Thursday, January 29, 2009

Thank God for the merry sunshine

Loksins komin almennileg birta!

Ég tek því sem merki um betri tíð. Það er alltaf jafn flott landslagið hérna á Álftanesinu hjá ma+pa. Vildi ég væri á skíðum núna. Ekkert endilega hérna á Íslandi heldur frekar hva.. í Austurríki eða Ítalíu... Ó, JÁ. Eitt skíðaferðalag erlendis í eina viku takk. Hótel og skíðapassi með.

Þessi vika er nú ekkert búin að vera neitt glæsileg hjá Svövunni. Stefán Máni Svansson er búin að vera ansi duglegur að vekja okkur foreldrana á næturnar. Svo klifrar hann á okkur í rúminu (já um nætur) og snýr sér í hringi og sparkar í okkur og grætur.

Sá reyndar í gær að tönn nr. 3 er komin svo það er kannski skýringin á því af hverju hann hefur látið svona undanfarnar nætur.

Mér líður eins og zombie og tja væri ekki hissa ef ég liti þannig út:/

Held ég hafi fengið síðast fengið 8 tíma svefn .... eerrr........ ha?........ ..............

......................eee.............rrr......................

man ekki. What was the question?

Wednesday, January 14, 2009

Hvað er málið?!

Af hverju er svona mikið mál að finna almennilega bílryksugu??

Held ég hafi rúntað á um fimm bensínstöðvar í dag þangað til ég fann bílaryksugu sem hægt er að nota! Ég skil ekki.. hvað er málið? Er stútnum alltaf stolið af þessum blessuðu ryksugum? And who gets their kicks from doing that? Ég bara spyr..

Monday, January 12, 2009

Ungbarnasund í dag

Í tilefni þess að það er ungbarnasund í dag þá set ég hérna inn nokkrar myndir af okkur í þessu námskeiði, held að ég hafi ekki verið búin að því.. ef svo er: úps.
















































Og takk mamma fyrir að passa Óla á meðan!

LOL,
S

P.s. Máni er byrjaður að skríða!

Tuesday, January 6, 2009

Um Sjálfstæðismenn

Ég var að horfa á netinu á Kastljósþátt frá 30. des. síðastliðnum.

Þar eru álitsgjafar beðnir um að tjá sig um ummæli ársins að þeirra mati. Mér finnst alveg frábært það sem ein bloggkona sagði að Hannes Hólmsteinn Gissurarson hafi sagt í Mannamáli um Sjálfstæðismenn. Hann sagði víst að Sjálfstæðismenn vilji græða á daginn og grilla á kvöldin.

Alveg finnst mér þetta einhvern veginn lýsandi um þessa (valdasjúku) menn.

Heimskir karlmenn

Menn sem stjórnast af græðgi fá enga vorkunn hjá mér.

Ég á ekki til orð. Kastljósviðtalið við Bjarna Ármann fyrrverandi bankastjóra Glitnis í gær gerði mig kjaftstopp. Maður er ekki alveg að fatta þessar bjánalegu upphæðir sem þessir bankastjórar voru að fá. Það bara er ekki í lagi með menn. Hvað gerðu þeir við tugi milljóna í laun á mánuði plús fríðindi og bónusa og kaupréttarsamninga og starfslokasamninga upp á mörg hundruð milljónir og starfsbyrjunarsamninga upp á mörg hundruð milljónir? Voru þeir kannski bara farnir að skeina sér með peningunum í apalátunum? Enda búnir að drulla upp á bak í botnlausri græðgi og vitleysu.

Helvítis fokking fokk!!

Elsku mótmælendur - ég er með ykkur í anda (þ.e.a.s ef þið eruð friðsamleg - andi minn strunsar í burtu með fússi ef þið eruð með dólgslæti).

Saturday, January 3, 2009

Plan B


Gleðilegt nýtt ár allir og takk fyrir allt gamalt og gott!

Með nýju ári kemur nýtt plan fyrir Svövuna. Plan A er ekki alveg að virka akkúrat núna (að fá mér almennilega vinnu) þannig að nú er plan B tekið við.

Plan B: fara í bókhaldsnám - fjarnám við Bifröst. Einnig fríkeypis tölvunám (Navision Financial) í boði Vinnumálastofnunar. Þetta eykur atvinnumöguleika mína á vinnumarkaðinum OG Stefán Máni þarf ekki að fara í dagmömmu strax.

Sorted!