Wednesday, August 31, 2016

Ok

Ég viðurkenni vanmátt minn.

Núna er ég að standa í smá verkefni hérna heima. Þar sem disklingar eru að verða úreltir og það virðist ekki einu sinni vera drif eða hvað sem það kallast til að setja svona cd's/geisladiska í í nýju tölvunum er ég að kóbera allar verðmætu og yndislegu myndirnar af börnunum þegar þau voru lítil yfir á tölvuna og svo yfir á minniskubb (spurning hvenær þeir verða úreltir..)

Allavegana, fór í A4 og keypti bara svona meðalminniskubb á rúmlega 3000 kr en málið er að ég er búin að koma ofboðslega miklu magni af ljósmyndum og video-um á hann og hann (minniskubburinn sýnir enginn merki um að ofbjóða allt þetta magn. Ég meina þetta eru mörg ár af þúsundum mynda og video-a.)

Hvernig virkar þetta eiginlega? Hvernig er þetta hægt? Hvernig virkar svona lítill minniskubbur? Veit það einhver? Hvernig virkar sjónvarp? Útvarp?

!!!

Ok Svava. Held það sé kominn tími til að fara aðeins út úr húsi. Ok? Ok.

Monday, August 29, 2016

Solitaire

Mér hefur öðlast sýn.

Sýn inn í veruleika spilafíkilsins. Að geta ekki hætt. Bara einn leikur í viðbót. Hvað sem það kostar!

Einhvern veginn gerðist það að svona spila-app komst í símann með spilakaplinum Solitaire. Elska þennan kapal en er á góðri leið með að ofspila hann. Þegar ég byrja að spila þá vil ég ekki hætta. Jafnvel þó kappallinn gangi upp þá er ég núna farin að keppa við mig um tímann sem það tekur hann að ganga upp hjá mér. Metið er 2 mínútur.

Sjálfstressandi.  Alveg. Ég er að keppa við sjálfa mig eins og vindurinn. Af hverju Svava. Af hverju?

Thursday, August 25, 2016

Böggull fylgir skammrifi

Mikið er þessi fyrirsögn lýsandi fyrir það sem gerðist eftir sjósundið.

Sem sagt. Prufaði sjósund á þriðjudaginn og fór með vinkonu minni. Hún hefur farið nokkrum sinnum og tók meira að segja þátt í sundi fyrir austan sem var hluti af landvættadæminu. Allavegana. Áður en hún fór með mér fór hún með vinkonu sinni fyrir svona 2-3 mánuðum síðan. Um það leyti hittumst við á kaffihúsi og vorum að ræða málin þegar hún segir mér frá því að hún hafi farið í smá sjósund í Nauthólsvík með vinkonu sinni og farið svo í heita pottinn, þennan langa, sem er þar. Það er það sem flestir gera eftir sjósund, fara í þennan pott. Við fórum í hann eftir sundið á þriðjudaginn.

Þær fengu báðar svæsna blöðrubólgu eftir pottinn og það voru greindar tvær bakteríur í þvaginu sem að ollu blöðrubólgunni, sýkingunni. Hún hringir þangað og lætur vita af þessu og spyr út í þetta. Jú, þau eru að passa þetta. Taka sýni og svona. Þennan dag hafi mætt á undan þeim margir krakkar í pottinn og eitthvað svona.

Nema hvað. Ég er komin með svæsna blöðrubólgu og mér sýnist sem lyfið sem ég nota vanalega við þessum kvilla sé ekkert að virka.

Shit.

Wednesday, August 24, 2016

milestone

Ok. Það er eitthvað að gerast með mig. Held að ég sé að ............

eldast.

Var að slétta á mér hárið með þar tilgerðum sléttara og brenndi mig óvart smá. Ákvað að hætta þessu pjatti. Þetta er bara hættulegt og óábyrgt að vera með svona slysagildru á heimilinu svo hann fær bara að fylgja með í Rauða krossinn/Sorpu í næstu ferð!

Er líka orðin rosalega umhverfisvæn. Allavegana í hugsun. Sá eitthvað snap í gær frá Nýtt líf um nýja ilmvatnið frá Chanel nr. 5. Þá voru umbúðirnar teknar af ilmvatninu og það tók smá stund af því að þetta voru þvílíkt miklar umbúðir utan um einn hlut! Ji, ég verð bara pirruð að skrifa þetta.

Allavegana. Þetta fór í taugarnar á mér.

Tuesday, August 23, 2016

Sjósund

Mmmm.... love it.

Klárlega eitthvað sem ég ætla að fara stunda. Maður bara frískast allur við!

Yes suree Bob. I ain't no quitter.

Tuesday, August 16, 2016

Bakterían

Er klárlega komin með bakteríuna.

Útivistarbakteríuna. Fellihýsabakteríuna. Bara elska þetta alla leið. Verst að sumarið er svona nokkurn veginn búið. En kannski við náum einni helgi í viðbót, eða tveim. Hver veit?

Allavegana, er að leita að atvinnu að sjálfsögðu. Það var auðvelt að finna eitthvað til að sækja um í síðustu viku en ég er svona aðeins að ströggla við að finna þrjár vinnur til að sækja um í þessari viku. Þetta kemur. Þetta kemur.

Thursday, August 11, 2016

kæruleysi

Oh. Er að ganga í gegnum svona kæruleysistímabil. Matarlega séð. Úff, finn mig fitna í þessum töluðu orðum. Ó, nei!

Þetta byrjaði fyrir nokkrum dögum. Mmmmm ís. Það er allt í lagi að fá sér ís stundum. Mmmmmm, smákökur. Það er allt í lagi að fá sér smákökur. Suðusúkkulaði! Omnomnom. Heilu plöturnar. Hlýt að þurfa þetta fyrst að líkaminn kallar á þetta.

Veit samt að þetta er bara tímabil og svo kemur tímabil þar sem ég er öll í hollustunni. C'est la vie. (Guð gefi að þetta sé rétt stafað hjá mér.)

Allavegana, er búin að eiga góða viku. Búin að hitta tvær vinkonur, díla við Guðrúnu Höllu, er að lesa bók eftir írskan höfund; Maeve Binchy. Búin að lesa tvær aðrar bækur eftir hana. Þessi heitir London transports og eru margar smásögur. Þyrstir samt í Dalalíf. Mmm, væri til í að lesa þessa bók eftir Guðrúnu í Lundi. Afdalabarn var nú alveg nógu góð.

Er búin að setja mér það fyrir að sækja um þrjár vinnur á viku. Það er ágætt. Leið ekkert alltof vel þegar tölvan virkaði hreinlega ekkí í morgun. Eitthvað með skjáinn. Það þýddi að ég gat ekki sótt um vinnuna sem ég var spennt fyrir í morgun en.... svo var ég eitthvað að fitla við tölvuna núna áðan og kviss, bamm, búmm hún virkaði!

Frekar skondið að það er yfirleitt þannig að ef eitt bilar þá bilar eitthvað annað. Þannig var það einmitt í dag. Var að útrétta á bílnum hans Svans og ætla svo að drífa mig að sækja Guðrúnu Höllu þegar ég get ekki opnað bílinn. Eins og batteríið í bíllyklinum sé dautt og ekkert gengur. Var farin að panika af því ég var orðin svo sein, komin yfir tímann sem hún má vera á leikskólanum þegar allt í einu búbbast bíllinn og ég gat opnað hann. Alveg eins og með tölvuna núna.

Er sannfærð um þarna eru karmastigin að verki. En.... af hverju bilaði þá tölvan hans Svans? og bíllinn? .... Ahhhh, Svanur er greinilega ekki með eins mikil karmastig og ég;)

Saturday, August 6, 2016

Put a fork in me. I'm done.

Vá.

Ég er sem sagt búin að vera í Ashtanga yoga workshopi í Ljósheimum undanfarna daga. Kennarinn heitir Mark Robberds. Hann er frá Ástralíu en ég held hann búi í Indlandi. Hann getur gert alveg ótrúlega flotta hluti, yogalega séð.
Ég hef stundað þetta Ashtanga yoga í yfir 10 ár núna en þetta er alltaf jafn krefjandi. Get til dæmis ekki gert allt sem maður á að gera í seríunni. Allavegana, það var svona mysore tími í morgun þar sem við gerðum seríuna sjálf og hann kom og hjálpaði okkur í pósurnar (asana held ég það heiti.) Vá. Hef aldrei svitnað svona mikið eins og í morgun í þessum tímum. Hann hjálpaði mér að komast í eina stöðu sem ég hef ekki komist í áður.
Þetta tekur svo mikið á að við erum öll eins og englar á eftir. Manni líður svo vel eftir á:) Allavegana, núna er þetta námskeið búið og manni langar bara í meira og að geta gert meira:) Þvílíkur innblástur sem þessi maður er!
Ég reyni að mæta einu sinni í viku í Ashtanga 2 tíma til að halda mér við. Ég elska þetta. Elska þennan yogaheim. Þegar ég var í Bali og komst loksins í yogastudio langaði mig bara að vera þar að eilífu. Þetta gefur mér svo mikið. Stundum nær bikarinn að fyllast það mikið að ég næ að gefa smá tilbaka eftir svona tíma. En svo kemur alltaf að því að ég verð að fara aftur.

Namaste.



Thursday, August 4, 2016

Fellihýsið

 Já, það ólíklega hefur gerst.

Svava svaf í fellihýsi. Ekki bara eina nótt heldur þrjár nætur!

Það kom mér verulega á óvart hversu mikið ég fílaði þetta. Nálægðin við náttúruna og ferska loftið... Mmmm, elska þetta. Fannst ótrúlega skrýtið að sofa svona einhvern veginn í lausu lofti en það vandist furðulega fljótt. Við vorum líka ótrúlega heppin með nágranna þarna á tjaldstæðinu á Arnarstapa. Ég tek túristana fram yfir drukkna Íslendinga alla daga. Það sást ekki vín þarna og flestir í kringum okkur voru fjölskyldufólk já, eða þá túristar. Æðislegt.

Hef annars áhyggjur af þessum massatúrisma sem er í gangi og hvaða áhrif þetta er að hafa á landið okkar. Túristarnir eru alls staðar og þau sem vinna á þjónustumiðstöðinni þarna á Arnarstapa og í kring eru líka útlendingar. Dáldið súrrealískt!

Allavegana, er að elska fellihýsið og finnst bara verst að líklgast getum við bara farið í eitt skipti í viðbót áður en sumarið er búið.

Og já, var ég búin að segja ykkur að mig langar að flytja?