Monday, August 24, 2009

Aarg!

Máni er orðinn pabbastrákur. To the extreme - bara 100%. Segir ekkert nema BA-BA.

Þetta er sárt. Hann er orðinn bara skrýtinn við mig og vill BARA vera hjá pabba sínum. Hann snýr t.d. baki í mig núna meðan hann kúrar sig hjá pabba sínum.

Urg.

Skrifað nokkrum dögum síðar: Ástandið búið að batna til muna núna:)

Saturday, August 22, 2009

Menningarnótt (og ég með prentræpu)

Átti alveg hreint ágætis dag. Vorum reyndar fótgangandi frá því um kl. 13 og alveg til 21. Er frekar þreytt í löppunum! Dáist af honum Óla mínum sem var reyndar á hlaupahjóli en labbaði líka upp og niður 19 hæðir á Höfðatorgi þar sem lyftan var biluð.

Byrjuðum á því að rölta upp í Landsnet sem er nú bara rétt fyrir ofan þar sem ég á heima í Hlíðunum. Þarna er hvorki meira né minna en stjórnstöð rafmagnskerfis Íslands (frekar töff að sjá stóra skjáinn með landakorti af Íslandi rafmagnslega séð, t.d. sá maður greinilega hvar álverin eru og svona).

Anyways, við hvorki meira né minna en RÖLTUM svo niðrá Höfðatorg. Fórum líka inní Höfða þar sem leiðtogafundurinn 1986 var. Ég, stjórnmálafræðingurinn, svo vissi alveg að það var árið 1986 en ekki árið 1989, einmitt.. Skoðuðum svo Höfðatorg og sáum þegar björgunarsveitakonur sigu þarna niður, jú jú. Löbbuðum svo til elsku Tryggva bróður míns á Leifsgötuna og fengum kaffi og svona.. Héldum þessari rosa göngu áfram og niðrí bæ, út að borða á Basil&Lime (af illri nauðsyn þar sem við þurftum að borða kvöldmat, vorum orðin svöng og vorum niðrí bæ ekki á bíl.) Allt í lagi, en ji hvað það er ekki afslappandi að vera á semi fínum veitingastað með börn.. Stefán Máni sem oftast er nú alveg góður tók upp á því að láta ýmis mjög hávær hljóð út úr sér eins og BA-BA (pabbi) og svo var hann að emja eitthvað.. já, og var náttúrulega með hendurnar í allt og öllu.. phew!

Anyhows, hittum gott fólk og nokkra kunningja og röltum út um allt og svo ji minn eini RÖLTUM við heim. Er orðin ansi þreytt og gæfi mikið fyrir fótanudd núna, já eða bara heilnudd ef út í það er farið, úje.

Anyways, datt í hug að deila þessu með netheimum. For no apparant reason.

Later!

Friday, August 21, 2009

And back again

oh well.

Er víst ekki að fara vinna hjá Emami. Þau voru að leita að manneskju með miklu meiri reynslu í bókhaldi (10 ára reynslu helst) og manneskju með miklu meira peningavit líka. Átti víst að hjálpa til við að græða fullt af pening og spara fullt af pening. Hmm, ef ég kynni það upp á 10 væri ég ef til vill komin með jeppann og einbýlishúsið by now..

oh well.

I guess I'm meant for greater things. Or other things...

evs.

P.s. það er ástæða fyrir því að ég fór ekki í viðskiptafræði. Hún einfaldlega heillar mig ekki.

Sunday, August 16, 2009

Ég elska þig pabbi

og mikið væri ég ánægð ef þú myndir gera mér þann heiður að commenta á bloggið mitt.

(Fyrir nokkrum árum síðan var ég með fáránlegan skæting af því að pabbi commentaði á bloggið mitt, mér fannst það ekki nógu kúl. En núna hef ég séð ljósið, am all grown up og er löngu hætt að spá hvað er kúl og hvað ekki. Næstum því.)

Friday, August 14, 2009

Working girl

Funny how one phone call can change your life.

Stelpan komin í vinnu hjá EMAMI sem er tískufyrirtæki í Hafnarfirði. So far so brilliant. Er voða spennt, það er svo gaman að fá ný og krefjandi verkefni:) Ég verð sýnist mér í skrifstofuvinnu og bókhaldi auk þess að gera alls konar hluti. Mér sýnist allaveganna ekki vanta fjölbreytnina í starfið og nógu skemmtilegt er þetta.

Svo að ég er frekar sátt. Vinn þarna 08:00 til 16:00 virka daga.

Vildi bara deila þessu með ykkur, hver sem þið eruð...

P.s. er alvarlega að spá í að hætta að horfa á fréttir. Já, mér er barasta fúlasta alvara með þetta. Verst að ég gleymi þessu alltaf og horfi óvart á þær. En batnandi mönnum er best að lifa, ójé

:)

Sunday, August 9, 2009

Feel like dancing

Fór á Gaypride gönguna í gær og mikið ofboðslega fann ég vel þörf mína fyrir að dansa.

Mikið rosalega er langt síðan ég fór út að dansa. Ég bara man ekki alveg hvenær það var! Mikið var gaman þegar maður gat bara dansað langt fram á nótt. En núna langar mig ekkert að dansa langt fram á nótt.

Mig langar bara að dansa!