
Búin að kaupa íbúð. Eða réttara sagt, gerði tilboð í íbúð og þau samþykktu. Kaupsamningur fer síðan fram samfara undirskrift á kaupsamningi á íbúðinni minni. Myndin er af útsýninu úr henni, tekið af svölunum. Þarna er leikskólinn hans Óla beint fyrir neðan:)
Allt að gerast. Flytjum líklegast í kringum 1. maí (á að eiga 16. maí). Eins gott að bumbulingur fari ekki að detta í hug að koma snemma!
Anyways, íbúðin er nú bara hérna í næstu blokk þannig að ég (við) leitum nú ekki langt yfir skammt. Bogahlíð 22 heitir hún heillin og er á þriðju hæð. Hérna er linkur inn á auglýsinguna á íbúinni á netinu en hún verður nú kannski fljót að hverfa af fasteignavefnum úr þessu..
http://mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=288516
Later
2 comments:
Til hamingju öll sömul, hlakka til að fá kaffi á svölunum og njóta útsýnisins.
Takk elskan, sömuleiðis:)
Post a Comment