Friday, August 26, 2022

Kæra dagbók!

Skeið breytinga herjar á líkama og sál.

Hefði átt að byrja á blæðingum fyrir 2 vikum síðan. Er orðið heitt, sérstaklega á kvöldin. Ekki beint svona hot flashes en eitthvað hot er það. Samt ekki hot hot sem væri nú óskandi. Svefninn er skrýtinn þegar ég leyfi honum að koma ómeðhöndluðum. Ligg þá bara án þess að hann komi. Dagsformið er eins mismunandi og litrófið og engin leið að sjá líðan fyrirfram. Var allt önnur manneskja á miðvikudaginn en ég var í gær eða í dag.

Omg. Send help!

P.s. Það kemur reyndar inn í að ég byrjaði að drekka kaffi aftur í vikunni. Skil ekki hvað ég er næm fyrir þessum vökva og skynja áhrifin sterkt. Fæ mér ekki nema sirka þrjá sopa þegar ég vakna. Kostirnir eru að ég hef meiri orku út daginn og vakna meira og er meira til í hlutina. Byrjaði á þessu eftir að ég sá fagmannlegan mann á tiktok segja að svart kaffi væri grennandi. Gallarnir eru að hugsanirnar (og þar með ég sjálf) verða frekar tættar (scattered) og út um allt og ég fer að haga mér og líða eins og ég sé með athyglisbrest. Fæ svona crazy dumb eyes sem fer mér ekki vel.

P.p.s. það er mjög skrýtið hvernig samhæfing líkamans er orðin off. Get ekki dansað töff lengur. Ekki séns að ég þori á rafhjól. Er orðin eldhrædd og bílhrædd með endæmum. Það er ekki eins og sé komin á áttræðisaldurinn! (þó mér líði þannig.)) Tengi óeðlilega mikið við þáttinn Grace and Frankie á Netflix. Það er feel goodið mitt núna að horfa á þessa þætti.

Bara svo skrýtið að vera á þessum stað þegar bestu vinkonur mínar eru að sofa hjá karlmönnum undir þrítugu!

Allavega. Er búin að vera svo þakklát fyrir krakkana í vikunni. Óli er búinn að koma tvisvar og Emilía líka. Þakklát fyrir félagsskapinn því það verður sífellt flóknara að hitta vinkonur mínar..


Friday, August 12, 2022

Skoðanabræður...

... er podcast sem ég hef verið að hlusta á undanfarið.

Fyrst voru þeir bræður Bergþór og Snorri Másson með það en núna eru Beggi (Bergþór) og Joey Christ með það.

Mér finnst þeir skemmtilegir. Fíla margt sem þeir eru að tala um en mest elska ég þegar þeir tala um hvernig þeim líður. Hef ekki reynslu af því að heyra karlmann tala um líðan sína og tilfinningar svo að þetta er mikil veisla fyrir mig. 

Þeir fíla rapp og ég er farin að hlusta núna smá á rapp, aðallega á Birni sem mér finnst æði.

Þeir eru á patreon appinu og skipta þáttunum upp þannig að sumir þeirra eru læstir. En maður getur hlustað á nokkra mínútna tease á Spotify. Í lokin er maður skammaður fyrir að styrkja þá ekki á patreon.

Eftir að hafa hlustað á fullt af þáttum og svona tease og verið skömmuð oft fyrir að vera ekki að styrkja þá þá bara gerði ég einmitt það. Fór inn á patreon síðuna og er núna að styrkja þá. Nafnið mitt er lesið upp í hverjum þætti núna:D

Fæ eitthvað út úr því.



Friday, August 5, 2022

Haustið

Mikið hlakka ég til haustsins.

Er komin með nóg af losaralegum dögum síðsumarsins og þrái stöðugleika og rútínu.

Það er sko ekki búinn að vera stöðugleiki og rútína hér á bæ um þessar mundir nema það að Stefán er í unglingavinnunni á morgnana. 

Sem betur fer hafa vinkonur verið hér og þar á stangli fyrir Guðrúnu Höllu sem hefur bjargað vikunni.

Ég er komin með aðalmarkmið fyrir haustönn og ætla að vinna að því.

Þetta pistill var óður til haustsins.