Í dag var síðasti dagurinn með Fjólu, þessum frábæra kennara. Mikið sem ég fíla hana.
Af því tilefni settumst við saman í hring og deildum reynslu okkar með hvort öðru, af hverju við erum í þessum skóla, hvaðan við komum og hvert við erum að fara, og svo framvegis.. Við drógum englakort og hjartakort. Við fengum öll útskorið hvítt hjarta sem við merktum okkur, svo gengu kortin hringinn og við skrifuðum góð orð fyrir hvert og eitt okkar. Þetta verður góður fjársjóður að eiga á rigningardegi:)
Svo fífluðumst við eins og krakkar í tæpa tvo tíma til að minna okkur á að taka hvorki okkur né lífinu of alvarlega. Hef ekki hlegið svona mikið í tvo ár eða eitthvað.
Allavegana, kærkomið frí á morgun svona fyrir utan það að það er skipulagsdagur í leikskólanum OG í skólanum.
Namaste.
Thursday, February 28, 2019
Tuesday, February 26, 2019
Besti skólinn part II
Ég á erfitt með að lýsa því hvað þessir síðustu dagar
í skólanum með þessum kennara hafa gert fyrir mig. Það er búið að opna á eitthvað,
það er búið að skapa meira rými innan í mér til góðra verka. Það er búið að
henda rusli út. Þetta er búið að vera mér svo mikill innblástur. Það er búið að
vera svo gaman, það er búið að vera svo mikil gleði. Að maður skuli geta mætt í
skólann og það fyrsta sem er gert er að dansa saman! Það síðasta sem var gert
daginn áður var að leika saman og syngja saman! Við fórum í leik þar sem við gátum
fjögur lyft kennaranum af stól notandi bara vísifingurnar okkar. Þessi kona er
að kenna okkur um orku og ég er í himnaríki.
Núna vil ég að tíminn fari að hætta að þjóta svona áfram og fari aðeins og róa sig. Ég á bara tvo daga eftir með þessari konu og vil njóta.
Please stop the clock, I feel good.
Monday, February 18, 2019
Besti skólinn
Eitthvað segir mér að ég sé á réttum stað í lífinu. Fyrir mig.
Dagurinn í dag í skólanum var frábær eins og svo oft þegar nýr kúrs og nýr kennari byrjar. Nú er mætt til leiks nýr kennari sem er víst eitthvert "legend" í nuddheiminum. Mjög áhugaverð nálgun hjá henni en hún kennir okkur heildrænt nudd. Kann vel við hana og hennar nálgun á nuddið en í henni felst að það er engin rútína og ekkert form heldur frekar formleysi og rútínuleysi. Það er hressandi.
Elska líka við þessa konu að hún er frjálsleg. Sagði nokkrum sinn fokk og fokkings og svo ropaði hún mikið. En það gerði hún þegar einhver losun átti sér stað hjá okkur í dag á meðan við vorum að heila hvort annað. Eða svoleiðis.
Elska þetta nám.
Stundum kemur samt hugsun eins og ein sagði í dag, hvað það verður samt gott þegar námið er búið og maður verður frjáls við þetta form; að vera "fastur" í skólanum alltaf fyrir hádegi. Þegar maður getur farið að sinna sínu. En mikið á ég eftir að sakna skólans og að vera að hluti af þessum frábæra hóp.
Þá líka tekur óvissan við sem öryggisfíkillinn er ekkert að fíla alltof vel. En samt. Hef trú á að þetta blessist og að ég geti unnið við þetta. Sérstaklega er ég hrifin að svæðameðferðinni eða reflexology. Þar nær fólk að slaka svo vel á. Það væri draumur í dós að geta unnið við hana. Ef fólk bara vissi hvað þetta er mikil snilld.
Hlakka til að fara í skólann á morgun. Sem er frábært.

Subscribe to:
Posts (Atom)