Friday, November 25, 2022

Þægindaramminn

Blessaður. 

Er búin að vera rammföst í þægindarammanum undanfarin ár. Virkilega notalegt ef þú spyrð mig.

Upp á síðkastið er mig samt búið að langa til að gera eitthvað annað með. Einhverja áskorun. Eitthvað annað en nuddið.

Alheimurinn kom með svarið í gegnum gamla vinkonu. Ekki að hún sé gömul. Meina meira svona "old friend."

Kæri mentorinn minn frá Hreint árunum bað mig um að taka við smá aukavinnu en hún er að flytja upp úr bænum. 

Auðvitað! Sagði ég. Enda hentar þetta einstaklega vel með nuddinu. Þetta eru fjórir dagar í desember og er kennsla í ræstingum upp í Mími.

Mér finnst þetta frábær áskorun. Nemendurnir er starfsmenn á hjúkrunarheimilum og ég er að reyna að fatta þetta allt saman.

Í mér býr lítill fullkomnunarsinni sem rís nú upp á yfirborðið og er reyndar að vekja smá kvíðann minn.

En hey, ykkar kona rúllar þessu upp. Engar áhyggjur. 

Namaste.


Thursday, November 17, 2022

Óður til konu

Hún býr í sömu blokk og ég. 

Margt er hægt að lesa úr fasi fólks; hvernig það labbar og ber sig.

Ég sé út um eldhúsgluggann hvernig hún labbar rösklega í bílinn og svo úr bílnum þegar hún kemur heim. 

Það er ekkert hik, hún labbar rösklega. Ekkert kjaftæði. 

Mest elska ég þegar bíllinn er varla stoppaður í stæðinu. Hún er komin út úr honum og búin að læsa. 

Ég vildi að ég væri meira eins og hún.

Sjálf hangi ég í símanum í bílnum þegar ég er búin ad leggja heima. Nenni ekki inn strax. Labba svo, allt annað en rösklega, því ég þarf náttúrulega að yfirfara bílinn. Athuga hvort allar rúður séu uppi og hvort bíllinn sé í handbremsu og svo líka hvernig bílnum líður í stæðinu. Myndi aldrei getað skilið við hann ef dekkin væru upp á kanti eða eitthvað svoleiðis. Nú, svo tekur við að læsa bílnum. Þarf að horfa á ljósin blikka læst. Nokkrum sinnum.

Hún er hjúkrunarfræðingur. Auðvitað. Elska hjúkrunarfræðinga. Þetta er no bullshit fólk. Áfram gakk af einbeitingu, áræðni og síðast en ekki síst brosi og manngæsku.

Ljósmóðirin sem tók á móti Guðrúnu Höllu var svona. Ung, áræðin og einbeitt kona. 

Blessi ykkur.



Friday, November 11, 2022

Í blíðu og stríðu.

Einn er maðurinn veikur
en með öðrum sterkur. 
Einmana huga þrúgar
þarflaus kvíði.
Ef vinur í hjarta þitt horfir
og heilræði gefur
verður hugurinn heiður
sem himinn bjartur
og sorgarský
sópast burt.
J.O. Herder

Það er afskaplega gott að vera með lífsförunaut. Þá stendur maður ekki einn þegar lífið slær mann utan undir.

Svanurinn minn er búinn að vera mikið veikur. Það var á dramatískum þriðjudagsmorgni í vikunni sem ykkar kona þrammaði út í Heiðmörk með trommuna og bað fyrir makanum sínum.

Þetta var morguninn sem hann fór á bráðamóttökuna í fyrsta skiptið í vikunni.

Settist niður við ánna og sá svan. Hann var frekar niðurlútur og laskaður. Leit lengra til hægri og þar var annar svanur sem flaut í burtu frá hinum svaninum. Þessum laskaða.

Skiljiði, ekki svona eins og þegar tveir svanir, par, fljóta hamingjusamir og hnarreistir fram veginn.

Á meðan mér er persónulega búið að líða dásamlega í vikunni þá hangir þetta yfir.

Bjóst allt eins við einhverri 112 senu hérna á heimilinu í nótt eða í morgun.

En maðurinn lítur aðeins betur út og blóðprufurnar líta betur út. Hann sefur ekki á nóttunni. Læknarnir vita ekkert hvað er að. Hann er búinn með þrjá sýklalyfjakúra. Er í öngum mínum.

En ég held samt að þetta sé allt að koma.

Namaste.



Friday, November 4, 2022

blur

Næsti geisladiskur í röðinni í spilarann í bílnum var blur diskur.

Kann alla textana og elska þá svo mikið að ég fór að grenja. Elska Damon Albarn líka svo mikið að ég fór að skæla sirka tvisvar í bílnum. Byrjaði reyndar á túr í gær svo kannski var þetta fyrirtíðaspenna. Elska hann samt sko.

Tónlist hefur svo mikil áhrif. Þegar ég hlusta á blur tekur það mig aftur í níuna og maðurinn syngur sársaukann minn og líðan þá.

Annars var vikan frekar erfið vegna veikinda og meiðsla. Mér leið samt í gær allt í einu miklu betur. Eins og það væri allt saman búið. Eins og hendin væri allt einu OK.

Dagdreymir núna um að byrja aftur að æfa. Lyfta. Rétt í þetta skipti!

Namaste.