Thursday, April 25, 2013

auglýsingabæklingar...

... þeir eru nú ekki fáir sem koma inn um lúguna. Það eina sem ég spái oftast í er hvort þeir eru heftaðir saman eða ekki því það eina sem ég geri er að safna þeim saman og fara með þá í bláu tunnuna, þ.e.a.s. þeir sem eru ekki með heftaðir saman.

Ég lít þá sem hafa hefti í hornauga þar sem það er óumhverfisvænt að hefta þá saman. Þá geta þeir ekki farið í bláu tunnuna. Það kom mér því á óvart að sjálfir Vinstri grænir hafa hefti í sínum kosningabæklingi sem kom inn um lúguna! Ekki umhverfisvænt það.

Er flokkurinn kannski úlfur í sauðargæru? Segist vera umhverfisvænn en sendir manni svo bækling með hefti í ... segist vera umhverfisvænn en er svo að gæla við hugmyndina um álver á Bakka...

Er samt að fíla hana Katrínu mína svo vel ég er ennþá að spá í að kjósa flokkinn. Bæklingurinn er líklegast bara yfirsjón á annasömum degi og álverið á Bakka bara hugmynd sem er langt frá því að verða að veruleika...

hmmmm......

Wednesday, April 24, 2013

next up:

fyrsti yogatíminn eftir fæðinguna. Vííííí! :)


Monday, April 15, 2013

omg, svefnlaus í Reykjavík

dálítil þoka í gangi hérna.

Samkvæmt öllum fræðum á nýbökuð móðir með nokkurra vikna gamalt barn að passa vel upp á að hvíla sig vel. Svo það er það sem ég reyni að gera. Fer oftast í bólið upp úr kl. 22 á virkum dögum og fer ekki upp úr því fyrr en á milli 09 og 10.

En þegar blessað barnið vaknar á nokkurra klukkutíma fresti þá fær maður aldrei þennan langþráða 8-9 tíma samfellda svefn sem maður þarfnast.

Fyrir vikið er allt dáldið þokukennt þessa dagana....





Thursday, April 4, 2013

að loka hring.

alveg hef ég unun af því að loka huglægum hringjum.

Á vissan hátt finnst mér eins og ég sé að loka hring við að "eignast" dóttur mína núna í síðasta mánuði. Þá "á" ég þrjú börn; tvo stráka og eina stelpu. Móðir mín eignaðist líka þrjú börn; tvo stráka og eina stelpu. Amma Svava (amma mín móðurmegin) eignaðist líka þrjú börn, tvo stráka og eina stelpu og amma Alla (amma mín föðurmegin) eignaðist líka þrjú börn, tvo stráka og eina stelpu.

Þar sem ég hef vissulega ekki í hyggju að eignast fleiri börn er þessum "þrennuhring" nú lokið frá minni hendi.

Þegar Stefán Máni minn fæddist og við ákváðum að skíra hann Stefán fannst mér ég líka vera að loka hring. Báðir bræður mömmu skírðu son sinn Stefán í höfuðið á afa Stefáni, föðurs þeirra mömmu. Með því að skíra son minn Stefán var þá líka kominn einn Stefán mömmu megin.

Hring lokið.

Tuesday, April 2, 2013

Confessions of a desperate housewife

Um hnökrun og annan horbjóð:

Mikið ofboðslega verð ég alltaf svekkt þegar fín (og dýr) flík kemur sködduð út úr fyrsta þvotti í þvottavélinni þrátt fyrir að þvegið hafi verið samkvæmt þvottaleiðbeiningunum á flíkinni.

Mér finnst ég hreinlega vera svikin þegar flík sem er flott og fín og þar sem þvottaleiðbeiningarnar kveða á um að megi þvo á 40 gráðu hita kemur hnökruð í drasl úr þvottavélinni. Þetta er að gerast ítrekað hjá mér núna.

Þarf ég í alvöru að fara handþvo allar flíkur sem mér þykir vænt um? Mér sýnist það.