Thursday, February 23, 2023

Meðvirkni

Undanfarið hef ég farið offari á Storytel. 

Uppgötvaði Goodreads appið i kringum áramótin eftir að hafa hlustað á rithöfund tala um að hafa tekið umsögn frá lesanda þar það nærri sér að hún hafði samband við viðkomandi. 

Þarna fann okkar kona loksins metnað og er þegar búin að setja inn 16 bækur á "bókahilluna" sína og skrifa umsagnir líka. Maður er auðvitað afkastameiri þegar maður hlustar bara;)

Allavega. 

Lenti á svo leiðinlegri bók að ég varð leið. Stundum lækkaði ég bara í hljóðinu til að þurfa ekki að hlusta í smá stund.

Höfundurinn er íslensk kona svo ég var alveg í vandræðum hvað ég ætlaði að skrifa í umsögninni. Þetta var fjölskyldudrama. 

Er sem sagt meðvirk.

Sá beinskeyttar umsagnir frá samlöndum okkar. Allt konur sem komu fram undir fullu nafni og mynd og sögðu hreint út að bókin hefði verið alger tímasóun; þunnir karakterar og söguþráðurinn hundleiðinlegur.

Mér fannst það líka en sagði bara eitthvað á þá leið að ég sæi eftir lestur bókarinnar að ég er heppin með mína fjölskyldu. 

Læt ekki uppi hver höfundurinn er þó að:

a) hún hafi næstum því keyrt á mig fyrir nokkrum árum þegar ég var að labba niðri bæ með barnavagn. Mér brá mjög mikið og var lengi að jafna mig beint á eftir. Sólin byrgði henni sýn.

b) ég var að sjá frétt þar sem sonur hennar fer ekki fögrum orðum um ákveðið fjölskyldumál tengt henni.

Meðvirkni? Það er ég.

P.s. Af hverju hætti ég ekki bara að lesa bókina þegar hún náði mér ekki?

Ég er með einhverja óútreiknanlega áráttu fyrir að klára alltaf það sem ég byrja á, hence, tvær háskólagráður teknar samfellt á réttum tíma með engum hléum.

Monday, February 13, 2023

Twitter

Skil ekki hvað ég er að gera þarna. Hvað vil ég upp á dekk? Af hverju kíki ég núna fyrst á Twitter? 

Það er ekki eins og ég fái like eða einhverjum sé sama.

Þetta er eins og að vera í einhliða sambandi þar sem einn aðilinn hefur áhuga en hinum er drull.

Hvað er manneskja eins og ég að gera þarna? Er þetta einmanaleiki? 

Er ég háð símanum? 

Omg. Why? Af hverju Svava? Af hverju. 

Skrifað morguninn eftir:

Ok. Slay. Þrjú like frá þremur einstaklingum. Oh well, held áfram. 

Samkvæmt úrvinnslu næturinnar er þetta líklegast löngunin til að tilheyra. Vinn ein auðvitað..

P.s. mér líður svo vel hérna á Tenerife. Þegar ég lít tilbaka átta ég mig á því að ég er búin að þjást af langdregni mjög slæmri kvefpest heima á Íslandi í marga mánuði. Vaknaði mjög kvefuð, fór að sofa mjög kvefuð. Finnst eins og ég hafi ekki fengið almennilegt súrefni síðustu vikur fyrir brottför. Get ekki líst með orðum hversu gott það er að næsespray er ekki besti vinur minn lengur. Hef þennan vin minn á náttborðinu en þarf hann ekki. 

Jeij!

Í fyrsta skiptið á þessu ári:

Pain body: 0%

Verkefni vikunnar: tana á Tene 

Quote vikunnar: Lífið er 10% það sem gerist fyrir þig og 90% hvernig þú bregst við.