. Mikið ofboðslega er ég heppin með ljósmóður samt. Hún var með mér allan tímann og hélt í höndina á mér og aðstoðaði mig og faðmaði mig eftir á. Enda var ég búin að útskýra málið fyrir henni og hún vissi að ég myndi verða í ástandi.

OMG. Hvað ég er fegin að þetta er búið. Ég er samt í algeru messi núna. Er í ruglinu heima og ráfa bara um og eitthvað rugl.

Á morgun er svo bara buisness as usual. Mikið er ég fegin að þetta voru tvær konur sem urðu vitni að þessum ósköpum hjá mér í morgun. Ég held að karlmenn (flestir) bara skilji ekki almennilega svona geðshræringu..

Annars hefur ímynd mín af Heilsugæslustöð Hlíðahverfis gjörbreyst. Mér hefur alltaf fundist þessi heilsugæslustöð hálf-creepy. Það helgast að mörgu leyti að því að þegar maður kemur upp á aðra hæð og lítur til vinstri þá er oftast hálfopin hurð þar sem maður sér svona bekk. Ég hélt alltaf að þetta væri svona kvensjúkdóma-skoðunarbekkur, þið vitið, þar sem skoðað er í klofið á konum. Mér fannst alltaf svo ógeðslega creepy að stoðirnar á bekknum vísa beint að hurðinni, þannig að ef kona væri í skoðun á bekknum þá myndi klofið á henni vísa beint að hurðinni (eeww..). Já nei, nei. Þetta er ekki þannig bekkur. Þetta er blóðtökustóllinn og stoðirnar eru fyrir hendurnar á manni. Þannig að maður sér útgönguleiðina beint fyrir framan sig sem er mjög gott þegar maður er með nálarfóbíu.

Þessu komst ég að the hard way í morgun.

Later.

Sunday, December 9, 2007

Pee into the wind

Jæja, þá er maður búinn að færa sig yfir á nýtt blogg. Vonandi að maður verður ánægður hérna..

Allaveganna, ef einhver skildi hafa áhyggjur af því hvaða "slæmu fréttir" ég var að tala um í síðasta bloggi, fret not. Enginn dó eða er veikur. Það er bara kominn tími til að þessi stelpa (me) faces her fears. Ég þarf að horfast í augu við fóbíuna mína gagnvart nálum og blóði. Eða eins og Joey í Friends sagði (man ekki alveg hvernig atriðið var):

"if your afraid of bugs, get a bug. If you're afraid of hights, go to the top of the building. Stare into the barrell of a gun, pee into the wind!"

(Og þá segir Chandler: "Believe me Joey, if I would be starring into the barrell of a gun I would pretty much be peeing everywhere!")

Mín þarf að fara í blóðprufu á þriðjudaginn. Af því ég er ólétt. Ef ég fer í geðsýkiskast fyrir það, you'll know what it's about..