Wednesday, October 26, 2016

Hamingjan

Undirrituð rak upp stór augu í biðröðinni við kassann í Krónunni í síðustu viku. Tók mynd af forsíðunni af Séð og heyrt. Ok myndin er ekki skýr en hér segir að Ellý Ármanns hafi fundið hamingjuna á ný.

Mér finnst þetta vera bull og kjaftæði. Finnur maður þá hamingjuna bara hjá maka? Hjá karlmanni? 

Æ, ég er búin að spá svo mikið í hamingjunni og allt sem ég hef lært um hana er einmitt að maður finni ekki hamingjuna í annari manneskju. Hamingjan er eitthvað sem maður býr til sjálfur. Það er auðvitað æðislegt að vera ástfangin og að finna einhvern svona mann en come on. Maður er fullkomlega fær um að vera hamingjusamur án maka. Þegar ég fer að hugsa um það þá veit ég um fullt af konum sem er mjög hamingjusamar og eru ekki með maka.

Æ, þessi forsíða fer í taugarnar á mér. Ég er reyndar eiginlega hætt að lesa svona slúðurblöð. Mér finnst þetta allt svo mikið bull. Blaðamaðurinn gerir sitt besta til að selja fréttina. Finnur eitthvað krassandi og slær því upp sem fyrirsögn og bara æ... kannski maður ætti bara að flytja upp í sveit og lesa félaga Laxness aftur eins og hann leggur sig. Segja þetta bara gott.

Svava Ólafsdóttir.

Tuesday, October 25, 2016

ji minni eini....

.... er ennþá að þrauka í gegnum þessa bók.

Skil ekki af hverju ég get ekki bara hætt en þetta er eitthvað svona ... ég klára þau verkefni sem ég er byrjuð á sem er nú kannski bara fínasti eiginleiki ekki satt?

En úff, er næstum búin með hana. Persónufjöldinn og fjölskyldubönd eru flókinn og torskiljanleg. Það er vaðið úr einu í annað tímalega séð og það fauk í mér í gærkvöldi þegar leit út fyrir að Margrét væri að fara missa þriðja barnið. Það bara virkilega fauk í mig og ég blótaði upphátt. Sem betur fer kom skólastjórinn og bjargaði barninu hennar úr sjónum en aaaaarrrrggg....

nokkrar blaðsíður eftir.

Tuesday, October 18, 2016

Ég segi farir mínar ekki sléttar...

... af þessari bók.

Núna er ég búin með helminginn og er varla einhverju nær. Sögupersónur koma í belg og biðu, eru eiginlega ekki kynntar og ég veit ekki hvort ég sé að koma eða fara. Í byrjun er hent út alveg fullt af nöfnum þannig að lesandinn (ég) er að reyna að henda reiður á hver er hvað en er eiginlega jafn ringluð núna og í upphafi bókar en samt einhverju nær. Jakob er pabbinn, Ari er sonurinn en svo er Tryggvi, Oddur og einhverjir... og svo skiptir höfundurinn oft um hver er að segja frá. Ari er kannski að segja frá einhverju atviki og svo allt í einu Tryggvi held ég og hver er Tryggvi eiginlega?

Svo ofboðslega ringluð í þessari bók. En ég er þannig úr garði gerð að ég hætti ekki í miðjum klíðum svo ég held áfram að þröngva mér í gegnum þessa blessuðu bók.

Úff.

Eigið góðan dag allir:)

Thursday, October 13, 2016

Dýrlingur

Það er svo gott að gefa.

Ef ég gæti starfað við það þá væri líf mitt fullkomnun.

Í viðleitni minni til að henda reiður á fjármálum mínum sagði ég upp American Express kortinu mínu. Það er alveg nóg að vera með eitt kreditkort (eh já.) Allavegana, í gegnum þetta Amex kort safnar maður Vildarpunktum sjálfkrafa. Ég var komin upp í 28.xxx kr. og var að gefa Vildarbörnum þessa punkta. Vildarbörn eru langveik börn og þetta hjálpar við að koma þeim í draumaferðina. Ji, hvað þetta var gott!

Í gær gaf ég þriggja barna bílstólslausri fjölskyldu bílstól fyrir 9-18 kg.

Góðverk á dag kemur skapinu í lag:)


Tuesday, October 11, 2016

dæs

Jæja,

eftir að hafa ráðið lífsgátuna hefur mér liðið dásamlega.

Um helgina fórum við Óli í bíó á Bridget Jones's baby. Mikið sem mér finnst þessi mynd mikil snilld. Hló það mikið á einum punkti að ég réð ekkert við hláturinn!

:) hef eiginlega ekki meira að segja í bili nema að ég er að leita mér að skammtímavinnu núna. Auðkenni var að auglýsa eftir þjónustufulltrúum í skammtímaverkefni og ég ætla að bögga aumingjans manninn sem er í forsvari fyrir þessu þangað til hann gefst upp.

Gleðileg jól!


Thursday, October 6, 2016

oh dear

Nýr dagur. Nýtt plan.

Ekki aðgerð. Læra nudd.

Minn innri öryggisfíkill er vitanlega að fara vel yfir um.

Mamma, ég er að fara með Guðrúnu Höllu í klippingu eftir leikskólann.... :*

Wednesday, October 5, 2016

Endurkoman

Kláraði þessa bók í fyrradag.

Mikið góð bók. Mikill meistari hér á ferð. Las líka Málverkið og naut hennar líka. Svo fallegt þegar karlmaður skrifar svona fallega um ástina. Núna langar mig að lesa fleiri bækur eftir hann. Spurning um að reyna finna Sniglaveisluna....

Tuesday, October 4, 2016

ástand

Jæja.

Dáldið erfiður dagur. Guðrún Halla tók upp á því í gær að sofna óvart rétt fyrir kvöldmat og vakna svo rúmlega 20 eftir sirka tveggja tíma svefn. Auðvitað var hún svo vel spræk um miðnættið og tók svo upp á því að öskravæla upp úr miðnætti. Guð minn góður.

Í morgun var nágranninn uppi á að minnast á þetta við Svan. Ég er þreytt eftir nóttina og það er asnalegt að vera þreyttur þegar maður er atvinnulaus.

Ástandið skánaði lítið þegar ég hitti heimilislækninn. Ég er komin með veikindavottorð fram að aðgerð. Já, aðgerð! Omg. Operation talebone be gone. Er óvinnufær eins og er með þetta rófubein. Get ekki setið lengur en í svona tvo tíma og er þá illt eftir á. Svakalegt.

Sjúkraþjálfun og Virk. Úff.

Aumingja ég. Ætla að taka upp á því að blogga á hverjum degi á meðan ég er að komast í gegnum þetta.

So soon enough peeps.

Sunday, October 2, 2016

Matur

Ok. Ástandið er ekki eins og slæmt og ég hélt.

Ákvað að taka upp á því að taka saman hvað við eyðum miklum pening í mat á mánuði og samkvæmt mínum útreikningum þá eru þetta 145.649 kr fyrir september mánuð.


Ég bjóst við meira held ég verð ég að viðurkenna. Við erum jú 6 manna fjölskylda og Óli minn er farinn að borða rosalega mikið.

Já, kannski er ástandið bara alls ekki eins slæmt og maður heldur.

Namaste:)