Hérna er Begga babe við rætur jökulsins..
Hérna er ég líka..
Þetta var ekkert mál! Náttla bara smá þreytuverkir og svona meðan maður var að þessu púli en núna finnst mér eins og þetta hafi bara verið léttur göngutúr.. Ef myndin fyrir ofan er stækkuð sést að lengst til vinstri er Haraldur Örn pólfari (maðurinn sem hefur gengið á öll stóru fjöllinn og jöklana..).
Útsýnismyndir:
Mæli alveg með að stækka þessa mynd, útsýnið var gorgeous! Sáum yfir allan Breiðafjörðinn og allan Faxaflóa og einhver sagðist sjá Reykjanesið jafnvel. Við vorum einstaklega heppin með veður, þess vegna komu svona margir held ég (við settum fjöldamet by the way).
Halarófan..
Begga á toppnum!
Maður var svo upptekinn af því að labba að maður hafði varla tíma til að taka myndir. Ég var eitthvað að hafa áhyggjur af því að geta ekki pissað neins staðar á jöklinum (þetta er nú ansi löng ganga), mér til lítillar ánægju var útbúið eins konar kvennaklósett sem var einfaldlega hola sem grafin var með skóflu. Það var ekki séns að ég gæti pissað við þessar aðstæður en gerði þó heiðarlega tilraun með rassinn upp í vindinn í dáldinn tíma. Svo var stoppupásinni lokið og halarófan hélt af stað fram hjá þessu "klósetti" sem ég var að reyna að pissa í ... hef nú ekki upplifað óþægilegri aðstæður til að pissa í! Pha..
Ég skammast mín fyrir að segja það en ég hef nú eiginlega ekki verið úti eftir miðnætti í ehemm.. marga mánuði núna skulum við segja svo þetta var nú smá svona viðburður hjá mér. Við lögðum af stað um 17 leytið frá Reykjavíkinni og komum aftur heim um 06:30. Við vorum á toppnum svona um 01:40 eða eitthvað álíka. Komum niður um 03:00.
Allaveganna, sé nú alls ekki eftir að hafa farið en fer í fámennari hópi næst. Kannski bara með kallinum.
:)