Thursday, December 25, 2008
Kreppu hvað?
Það fer í taugarnar á mér þegar fullorðið fólk er að tala um fullorðinsmálefni þegar börn eru viðstödd. Það er álit mitt að það eigi bara alls ekki að tala til dæmis um kreppumál í eyru barna. Barnið skynjar þá umræðu um skort og fyllist ef til vill óöryggistilfinningu.
Ég vil að börnin mín viti að það er til nóg af öllu. Enda er til nóg af öllu! Meðan við erum heil á húfi og heil á líkama og sál, höfum ofan í okkur og á og höfum hús yfir höfuðið þá skortir okkur ekki neitt. Enda er nóg af því sem við þurfum þess fyrir utan; hamingju og kærleik.
Point being: Ég vildi að fólk myndi alfarið hætta að tala um neikvæða og leiðinlega hluti þegar börn eru viðstödd. Og gjörsamlega aldrei tala um skort í eyru barna. Það er trú mín að það hafi slæmar afleiðingar.

Tuesday, December 23, 2008
Monday, December 15, 2008
Almennt um græðgi

Græðgi er ein af höfuðsyndunum sjö.
Ég hef aldrei skilið gráðugt fólk. Það lætur eins og það að hafa nóg sé bara alls ekki nóg. Það verður að hafa meira. Og gefa ekki með sér.
Einhvern veginn fannst mér þetta endurspeglast ágætlega í þættinum Logi í beinni síðasta föstudagskvöld. Logi tók viðtal við tvær konur. Önnur þeirra, söngkona, var spurð að því hvort hún væri farin að græða á tónlistinni loksins. Hún svaraði eitthvað á þá leið að gróði væri ekki eitthvað sem hún sæktist eftir. Henni nægði blessunarlega að hafa nóg. Síðan kom önnur kona, af allt öðru meiði einhvern veginn. Sú virtist vera með dollaramerki í augunum og talaði um hvernig hún væri að markaðssetja sjálfa sig og kynþokka sinn. Ekki það að ég hafi neitt á móti þeirri manneskju. Hún er absolutely gorgeous!
En maður spyr sig: Hvor er hamingjusamari?
Svarið er svo augljóst og skein einhvern veginn í gegn í þættinum. Söngkonan geislaði af lífshamingju og tísti dúllulega (enda er hún algert krútt) en hin einhvern veginn virkaði hálf fake enda upptekin af ytra útliti dáldið mikið og..
peningum.
Sunday, December 14, 2008
Mér finnst svo skrýtið...
þegar fólk svarar ekki símanum eða sms-um eða e-mailum.
Því þá held ég að það sé eitthvað að, t.d. að viðkomandi sé slasaður eða hafi lent í slysi eða eitthvað.
Er eiginlega komin á það að fólk bara nenni ekki að tala við mig akkúrat núna frekar en að það sé eitthvað að símanum og tölvunni. Kannski er bara svona mikið að gera. Skil nú reyndar smá hvað hússtjórnarfólkið varðar að svara mér ekki. Get alveg verið pirrandi, ég veit það:p
En samt. Fólk á að svara!

Tuesday, December 9, 2008
Me wants job
Me needs job. Me can do job, yes.
Væri alveg til í að byrja vinna eftir jól og áramót. Alveg gjörsamlega tilbúin til þess bara. Er að spá í að skrá mig í fjarnám í bókhaldsnámskeið við Háskólann í Bifröst sem er á næstu önn, bara svona til öryggis ef ég skyldi ekki fá vinnu.
Ferlega óþægilegt að vita ekki hvað gerist í framtíðinni. Uppá hvort maður fái vinnu eða ekki..(Einmitt Svava. Mjööög djúp pæling..)
Karlinn þyrfti líka helst að komast í frí, ég sé það alveg á honum. Farinn að fá í bakið og svona, it's just meant to be..
So, where's my job then?
?

Monday, December 8, 2008
Auglýsingar
Hann elsku Máni er eins og Tryggvi bróðir var þegar hann var lítill.
Hann elskar auglýsingar!
Tryggvi bróðir hoppaði einu sinn upp úr buxunum sem verið var að klæða hann í til að horfa á auglýsingar. Máni starir dolfallinn á sjónvarpið þegar auglýsingar koma og ansar engu og er ekki samskiptahæfur fyrr en þær eru búnar.
;)
Þetta er nú bara eins og back in the day þegar ég VARÐ að sjá Beverly Hills 90210 (hee.. (vandræðalegt..))
Later.

Sunday, December 7, 2008
Wednesday, December 3, 2008
Garg!
Hvar á gott fólk að byrja? Fólk sem er t.d. með fimm ára háskólanám en litla starfsreynslu?
Það er stundum frústrerandi að skoða atvinnuauglýsingarnar. Ég sé mikið auglýst núna eftir sviðsstjórum, framkvæmdastjórum, fjármálastjórum og deildarstjórum. Eða þá fólki með bókhaldsþekkingu.
Garg.
Af hverju er ekki verið að auglýsa eftir millistjórnendum?
Ég er alveg handviss um að ég yrði fínn millistjórnandi.

Tuesday, December 2, 2008
Yoga

I heart yoga.
Ég vildi að ég væri í yogatíma núna.
Fyrir mig þá er þetta 'the ultimate sport'. Mér líður alltaf vel í marga daga á eftir þegar ég er búin að fara í "alvöru" yogatíma. Það er svo gott að geta hreinsað líkamann af stressi með þessum teygjuæfingum enda hef ég fulla trú á þeirri tækni sem er notuð í Asthanga yoga tímunum. (Mín fer í Yoga Shala). Tæknin felst í því að auka hið náttúrulega flæði líkamans með því að losa um "stíflur" með því að gera kröftugar teygjuæfingar. Maður geymir t.d. oft þreytu og streitu í mjöðmunum og með því að gera yoga losnar um þetta og þessu er andað út. (make fun all you want, I don't care)
Eini hugsanlegi gallinn sem ég finn á yoga er að ég er orðin frekar alvarlega háð þessu og verð "cranky" ef ég kemst ekki í tíma einu sinni í viku. Elsku Svanurinn minn veit víst allt um það:/
Subscribe to:
Posts (Atom)