Tuesday, June 30, 2020

Mánudagurinn 29/6/20

Ég vakna, fer fram í eldhús og lít á klukkuna. Hún er 08:08 og ég veit að þetta verður góður dagur.

Fer í hugleiðslu út í Elliðárdal og þegar ég er búin er klukkan 10:10. Vá.

Kláraði vinnuna 14:14. Lukkunnar pamfíll sem ég er.

Elska svona daga þegar maður er í vortexnum (Abraham Hicks) og allt flæðir svo eðlilega og allt er auðvelt.

Kl 19:19 labbaði ég niðrá Frakkastíg í "liggja og hrisstast" (KAP)

Minn kærasti náði í mig og við sinntum krökkunum. Sérstaklega ánægjulegt hvað Guðrún Halla er að elska fimleikanámskeiðið sem hún er á.

Það eru ekki allir dagar svona rosalega góðir svo ég er extra þakklát fyrir þennan síðasta mánudag í júní.

Namaste.

Tuesday, June 23, 2020

Sumarið er tíminn..

.. þegar kvenfólk springur út.

Elska þetta lag með Bubba.

Er að gera mitt besta til að springa út en ekki bara springa.

Núna eftir að við fengum hjólhýsið sérstaklega. Mér hefur alltaf fundist frekar erfitt að gera mig og krakkana tilbúin í ferðalög. Núna er það vikulegur viðburður, að pakka og svo afpakka.

Svani finnst þetta ekkert mál. Segir bara: eigum við að fara í hjólhýsið og labbar út.

Ég þarf að gera lista.

Er að fíla þetta hjólhýsalíf svona sæmilega. Svanur elskar þetta. Og hvað gerir maður ekki fyrir elskuna sína?

Allavega, markmið sumarsins er að springa út. Eins og blómarós.


Tuesday, June 16, 2020

What is up with humanity


Datt eitt í hug þegar ég var í miðri sumarbústaðaferð með vinkonum mínum um helgina.

Hvað myndi manneskja sem kæmi í heimsókn í nútímann frá sirka 100 árum síðan í tímavél myndi eiginlega halda..

Sé þessa manneskju fyrir mér segja eitthvað eins og: "hvur fjárinn. Af hverju eru þær allar að halda á einhverjum afkáralegum ferhyrnum hlut og stara á hann? Hvur er þessi merkilegi hlutur?"

Ok. Þessi ferhyrndi hlutur er sími sem hefur jú sitt notagildi en mikið er þetta stundum asnalegt, að koma inn í aðstæður þar sem allir eru bara að stara á símann sinn.

Þetta var frábær sumarbústaðaferð og við gerðum fullt annað en að vera í símunum en mikið er þetta farið að taka mikið pláss í lífi okkar.

Næstu daga ætla ég að vera eins lítið og ég get í símanum. Er alveg viss um að það geri mér gott.


Tuesday, June 9, 2020

Garður hugans

Er orðin mjög "pikkí" með hvað ég innbyrði. Ekki bara með mat heldur líka hvað ég les og hvað fer inn á orkusvið mitt. Hvað ég skoða. Beini athygli minni að.

Eins og varðhundur við hlið garð hugans.

Er orðin svona pikkí vegna þess að ég hef breyst. Er orðin næmari. Vil góða hluti inn, vonda hluti út.

Setti hérna inn póst, held að það sé þar síðasti, þar sem ég lýsti ánægju minni og gleði yfir að hafa loksins fundið bók til að lesa. Bókin um deild Q hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn. Með þeim Assad, Carl, Rose og Gordon. Eins og að hitta gamlan vin sagði ég..

Já, nei nei.

Er að berjast við þessa bók. Hún er svo ljót og erfið. Hryðjuverk, morð og morðingjar, nauðganir og nauðgarar, barnarán og barnaníðingar.

Mér finnst bara mjög erfitt að lesa þetta og núna er ég komin á vanskil með bókina á bókasafninu af því að hún er bara í 14 daga útleigu. Er komin á bls 454 eða eitthvað og skelfilegir hlutir hafa gerst. Er svona lengi með hana því ég vil ekki lesa þetta.

Hef ákveðið að þetta verði síðasta krimma bókin sem ég les. Allavegana í bili.

Ástæðan fyrir því að ég hef ekki sleppt því að klára hana og skilað henni er sú að ég klára alltaf það sem ég byrja á.

Með örfáum undantekningum.