Núna var ég að klára Einvígið eftir Arnald Indriðason.
Mikið ofboðslega er Arnaldur hæfileikaríkur höfundur. Frábær bók, hélt mér allan tímann. Snilldarflétta og Arnaldur hélt áfram að koma manni á óvart alveg fram á síðustu blaðsíðurnar. Stórkostlegt hvernig hann fléttar sögulegum atburðum inn í atburðarrásina.
Fimm stjörnur af fimm.
Núna er bara stóra spurningin: Hvað skal lesa næst???
Tuesday, March 26, 2013
Monday, March 25, 2013
af hverju ég kýs vinstri græna
það er vegna framtíðarinnar. Framtíðar barna minna og næstu kynslóða. Auðvitað skipta umhverfismál mestu máli í því samhengi. Hreint vatn og hreint loft er það sem á eftir að verða verðmætast á jarðkringlunni og þess vegna ætti að skipta mestu máli að huga að því núna, einmitt á okkar tímum, að tryggja að hreina loftið (sem fyrirfinnst varla lengur í borginni) og hreina vatnið verði ennþá staðreynd eftir 100 ár, jafnvel 200 ár og, eigum við að þora að vona(?), 300 ár.
Amen.
Amen.
Subscribe to:
Posts (Atom)