Friday, January 20, 2012

að panta pizzu

Ætla svoleiðis aldrei að leggja þennan skít vafinn í hveitilím aftur inn fyrir mínar varir. Ætla heldur ekki að nefna nafnið á pizzastaðnum - because I believe in karma. Bara never again. Þegar fólkið mitt ætlar að fara panta pizzu frá þessum stað þá bara bruna ég með det samme í Grænan kost að fá mér hollustu í líkamann. Takk og bless.

Tuesday, January 17, 2012

Hallæri

Þegar ég var á gelgjunni sem var nú alveg nógu andskotans lengi fannst mér margt hallærislegt. Þar á meðal foreldrar mínir.

Núna þjáist ég reglulega af samviskubiti vegna eigin hallæris. Hvernig gat ég verið svo hallærisleg að finnast alveg glatað að minn eigin elskulegi faðir sem ég virði og dái kommentaði á bloggið mitt?

Kaldhæðnin er að sjálfsögðu sú að enginn annar kommentar nema Tinna mín.

Hér er kaldhæðni, um hallæri, frá hallæri til kaldhæðni.

Loksins aftur bók sem ég elska að lesa

Það er svo ljúft að vera komin aftur í lestrarfílinginn. ... að hlakka til að kósa sig og lesa í rólegheitunum.

Núna er ég komin með bók sem ég get varla lagt frá mér og les á hverjum degi. Leist nú fyrst ekkert á þessa bók þegar ég fékk hana í jólagjöf og fannst að þarna væri komin enn ein vælubókin en...

The Help eða Hjálpin er virkilega góð bók og alveg eins og stendur á kápunni þá heldur hún manni heljargreipum og lesandinn er fastur í snörunni.

Love it:)

Tuesday, January 10, 2012

Vanity

Yes, I'm vain. So vain.

Sit nú heima í veikindaleyfi eftir fyrstu fegrunaraðgerðina. Þetta var nú líklegast líka sú síðasta en allavegana:

Nú er ég búin að fá ýmis komment um útganginn á mér. Vinur sonar míns (9 ára) sagði: "Hvað gerðist?" Ég útskýrði fyrir honum að ég hefði farið í aðgerð á þessu svæði til að laga aðeins og hann spurði aftur: "Já, en hvað gerðist?" Svo var ég að tala við tengdamömmu í gærkvöldi og hún spurði eins og von er: "Var þér illt?"

Þetta var nú kannski ekki nauðsynleg aðgerð af því mér var illt eða af því eitthvað gerðist svakalega mikið og það er ekki laust við að maður skammist sín smá fyrir eigin hégómagirnd en mér var samt smá illt á sálinni út af þessu af því stundum sá ég ekkert annað í speglinum en þessa fjölmarga hvítu fituhnúða undir augunum. Mér fannst þetta rosalega áberandi þó sumir vita ekkert hvað ég er tala um og sáu ekkert að.

Allavegana, þetta blessaða ástand sem ég fékk heitir Xanthelasma og núna get ég kysst það bless:)

Later:)

Wednesday, January 4, 2012

Time to say goodbuy to Bogahlíð 26

Árið 2012 verður ár flutninga hjá minni.

Inn í þessa 81 fermetra íbúð kom ég fyrir 10 árum síðan með ungabarn og út héðan fer ég með þrjú börn og einn mann.

Hvað svo verður veit nú enginn en ég er með háleitar áætlanir um að flytja inn í íbúð þar sem það er númer eitt; enginn fyrir ofan mig, númer tvö; geymsla og númer þrjú; allavegana tvö ef ekki þrjú barnaherbergi.

Ji, tilhlökkun og gleði í hjarta:)