Tuesday, April 30, 2019

Smákrimmi

Ég er orðin svo meðvituð um umhverfismál að mér líður eins og glæpamanni þegar ég hendi nýju mjólkurfernunni með plastlokunni í ruslið.

Málið er að mér finnst þetta asnalegar umbúðir flokkunarlega séð. Sko. Það er ein tunna fyrir plast og ein tunna fyrir pappír svo hvert setur maður þessa nýju gerð af mjólkurfernu sem er með plaststút eða hvað sem maður kallar það?

Mér finnst þetta ekki vera augljóst mál! Og þar sem ég er samviskusöm og vil gera hlutina rétt þá enda ég með því að gera þá rangt út af þessum nýju fernum!

Mér líður meira að segja illa yfir að viðurkenna þetta á internetinu. Þessar mjólkurfernur enda í ruslinu á þessu heimili.

Ruslinu!

Á mínum vinnustað í Kópavogi eru þessi mál heldur ekki skýr og mér finnst maður fá misvísandi skilaboð um hvort plast megi fara með í pappagáminn eða ekki.

Ég meina já eða nei!!

Af því að þessir hlutir skipta máli.

P.s. er eðlilegt að líða stundum illa vegna "the city above the sky"? Ég meina hvað ætli flugvélar mengi samtals mikið á sólarhring? Eða skip?!

Omg. Tremmi.


Ok, samkvæmt heimasíðu MS eru þetta umhverfisvænni umbúðir og það er meira að segja 30 sekúndna myndband um hvernig maður brýtur fernuna saman til endurvinnslu en ... það er ekki ljóst í nákvæmlega HVAÐA endurvinnslugám fernan með plaststútnum fer!


Wednesday, April 24, 2019

Barnauppeldi 101

Núna langar Guðrúnu Höllu í gullfisk. Ok. Ég sagði henni að ef hún myndi taka til í herberginu sínu og stofunni myndi hún fá gullfisk og sá fyrir mér svona einn gullfisk í hringlaga skál eins og við áttum í Miðleitinu.

Nú er barnið búið að standa sína plikt og ég verð að standa við mitt. En málið er ekki það auðvelt. Fór með henni í dýrabúð í Holtagörðum í dag og þar voru bara til stórir gullfiskar og risastór búr. Ekkert sem passar í kósý íbúðina okkar.

...

Allavegana, það er önnur dýrabúð hjá Costco en ég hef hvorki tíma, orku né nennu til að standa í því í dag. En krakkinn hlustar ekki á svoleiðis rök.

Fjandinn hirði skipulagsdaga.

:)

Ég gæti náttúrulega líka staðið fast á mínu. Við förum í aftur í málið og hina dýrabúðina á föstudaginn.

Er með tvo engla á bakinu; sá hvíti og góði sárvorkennir barninu að fá ekki gullfiskinn sinn í dag en hinn fór í dýrabúð í dag og hefur ekki tíma, orku eða nennu til að fara í aðra. Ætli púkinn vinni ekki í dag.

Kominn tími til að sýna barninu hver ræður.

Hananú.


Tuesday, April 16, 2019

Oh happy day

Jibbíkóla hvað það var gaman í vinnunni í dag.

Nuddaði tvo í shalanu og báðir kúnnarnir voru svo ánægðir. Mikið sem það er gefandi að sjá afrakstur vinnu sinnar í formi vellíðunar og hrósa.

Annar kúnninn ætlar að koma hálfs mánaðarlega :)

Munar líka mikið að hafa ekki verið að koma beint úr skólanum heldur bara frá því að vera í fríi um morguninn.

:)

Thursday, April 11, 2019

4 down, 1 to go

Man (enska; maður)

Þvílík vika.

Enn eitt prófið í morgun. Það var nú reyndar bara korters próf í íþróttanuddinu þar sem hvert okkar kom eitt inn til kennarans og hann fékk nudd á valið svæði. Ég mundi eftir olíunni minni því maður veit aldrei með þessar olíur uppí skóla.. Kom meira að segja með lak ef það þurfti. Klikkaði hins vegar á að vera í vettlingum á leiðinni í skólann og var því með kaldar hendur (úps.)

Ég er ekkert húrrandi ánægð yfir frammistöðu minni. Enda finnst mér nudd snúast upp í andstæðu sína undir svona kringumstæðum. Próftaka, ljósin kveikt, grafarþögn, kaldar hendur, oggu poggu stress.. Gleymdi einum triggerpunkti í lófa og fór tilbaka í hann eftir að ég var búin með punktinn í olnboganum. Reyndi að hafa þetta nógu andskoti þétt því ég held að hann fíli það. Fannst samt trigger á deltoid og pectoralis vera í rugli hjá mér. Leitaði ekki nógu vel eftir punktunum.

Oh well.

Hlýt að ná þessu. Er eiginlega viss um það. Hann sagðist finna fyrir að við værum öll einhvern veginn útsleginn eftir kinesologíuprófið í gær og að við værum öll hálf stressuð.

Núna er bara teygjupróf eftir á morgun og svo förum við beint í Laugar spa til að halda upp á próflok og páskafríið. Við eigum víst að fara í kaldan pott en ég veit ekki alveg með það... Ef ég á að segja alveg eins og er þá er ég ekkert svo hrifin af því.

Búin að kaupa bikini og er að fara setja á mig brúnkukrem (gangi mér vel.) Vil bara ekki hræða fólkið með hvítunni minni, ekki það að ég sé svo upptekin af útlitinu, hehe.

Fór á kvöldvakt í gær. Hlakkaði nú ekkert til en svo var bara gaman að hitta stelpurnar sem ég vinn með. Fékk einmitt góð tan ráð frá einni 19 ára:)

Kveðja,
skinkan


Wednesday, April 10, 2019

3 down, 2 to go

Vá. Drama.

Þessi kúrs er eitthvað annað. Athyglisverður, já. Erfiður, já.

Byrjuðum á að taka skriflega prófið sem var um klukkutími. Svo var verklega prófið sem ég var mun óöruggari með. Tveir og tveir fóru inn í einu og voru frekar lengi fannst okkur eða um 20 mín. Fyrstu tvær komu út og...

... sögðust hafa fallið. Þær þurfa að taka prófið aftur eftir páska (!:/) þær sögðu að spurt hafi verið út í orkubrautir og acupressure punkta sem okkur fannst galið. Allavegana, næstu tvær komu út og ...

Náðu. Þá var komið að okkur. Hin féll og ég...

Náði. En omg. Ekkert svo góð tilfinning sko af því að hin féll og mín pæling er að hefði ég byrjað á prófinu en ekki verið sú sem var prófað á hefði ég kannski fallið líka.

Æi.

Allavegana, ég náði og þetta er búið en ég er of meðvirk til að vera ánægð með það.

Tuesday, April 9, 2019

2 down, 3 to go

Its my party and I cry if I want to. Cry if I want to, cry if I want to...

Dagurinn var ok. Náði að læra í skólanum og allt virðist skýrara varðandi þennan kinesologiu kúrs en það breytir ekki því að ég nenni engan veginn að læra fyrir prófið á morgun eða taka það.

Það er ferlega óþægileg tilfinning sérstaklega þegar maður þjáist af krónískri samviskusemi og er öryggisfíkill ofan á það.

Var með einn góðan nuddþega í shalanu í dag sem er nóg þegar svona stendur á.

Þarf bara að læra þetta vélrænt, eins og að hamra upplýsingum inn í tölvu í gegnum lyklaborð sem er samt asnalegt af því að minnið er fullt eins og er í þessari tölvu minni og...

... computer says NO.

Omg.

Monday, April 8, 2019

1 down, 4 to go

Kæra dagbók,

lífið hjá örvæntingarfullu húsmóðurinni snýst núna um að lifa þessa viku af. Er að klára skólann og er í fullt af prófum í vikunni en þegar þessi blessaða vika er búin þá er ég komin í frí.

Ég hlakka mikið til. Mikið.

Vorum í prófi í íþróttanuddi í dag. Þá nudduðum við allt formið sem er klukkutími á hvort öðru. Held mér hafi gengið vel. Sem betur fer byrjaði ég sem nuddþeginn sem var ágætis streitulosun.

Íþróttanuddið er annars virkilega góður kúrs. Við erum búin að læra heilmikið og mér heyrist við flest ætla að nota það í okkar meðferðum.

Næsta próf er í kinesologíu sem er reyndar mjög athyglisverð og merkileg grein svona nema þegar maður þarf að læra hana fyrir próf í einhverju óstuði til þess..

Allavegana, 1 down. Bara 4 dagar eftir í páskafrí.

Amen.

Thursday, April 4, 2019

Spennt

Að þessu sinni er ég svo spennt yfir að páskafríið er eftir næstu viku. Ég sé fyrir endann á skólanum líka. Þetta er alveg að verða búið.

Get bara varla beðið. Tankarnir þurfa áfyllingu og andinn þarf að anda. Það er bara þannig.

Nafna mín sem kennir okkur kinesologíuna sagði okkur þegar einhver var að deila með henni hversu mikið búin á því við erum (ég var ekki að væla í henni, lofa) að maður eigi alltaf 30% eftir á varatönkunum.

Ég held að ég sé reyndar á þessum varatönkum núna og að batteríið sé að klárast. Líður allavegana þannig núna.

Svo það er spurning um að lifa þetta af. Mér finnst mjög svekkjandi að vera svona búin á því því að efnið er spennandi. Bæði kínesologían og íþróttanuddið.

Svo er bara að sjá hvort maður nái þessu.... hef ekki metnað í þetta akkurat núna því miður.

Vildi að ég gæti hraðspólað yfir næstu viku og aahhh lífið myndi byrja aftur á föstudagseftirmiðdaginn eftir viku þegar þetta er allt yfirstaðið.