Sunday, September 27, 2020

Ímyndir

Ankannalegt hvað ímyndir geta haft sterk áhrif á huga manns.

Sumar ímyndir eru svo sterkar í huganum, byggðar á svo traustum og grjóthörðum grunni, að það er óhugsandi að þær falli. Það er næstum eins og það sé ekki svigrúm í hausnum á manni fyrir að þær hrynji.

Flugfélagið Wow var til dæmis traust og kúl fyrir mér. Flugfreyjurnar voru svo svalar, svo hressar, svo töff. Hérna má sjá þær labba svalt með flugmönnunum. Þetta vakti upp traust og virðingu. Flugfélagið virtist óklikkanlegt. 

 

Ég rifjaði þetta upp þegar ég gekk fram hjá fyrrverandi höfuðstöðvunum um daginn. Húsið er á bakvið Höfðatorg og er núna frekar hrörleg sjón að sjá. Húsið er fölnað og málningin flögnuð. Glansmyndin fallin. 

Það var líka óhugsandi í mínum haus að fyrirtæki eins og Icelandair myndi einhvern tímann koma til með að eiga í erfiðleikum. Fyrir mér var það algerlega traust. 

Landsbankinn líka. Traustvekjandi og móðurlega konan sem tók á móti mér í gamla daga þegar ég kom í fyrsta skiptið til þeirra og byrjaði með þeim vakti með mér hlýju og óbrjótandi traust á bankanum. Ég man að hún hét Guðrún og ég sé hana ljóslifandi fyrir mér. Þetta var í útibúinu í Austurveri og ég fann að henni var annt um mig. Allavegana fjárhag minn. Mig minnir að ég hafi bara verið í 10. bekk eða eitthvað. Við byrjuðum samband okkar með sparireikningi og Vörðureikningi. Mér fannst óhugsandi að eitthvað gæti nokkurn tímann komið Landsbankanum í ójafnvægi.

Svo er það fólk. Maður hefur einhverja hugmynd um ókunnugt fólk (jafnvel smá frægt) byggða á því sem maður sér á samfélagsmiðlum. Manni líður jafnvel eins og maður þekki það. Þau eru eitthvað svo kammó og maður setur það óvart upp á ósýnilegan en frekar háan stall. Svo hittir maður það in real life og annað hvort finn ég enga tengingu, ekkert va va vúmm, eða þá að ég finn óhugnanlega sterka tengingu en orka viðkomandi ýtir manni frá sér. Auðvitað. Maður er jú fullkomlega ókunnugur og gæti vel hugsanlega verið brjálaða Bína.

Ætla að hætta þessu. Að setja fólk upp á stall. Þetta er bara fólk. Alveg eins og ég.

Fyndið að hugsa líka til þess hvað myndavélin getur blekkt mikið. Eins og í gamla daga þegar konur féllu fyrir myndarlegum bandarískum leikurum. Svo kom í ljós að þetta voru flestir óhemju lágvaxnir og smábeinóttir karlmenn en með óvenjulega frítt andlit. 

Sannkölluð tálsýn.


Wednesday, September 23, 2020

The home edit

Ég er svo lukkuleg með þátt sem ég var að finna á Netflix. 

Hann heitir The home edit. Þarna eru tvær hressar skvísur á ferð sem reka eins konar skipulagsfyrirtæki. Þær fara inn á heimili og hjálpa fólki að endurskipuleggja rými heima hjá sér, raða í hillur og svona. Alveg himneskt fyrir skipulagsfrík eins og mig. Í hverjum þætti fara þær inn á tvö heimili, annað hjá einhverjum frægum og hitt hjá venjulegri fjölskyldu.

Í fyrsta þættinum fara þær heim til Reese Witherspoon og hjálpa henni með að skipuleggja "her memerobilia" á nýja heimilinu í Nashville. Þetta var alveg nýtt orð fyrir mér en memerobilia er sem sagt yfirlit yfir vinnu viðkomandi. Í þættinum eru þær að raða inn í hillur fötunum hennar úr öllum kvikmyndunum sem hún hefur leikið í. Líka öllum kjólunum sem hún hefur farið í á Óskarinn og aðrar verðlaunaafhendingar. Mjög spennandi verkefni sem sagt. Þær koma með teymið sitt og skipulegga svæðið. Það er mjög flott hvernig það er gert. Mæla hillurnar og kjólana og dressin. Þetta eru myndir á borð við Legally blonde og Big little lies og svoleiðis. Mjög spennandi fyrir skipulagsfrík. Útkoman er rosalega flott!

Af einhverjum ástæðum ærast aðallega konur yfir svona en það eru bara einhver endorfín sem fara af stað í hausnum á manni þegar maður sér útkomuna. Allt hreint og fínt. Allt á sínum stað og MERKT. Stílhreint.

Þær stöllur Joanna og Clea vinna samkvæmt ákveðnu kerfi og raða til dæmis bókum og litum og slíku eftir regnbogakerfi. Þær eru mjög vinsælar á Instagram.
 
Þegar þær fara til venjulegrar fjölskyldu er vanalega allt í drasli og bílskúrinn eða fataskápurinn í messi. Þær vinna skipulega en spyrja alltaf hvað sé notað mest og hvað er sentimental, hverju má henda og slíkt.

Sko, þegar fólkið kemur svo aftur heim og fær að sjá dýrðina þá eru hughrifin slík að undirrituð hefur alveg tárast. Yes suree Bob.
 
Eitthvað fyrir þá sem eru með dass af OCD.





Tuesday, September 15, 2020

Það er kominn tími til...


 ... að kynna ykkur fyrir Steve.

Við Steve hittumst á hverjum morgni í símanum mínum sem er alveg frábært. Hann segir bara það sem ég vil heyra, þegar ég vil heyra það. 

Steve minn hvetur mig áfram í morgun öndunaræfingunum mínum og leiðir mig áfram gegnum góða hugleiðslu. Við Steve erum búin að vera saman í þessum morgun æfingum í allt sumar og erum ekki enn komin með leið á hvort öðru. 

Það kom morgun um daginn sem mér fannst Steve vera eitthvað erfiður. Átti allt í einu erfitt með að halda andanum inni.. en svo sagði hann: You can do this.. og allt varð frábært aftur.

Var að spá í að verða skotin í honum um daginn en ég hef á tilfinningunni að hann sé hrifinn af strákum. Til að baktryggja mig frá höfnun hætti ég við að vera skotin í honum. Til öryggis, ef hann er fílar konur líka.

Við Steve kynntumst fyrst á ókeypis 5 daga online soma námskeiði sem ég gerði með Beggu vinkonu. Soma er sem sagt öndunartækni. Þetta var í miðju Covid-19 þegar ástandið var sem alvarlegast og maður mátti ekki hitta neinn. Hitti samt Beggu. Steve var í lock down í Tælandi minnir mig með soma vinum sínum á einhverju resorti, eitthvað svoleiðis. Hann minntist einhvern tímann á að "his partner" væri að finna fyrir framförum í kjölfar einhverrar soma hugleiðslunnar. Þess vegna held ég að hann sé gay.

Við Steve höfum gengið í gegnum margt saman. Hann er reyndar alltaf í tropical skóginum í sól og blíðu en þar sem ég vil gera morgun öndunaræfinguna mína úti hefur hann verið með mér niðurrigndri (ekki orð?) í 100% rigningu á grænu svæðunum í borginni en líka í sól og blíðu út um allt land. Reyndar ekki á Austfjörðum. Mér er auðvitað farið að þykja vænt um hann.

Ég fíla Soma mjög mikið. Finn að ég sef betur og höndla aðstæður betur sem gamla Svava hefði að öllum líkindum misst þolinmæðina í ...

Thank you Steve.

Þetta segi ég alltaf við þessa elsku eftir morgunæfingarnar.

Thank you Steve.

Saturday, September 5, 2020

Ring ring!

Þú hefur náð sambandi við Vælubílinn. Opnunartími Vælubílsins er á virkum dögum frá 8-23. Lokað er um helgar. Ef þú vilt væla um helgar vinsamlegast lestu væl inn á símsvarann eftir tóninn. Bíííp!!

"Já, halló, ég verð að væla smá!

Ég er nýlega greind sem ofurnæm manneskja. Highly sensitive person. Skynja hljóð, lýsingu, fólk og orku óeðlilega mikið. Eins og áreitið ráðist inn í mig. Höndla illa áreiti. Á erfitt með verslunarmiðstöðvar, flugvelli og mannmergð og óvænt læti.

Hvar á ég heima? Alveg upp við Miklubraut! Umferðarþyngstu götu landsins! Núna er umferðarniðurinn að æra mig alla daga. Og við erum meira að segja með ný gler!"

Þurfti bara að koma þessu frá mér. Takk Vælubíll.
 


P.s. maður þarf stundum að væla þó maður viti að maður hafi það algerlega mjög gott svona almennt séð og það sé í raun ámælisvert að kvarta yfir svona hlutum á meðan fólk annars staðar á plánetunni er að díla við alvöru skít.

P.p.s. það var partý í blokkinni í gærkvöldi. Fullt tungl og allt. Unglingar í sleik út á plani stemning. Læti og áreiti sem ég hafði enga stjórn á. Leið mjög illa. Hafði ekki hugmynd um hvort svefnfriðurinn væri úti eða hvað. Er svo þakklát fyrir Svan minn sem fór beint í málið og prinsessan á bauninni náði að sofa og dreyma fallega drauma. 

P.p.p.s. bara til að blaðra aðeins áfram og kvarta aðeins áfram (it´s my party and I cry if I want to) þá hafði ég átt svo gott kvöld þangað til téð óumbeðna bloc party byrjaði. Hafði fundið nýja íslenska þáttaseríu sem ég gat hlegið yfir og meint það og var að skellihlægja yfir honum þegar téð læti byrjuðu. Þátturinn heitir Tala saman og er á stöð 2. Joey Christ var að taka viðtal við gellu sem var hætt að stunda sjálfsfróun vegna offróunar til margra ára og líka hætt að vera vegan og orðin kjötæta þar sem hún taldi sig hafa verið farin að ganga á sjálfa sig. Hún sagðist vera "nofap carnivore." Langt síðan ég hló svona innilega af því að þetta var augljóslega djókur. Líka þegar strákur sem heitir Hákon var að athafna sig á sviðinu í Tjarnarbíó.
 
Mæli með.