
Einmitt.
Núna er kominn sá tími þar sem mestur glansinn er farinn af fæðingarorlofinu. Enda er það búið og ég ætti að vera farin að vinna eitthvað.. En vinnan lætur standa á sér og konunni er farið að leiðast smá..
En svona til að viðhalda geðheilsunni þá er ég alltaf með prógram fyrir hvern dag sem mér tekst yfirleitt alltaf að halda (jei me). Prógramið lítur einhvern veginn svona út (ég geri mér vel grein fyrir því að þetta býður upp á alls konar skot á mig en so be it..)
Mánudagur
Atvinnuleitardagur. Sæki um vinnu hér og þar og lately.. alls staðar.
Þriðjudagur
Sturtudagur. Ekki í venjulegum skilningi heldur í gera-upp-sturtu skilningi. I know this sounds pathetic en ég er kítta á milli flísanna í sturtunni því gamla kíttið er orðið sjúskað. Sumir myndu stinga upp á að endurflísaleggja en Svanur er að tala um að taka baðherbergið í gegn á næstunni þannig að það er ástæðan..
Miðvikudagur
Ditti að einhverju heima. Í gær málaði ég t.d. yfir bletti í forstofunni og milliveggnum inni í stofu. Fer kannski í Hreyfingu.
Fimmtudagur
Á fimmtudögum fer ég til ma+pa og þríf þar fyrir pening. Á góðum degi tekst mér að fara í yoga tíma líka.
Föstudagur
Bæjarferðardagur. Hitti Beggu oftast á kaffihúsi niðrí bæ (hún kemst reyndar ekki í dag). Stundum fer ég á Hans Petersen og læt framkalla myndir. Oftast af Mána. Kem oftast við í Bónus. Reyndar fer í Bónus næstum á hverjum degi þar sem aðeins takmarkað magn af vörum kemst fyrir undir vagninn..
Flesta virka daga horfi ég á East Enders á BBC prime áður en ég sæki Óla. Er þó alveg hætt að drífa mig heim svo ég missi ekki af því..
Laugardagur og sunnudagur
Fjölskyldudagar.
Jæja, hreinskilningslegar játningar komnar í netheima. Reyndar er Máni að fara byrja í ungbarnasundi á mánudaginn þannig að það brýtur mynstrið aðeins upp.. en endilega ef einhver er með hugmynd að afþreyingu fyrir mig (kannski eitthvað sem gefur af sér pening?) þá please let me know..
love,
S