Thursday, June 23, 2016

oh æði:)

MMmMMMMMmmmmm.... hætt í vinnunni:)

Er að fíla mig svo vel og líður eins og ég sé að vakna til lífsins hreinlega. Er búin að lofa mér að koma mér ekki aftur í svona mikla álagsvinnu. Ever.

Hef ákveðið að taka hamingjuna framyfir frama og fórna ekki lífinu fyrir vinnuna.

Mér finnst þetta æðislega góð ákvörðun.

Hakuna matata.

Skilaði bílnum í gær og stresstækinu (símanum.) Labbaði heim frá því og finnst ekkert mál að vera ekki á bíl. Þetta segi ég núna í júní;)

Í dag hitti ég Tinnu með dætur sínar þrjár í gamla skólanum okkar. Sko úti á rólónum. Það var mjög fínt. Ég og Stefán Máni hjóluðum þangað. Tinna er þeim æðislegu eiginleikum gædd að manni líður alltaf eins og maður hafi hitt hana síðast í gær. Hún býr yfir svo yndislegri stóískri ró hún Tinna að manni líður alltaf vel í kringum hana. Ég er rík að eiga hana sem vinkonu. Bara vellauðug.

Monday, June 6, 2016

Nú er mál að linni

hélt að ég myndi hreinlega fara yfirum af stressi í dag og já, líka á föstudaginn.

Er hægt að deyja úr stressi?

Hraði nútímans er að fara með mig. Þetta er of mikið. Nú bý ég í hringiðunni; við Miklubraut og er að urlast einhvern veginn. Það voru rosaleg læti frá þessari aðalstofnbraut borgar óttans í morgun um kl. 08:30. Sjúkrabílar, löggubílar, slökkviliðsbílar, you name it, BABÚ!! BABÚ!! BABÚ!!!!!!!!!

Og alveg sama staða um kl. 16:00. Er eitthvað meira um slys núna eða hvað? BABÚ!!!! BABÚ!!!!!!!!!!!!

Er orðin stressaðri í vinnunni. Þoli ekki lengur svona uppákomur þar sem ég veit aldrei hvað helvítis (sorrý) síminn gerir þegar ég nota hann til að opna tölvupósta eða svara símtali. Oftast ekki eitthvað jákvætt. Bara stress og læti.

Langar bara að flytja ekki bara burt úr hringiðunni heldur bara út á land. Ég meika þetta ekki lengur.