Friday, October 23, 2009

Imagine there were purer air - it isn't hard to do

Urg.

Eins og svo oft áður er ég örg af því að mér finnst loftið í miðju Reykjavíkur, þar sem ég bý, vera óhreint og mengað. Svifryksmengun hefur farið yfir hættumörg í hverfinu mínu oftar í ár en eðlilegt getur talist. Getur fólk ómögulega notað bílinn minna??

Mitt svar? Flytja.

Ég er hér með opin fyrir því að flytja í hreinna loft og til grænna svæðis. Út á land? Hví ekki?

Það er komin tími á breytingar, ó já.

Thursday, October 15, 2009

Rauði krossinn

Jæja,

nú er stelpan orðin sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum og líkar bara vel. Ég tek eina 4ra tíma vakt á viku í Rauða kross búðinni og fer tvisvar í viku upp í Gerðuberg og aðstoða innflytjendur á grunnskólaaldri við að læra heima. Á fimmtudögum er ég bæði í búðinni og uppi í Gerðubergi og í dag er einmitt fimmtudagur:)

Ég verð að segja að mér finnst þessa sjálfboðavinna vera ótrúlega gefandi. Það er svo gott að gefa til baka til samfélagsins og það er einhver fáránleg vellíðan sem fylgir þessu starfi. Skrýtið.

Atvinnuleitin gengur ekki nógu vel. Það eru rosalega margir sem sitja um þau störf sem í boði eru núna. Ég held þó áfram að reyna, að sjálfsögðu. Ég sendi t.d. ferilskrána mína á fimm fyrirtæki í vikunni og fór í viðtal á ráðningaskrifstofu.

Strákarnir mínir fá í staðinn meira af mér, sem er nú gott.

Ást og friður.