Ég sé ekki réttlætið í því að Landsdómur ákæri Geir H. Haarde.
Þetta var ekki honum að kenna!
Hrunið? Hvað með útrásarvíkingana? Eða þá sem studdu frjálshyggju svo mikið að þeir ákváðu að það væri sniðug hugmynd að láta Landsbankann í hendurnar á fjárglæframönnum? Ætli það sé ekki Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig? Hvað með Framsóknarflokkinn?
Af hverju Geir? Af hverju ekki Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi viðskiptaráðherra, sem formlega afhenti þeim bankann ef svo má að orði komast? Af hverju ekki Björgólfur Thor Björgólfsson og aðrir þáverandi stjórnendur Landsbankans? Af hverju ekki þáverandi stjórnendur Seðlabankans?
Af hverju? Af hverju þarf Geir að vera blóraböggull fyrir allt þetta aðeins af því að hann var forsætisráðherra akkúrat þegar allt fór til fjandans? Eins og þetta hefði allt saman gerst á hans vakt?
Þetta er rangt. Af hverju þarf þetta að enda svona í einhverjum sirkus, eyðandi tíma fjölmargra manna og réttarkerfisins í heild sinni? Til hvers að negla Geir? Hvað fáum við út úr því?
Why. Why?!