Monday, March 31, 2008

Mother of all bitches!!

Ég spring strax á limminu og geri innhverfa en ekki úthverfa færslu. Enda er ég kona en ekki karl og það liggur mikið við. Ég þarf að tjá mig...

Það sem átti ekki að geta gerst gerðist. Fasteignasalinn minn er búinn að segja við mig í um mánuð núna að það séu 99% líkur á því að íbúðin mín sé seld. Kaupendurnir voru búnir að skrifa undir gagntilboð og allt að gerast og ég búin að gera kauptilboð í aðra íbúð sem var samþykkt. Síðan kemur bið og vesen og jadijadija og svo hringir fasteignasalinn í dag og tilkynnir mér að þau (kaupendurnir) séu hætt við að kaupa íbúðina mína. Þetta er að hans sögn ólöglegt hjá þeim og afskaplega siðlaust líka. Þau eru búin að draga mig og seljendurnar að íbúðinni sem ég ætlaði að kaupa á asnaeyrunum í þvílíkt langan tíma. Svo gerist þetta!

Ég kenni svartsýninni sem er í gangi í samfélaginu núna um. Svo virðist sem einhvers konar bráðsmitandi móðursýki sé í gangi núna og að fólk sé rosalega hrætt við verðbólgu og yfirvofandi kreppu. Og það er ekki eins og fjölmiðlarnir séu að hjálpa.. Maður flettir blaði og samkvæmt fyrirsögnum er hver dagur öðrum svartari í íslensku efnahagslífi og allt virðist vera að fara til fjandans. Í kjölfarið verður fólk ofboðslega varfærið og hættir t.d. við að kaupa íbúð (af því fjölmiðlarnir mæla gegn því).

Sko, ef maður hugsar svart þá gerist svart. It's as simple as that. Af hverju átta fjölmiðlar sig ekki á þessu og fara að verða bjartsýnir?????

Mother of crap.

Jæja, þá er bara að jafna sig á þessu áfalli og reyna að skipuleggja íbúðina þannig að barnarúm, kommóða og barnadót komist fyrir. Við Svanur verðum víst næstu viðskiptavinir geymslur.is þar sem við verðum að koma dótinu okkar fyrir einhvers staðar..

Það má alveg einhver hringja í mig og segja mér brandara núna og hressa mig smá við.. Bara svona ef þið kunnið einhvern pottþéttan...

Ok, næsta færsla verður úthverf!

Later.

Thursday, March 27, 2008

Uppgötvun

Ég hef gert mikilvæga (?) uppgötvun.

Strákar gera úthverfar bloggfærslur og stelpur gera innhverfar bloggfærslur.

Why?? Mér finnst þetta sýna fram á mikilsverðan mun á kynjunum og skýra að miklu leiti af hverju karlmenn eru frá Venus og konur frá Mars. Eða var það öfugt? Allaveganna, karlar hugsa bara allt öðruvísi!

Í ljósi þessa ætla ég að gera tilraun og reyna að hugsa á næstunni eins og karlmaður (úthverfur) en ekki kona (innhverf). Næstu blogg mín verða því úthverfar færslur.

Ég meina hafi þið einhvern tímann rekist á karlkyns bloggara sem er að tala um sjálfan sig og sitt einkalíf?

Saturday, March 22, 2008

Úthverf færsla


Oft fyllist ég þakklæti yfir lífsgæðum mínum og fyrir að hafa fæðst á Íslandi. Það er ansi auðvelt að gleyma hvað við Íslendingar höfum það gott hérna norður í Atlantshafi fjarri stríðshörmungum, þjáningum og mannvonsku heimsins.

Einhvern tímann skrifaði ég ritgerð um Tíbet. Ég var reyndar að skrifa ritgerð um Dalai Lama, trúarlegan leiðtoga Tíbet og ég man núna að þetta var fyrir stjórnendakúrs í HÍ sem fjallaði um leiðtogahæfni. Anyways, það sem ég lærði um Tíbet situr enn í mér og ég man að það tók verulega á mig bara að lesa um þau mannréttindabrot sem framin hafa verið af Kínverjum í Tíbet. Ég held að ég hafi aldrei fræðst um eins miklar hörmungar á allri minni ævi:( Það er eins og oft vill verða að mannréttindabrot eins og þau sem þarna hafa átt sér stað í gegnum tíðina ná seint eyrum alþjóðasamfélagsins sem getur lítið aðhafst hvort sem er.

Tíbet virðist mér vera friðsæl þjóð. Af einhverjum ástæðum hafa Kínverjar samt ráðist á tíbesku þjóðina og níðst á henni oft og mörgum sinnum og gert svívirðilega hluti í þeirri viðleitni að brjóta þetta friðsæla þjóðfélag niður og sundra. Þetta hafa þeir m.a. gert með því að ráðast inn á heimili og fjölskyldur Tíbets og þvingað fjölskyldur til að drepa og nauðga innbyrðis. Þeir hafa t.d. þvingað börn til að myrða foreldra sína og látið foreldra nauðga börnum sínum og því um líkt. Þannig ætluðu þeir að brjóta niður samfélagið innan frá með því að sundra innviðum þess.

Vegna þess að þessi vitneskja um Tíbet situr í mér er ég forvitin um hvað er að gerast núna í samskiptum Kínverja og Tíbet. Ég sé í fréttunum að það er eitthvað að gerjast í þessum málum og Dalai Lama er jafnvel að íhuga að segja af sér. Veit einhvern eitthvað meira um þetta?

Allaveganna, þetta er eitthvað sem mig langar til að fræðast um..

Later.

Wednesday, March 19, 2008

Vinnan

Eftir páskafrí verð ég stjórnandi í rúmlega viku. Það verður heldur betur athyglisvert. Ég tekst á við þetta hlutverk alls óhrædd. Yfirmaður minn er farinn til Kanaríeyja í much-needed break í tvær vikur og ég stjórna slottinu á meðan. Neðstaland, here I come!! Annars er frekar lítið að frétta. Er að fylla út umsóknina um fæðingarorlof núna. Verð að viðurkenna að mér finnst dáldið lítið að móðir fái aðeins 6 mánuði í fæðingarorlof. Ok, mér finnst það FÁRÁNLEGT réttara sagt. Sérstaklega með tilliti til aðstæðna í dagvistunarmálum. Leikskólinn tekur ekki við börnum yngri en 1 og 1/2 árs held ég og það er víst mjög erfitt að finna dagmömmu á þessum tímum, sérstaklega í Hlíðunum. Af hverju er ekki gert eitthvað í þessu? Ég bara neita að trúa að það sé svona erfitt. Af hverju er t.d. dagmæðrum ekki séð fyrir betri kjörum?? Eða af hverju er ekki einfaldlega hafðir sérstakir leikskólar fyrir svona ung börn eða þeim hleypt fyrr inn á leikskólana? Stjórnmálamenn eiga að redda svona málum, ég meina why o why do we pay taxes?? Talandi um það, þá skilaði ég skattaskýrslunni í gær. Mér fannst það mjög gaman af því að ég á eftir að fá fullt af pening í ágúst! Vei!!!! Stundum borgar sig að eiga ekki allt of mikinn pening:) Anyways, heiti því hér með að næsta bloggfærsla verði úthverf. Þ.e.a.s. ég ætla ekki að tala um mig (innhverf) heldur annað (úthverf).

Friday, March 14, 2008

Vinnan

Eins og faðir minn segir jafnan (eða það er hægt að sum it up í) þá göfgar vinnan manninn. Undirrituð er nú ekki alltaf sammála pabba sínum (það væri leiðinlegt) en sér alveg hvað hann meinar. Skoðun mín varðandi vinnu er alla jafnan að passa verður upp á að vinnan gleypi ei manninn. Annars er nú oftast gaman að vinna, nema þegar maður er þreyttur..

Anyways, hérna er það sem ég er að gera í vinnunni akkúrat núna:

http://www.tonabaer.is/Nedstaland

Það er nú ágætt að hafa lært sitthvað um heimasíðugerð í vinnunni í frístundaheimilinu:-)

Allaveganna, það liggur ákveðin þoka yfir fasteignamálunum hjá mér um þessar stundir. Það getur verið flókið að búa í blokk sem liggur undir viðgerðum og er án eignaskiptasamnings. Ég er að vona að þetta skýrist samt allt saman sem allra fyrst.

Later.

Wednesday, March 12, 2008

Silly me:/


Er á smá bömmer.

Asnaðist í ljós í hádeginu í gær sem varð algerlega óvart að tvöföldum turbotíma. Shit. Er skaðbrennd og líður eins og asna. Óléttar konar eiga EKKI að fara í ljós. Sérstaklega ekki í tvöfaldan turbotíma. OMG. Bumban er brennd. Búin að hafa áhyggjur í allan dag. Ljósmóðirinn segir að þetta sé allt í lagi. Líður aðeins betur..

En man o man, I feel like a fool:/

Later.

Monday, March 10, 2008

The munchies


Hvað er verið að gera manni með því að hafa páskaegg til sölu í búðum svona löngu áður en páskarnir koma? Ég hef haft greiðan aðgang að páskaeggjum í svona þrjár vikur núna og man o man viljastyrkurinn sem maður verður að ráða yfir til að go ekki nuts skiljiði?!

Elska Nóa Siríus páskaegg númer 2. Mér finnst það æði:) Vil enga aðra tegund og helst enga aðra stærð. Þetta er reyndar allt undir control hjá mér því að maður getur eiginlega ekki borðað mikið meira súkkulaði heldur en páskaegg númer 2. Eða allaveganna ekki ég..

Anyways, vildi bara deila þessu með ykkur. Mér finnst asnalegt að páskaegg séu komin í búðir mánuði fyrir páska því þá er maður búinn að fá nóg af páskaeggjum þegar páskarnir loksins koma!

Hvað er málið?

Tuesday, March 4, 2008

OMG



Búin að kaupa íbúð. Eða réttara sagt, gerði tilboð í íbúð og þau samþykktu. Kaupsamningur fer síðan fram samfara undirskrift á kaupsamningi á íbúðinni minni. Myndin er af útsýninu úr henni, tekið af svölunum. Þarna er leikskólinn hans Óla beint fyrir neðan:)

Allt að gerast. Flytjum líklegast í kringum 1. maí (á að eiga 16. maí). Eins gott að bumbulingur fari ekki að detta í hug að koma snemma!

Anyways, íbúðin er nú bara hérna í næstu blokk þannig að ég (við) leitum nú ekki langt yfir skammt. Bogahlíð 22 heitir hún heillin og er á þriðju hæð. Hérna er linkur inn á auglýsinguna á íbúinni á netinu en hún verður nú kannski fljót að hverfa af fasteignavefnum úr þessu..

http://mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=288516


Later

Saturday, March 1, 2008

Phaha!


Eftir farandi frétt er á mbl.is i dag:

Hafði mök við dömureiðhjól

Sænskur karlmaður hefur bæst í hóp þeirra kynlegu kvista sem orðið hafa uppvísir að því að misnota reiðhjól kynferðislega.

Lögreglan í Östersund hóf rannsókn málsins árið 2006, þegar tilkynningar bárust um fjölda dömureiðhjóla með skorin dekk. Jafnframt fannst sæði á hnökkum margra hjólanna.

Maðurinn neitaði í byrjun sök, en DNA-rannsókn á hjólunum leiddi hið sanna í ljós.

Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um hvernig karlmaður getur haft mök við hjól.. Skar hann þá gat á afturdekkið og fróaði sér í því eða??

pha!