Tuesday, December 27, 2011

Er í stuði til að blóta og rífa kjaft.

Fór í Lánasjóð Íslenskra Námsmanna í dag til að athuga hvernig námslánin mín hafa það. Og það bar við um þessar mundir að þau hafa hækkað um helvítis þrjár milljónir!


Fari það norður og niður.

Monday, December 19, 2011

Finally

Loksins, loksins...

... veit ég hvað ég vil gera í lífinu.

Ég vil vera rík kona sem býr í einbýlishúsi og ferðast reglulega. Starf mitt myndi vera að vinna við góðgerðarstörf. Ég myndi styrkja verðug málefni sem hjálpar fullt af fólki og gerir líf þess auðugra og hamingjusamara. Ég væri líka til í að vinna að umhverfismálum sem hafa það markmið að minnka losun mengandi efna út í andrúmsloftið. Grænt og gefandi starf.

Vinnutíminn myndi vera eftir mínu höfði og ég gæti tekið frí þegar mér þegar ég vil.

Vá, þetta hljómar æðislega:)

og þá er bara að vinna í lottóinu!

Tuesday, December 13, 2011

Það er ekki nóg með að jörðin snúist. Hún hristist líka!

fann fyrir nettum pirringi þegar ég fann mjög greinilega fyrir jarðskjálfta um kl. 16:20 í dag upp á Bíldshöfða. Er ennþá verið að dæla vatni niður í jörðina á Hellisheiði eða þarna hjá Hveragerði? Hverjum fannst það vera góð hugmynd??!