Sunday, January 31, 2010

Bráðum hata ég þig

Við Begga fórum á föstudagskvöldið í leikhús (Nemendaleikhús LHÍ) á sýninguna Bráðum hata ég þig.

Alveg hreint elska ég nemendaleikhús. Þetta fólk er svo ferskt og ungt að það er næstum því hrátt. Þau eru svo lifandi og sexy og það er svo gott að finna fyrir nýju blóði í leiklistarheiminum. Þetta leikrit er allt í lagi (mér fannst reyndar Eftirlitsmaðurinn, leikritið sem þau voru með á haustönninni) vera mun eftirminnilegra en þetta leikrit fjallar um alvarlega hluti (dauðann) sem er allt í lagi að því leiti að það fjallar líka um kynlíf sem vegur upp á móti því. Verð að viðurkenna að það er ansi "krassandi" að horfa á svona lifandi kynlífssenur. Call me kinky, I don't care.

Venjulega fer ég bara á leikrit sem ég veit að eru skemmtileg (því mig langar að hlægja) en þetta var nú bara allt í lagi. Ungir kynþokkafullir leikarar vega upp á móti alvarleikanum í leikritinu. Sérstaklega flott hvernig leikritið endaði; þrjú pör í kynlífssenum, hvert í sínu herbergi og ofboðslega er ég að fíla þessa nekt í leikhúsunum í dag. Bæði í Faust og svo í þessu leikriti eru ber brjóst. Það var nú mun minni spéhræðsla í þessu leikriti samt;)

Love it. Sexy leikrit:)

Rauði krossinn

www.rki.is

hmm.. míns bara á forsíðunni..

athyglisvert

:)

Tuesday, January 26, 2010

What's up with that?

Hvað er málið? Tvisvar núna á síðustu dögum er ég búin að vera vitni að því í umferðinni að eldgamlir karlar eru úti að keyra í einhverju rugli, bara alveg út að flauta og sjá ekki neitt og vita ekkert hvað er í gangi.

Þetta er dáldið fyndið og dúllulegt en dáldið alvarlegt líka. Um daginn þegar ég var að keyra keyrði gamall maður utan í bílinn minn. Hann ætlaði greinilega að skipta um akrein en var alveg í ruglinu bara og sá mig ekki líklegast af því að ég var í blinda punktinum hjá honum. Þetta var alveg fáránlegt. Sá karl var alveg út að flauta.

Svo í gær er ég að keyra á Listabrautinni og eldgamall karl keyrir löturhægt og ætlar svo að beygja inn á Kringlumýrarbrautina en stoppar bara langt frá því sem maður á að stoppa til að bíða eftir að óhætt sé að fara út á Kringlumýrarbraut. Síðan lullar hann löturhægt áfram, alveg í ruglinu..

Á ekki að gera eitthvað í svona málum? Fjarlægðarskynið var svo augljóslega farið að klikka eitthvað verulega hjá þessum körlum og þeir voru seriously mjög gamlir. Eru ekki reglur við svona??

Nei, ég bara spyr..

Sunday, January 24, 2010

Faust

Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að vera áhorfandi á Faust í Borgarleikhúsinu í síðustu viku. Takk mamma:)

Eins og Vesturporti sæmir er hér einstakt sjónarspil á ferð - og dýr(s)leg kroppasýning! Ég vil nú fá líkama nöfnu minnar sem leikur djöflapúka í sýningunni. Geggjað þegar hún var í splitti ofan á neti sem er fyrir ofan áhorfendur í þröngum og efnislitlum leður/latex galla! Rugl flottur líkami! (Hún er víst fimleikastjarna.)

Jú, ansi kraftmikil sýning en ég verð nú að viðurkenna að söguþráðurinn flæktist dáldið fyrir mér - sérstaklega þar sem ég vissi ekkert um hann fyrir sýninguna. En mér skildist sem svo að þarna sé gömul saga á ferð um mann sem gerir samning við djöfulinn sem endar auðvitað á þann veg að djöfullinn svíkur hann. Maðurinn selur sem sagt djöflinum sál sína fyrir eitt augnablik með þeirri sem hann ann og vill vera með.

Ansi töff uppsetning, elska þetta Vesturport lið:) Þvílíkur sköpunarkraftur! Elska hvernig þau ná að veita manni innblástur og gleði.

Bravó, bravó, bravó!!

Saturday, January 16, 2010

Get the fuck up, shut the fuck up!

Þetta er hið skemmtilegasta lag sem eróbikk dúddinn spilar alltaf í tímunum sínum í World Class. Þetta er bara á góðri leið með að verða uppáhalds work out lagið mitt!

"Get the fuck up, shut the fuck up" dúruududdu tfff tff tffff (bassinn sko)

Svo gott að fara í góðan eróbikk tíma á laugardagsmorgnum:)

Later!

Wednesday, January 13, 2010

A regular saint

I don´t meen to blow my own horn here but..

I'm a regular saint!

Var í einkabankanum og fattaði að á hverjum mánuði borga ég til Unicef, Amnesty international og ABC barnahjálpar! Og ég er atvinnulaus!

Oh well, ætla samt ekki að hætta að borga. Yei me!

Later:)

Thursday, January 7, 2010

"Takk fyrir að vera til"

Góðlátlegur eldri borgari kom inn í Rauða kross búðina í dag þar sem ég var á vakt og brosti innilega til mín og óskaði mér gleðilegs nýs árs. Aðeins seinna kom hann að borðinu og þakkaði mér kærlega fyrir að vera til. Ég komst smá við.

Svo sagðist hann vera á kenderíi. Fullur sem sagt.

Af hverju segir ófullt fólk ekki svona? Það væri nú gaman, ha?

jæja, ætla í rúmið, er þreytt.

Later!

Tuesday, January 5, 2010

Icesave

Þungt og erfitt mál indeed.

Ég var eitthvað svo ósátt um daginn við þetta allt saman og skráði mig á www.indefence.is af því að ég vildi ekki að þjóðin þyrfti að borga Icesave. Daginn eftir skipti ég um skoðun af því að mér finnst að það verði einhver að taka ábyrgð á þessu rugli og bankaráni og ef ekki íslensk stjórnvöld, hver þá?

Ég fékk hnút í magann í dag um leið og Ólafur Ragnar Grímsson byrjaði blaðamannafundinn og tilkynnti að hann ætlaði að vísa málinu í þjóðaratkvæði. Ég fattaði um leið hvað það er slæm hugmynd. En hann er og var á milli steins og sleggju í þessu máli eins og við öll hin.

Til fjandans með frjálshyggjuna, til fjandans með kapítalismann og Guð blessi Ísland.

Anyways,

xoxo

until next blog