Friday, July 31, 2026

Ég er ...

 ... Brynhildur.

Man alltaf eftir þessum fóstbræðraskets þar sem hin þýska Brunhildur lætur allt gamalt fólk deyja (eða teygja.) Hló svo mikið þegar ég sá hann fyrst. Aldrei hefði mig grunað að ég ætti eftir að verða Brynhildur og láta allt gamalt fólk teygja.

En jú, þessi vika var fyrsta vikan mín í sjúkraþjálfuninni á Grund. Eins mikið og mér finnst cool að vinna í 101 Reykjavík þá er það smá höfuðverkur hvernig ég kemst í vinnuna (en auðvitað, ég ofhugsa allt.) Er þakklát henni Guðrúnu yfirmanni fyrir að ráða mig og hafa trú á mér. Það er þónokkuð að gera í vinnunni, það er aðallega ungt fólk að vinna þarna eins og er og allir eru að, alltaf. Ég smá elska það því ég hef svo gott af því. Á svo sannarlega eftir að gera mitt allra besta.

Er reyndar þreytt eftir fyrstu vikuna en það var jú viðbúið. Er að elska að fá heitan mat í hádeginu í vinnunni og er bara smá leið yfir að þurfa hugsanlega að elda smá í kvöld. 

Finnst skrýtið að það sé komin verslunamannahelgi. Er engan veginn tilbúin í ferðalag enda vorum við í ferðalagi síðustu helgi. Er farin að ofhugsa það því Svanur yfir höfuð veldur mér mikilli óvissu. Mikið svona spontant. Þoli ekki spontant. Vil vita nákvæmlega hvað ég er að fara gera og hvar og hvernig og klukkan hvað. Síðustu helgi datt upp úr honum á laugardeginum eftir að hafa sofið út hvort við ættum ekki að kíkja í Þórsmörk. 

Þetta veldur mér miklu hugarangri því ég veit að hann vill vera á kvöldvöku þarna:

Komumst við örugglega þangað? (straumharðar ár valda mér hugarangri)

Komumst við tilbaka?

Hvað í ósköpunum með kvöldmat og vistir, vatn og svoleiðis. 

Hvenær myndi kvöldmaturinn sem við erum ekki með vera í Þórsmörk?!

Og klukkan hvað?!

Þetta var smá innsýn í kvíðaheilann minn sem vaknaði með þessar hugsanir. Er bara ekkert að meika að fara eiginlega yfir höfuð. Yfirfull tjaldsvæði hafa aldrei nokkurn tímann heillað mig.

Er komin af sumarbústaðafólki.

Verkefni vikunnar var að byrja í nýrri vinnu.

Hápunktur vikunnar var að byrja í nýju djobbi og fíla það og líða vel.

Lágpunktur vikunnar var að styrkja appið Parka óþarflega mikið.

Namaste.

Friday, July 24, 2026

ládeyða

 er það ekki mannskepnunni eðlislægt að vera með rútínu?

Eitthvað fast sem gerist á hverjum degi. Hlakka til dæmis til að skólinn hjá Guðrúnu Höllu byrji. Veit að hún gerir það ekki en það er bara erfitt að hanga svona mikið. Sérstaklega í rigningunni sem var samfleytt í marga marga daga. Við erum aðallega búnar að hanga þessa vikuna. Það er alveg næs auðvitað. En það eru margar vikur í að skólinn byrji. Allar vinkonur hennar eru í ferðalögum og ... þetta er alltaf rosalega langt sumarfrí. Allt í gangi í fyrra hlutanum en núna er ekkert námskeið eftir og ef það er þurfa vinkonur að koma með. 

Það verða gífurlega mikil viðbrigði þegar ég byrja að vinna í næstu viku. Vona svo innilega að það gangi vel. Það verður mikill viðsnúningur í mínu lífi og ég verð bara að sjá til með nuddið. Það fer niður í einn dag í viku og hugsanlega laugardaga. 

Mínar vinkonur eru líka í ferðalögum. Skrýtið að vera í hálftómri borg. Við erum líklegast að fara um helgina eitthvað út á land. Alltaf hálfgerð óvissa þegar maður er með hjólhýsi og spontaneus mann eins og Svan. 

Verkefni vikunnar var aftur ekkert sérstakt. Við Guðrún Halla erum í fríi. Ég býst við að markmiðin komi með haustinu. Ætli verkefni vikunnar hafi ekki verið að líða vel og líða betur. Þáttur í því að fara í yogatíma hjá Klöru í Yogashala á þriðjudaginn. Almáttugur. Þessi tími var allt. Stelpan er snillingur. Líður núna vel í bakinu og sef eins og engill.  

Hápunktur vikunnar var eiginlega að njóta með Guðrúnu Höllu. Þetta var síðasta vikan fyrir nýja vinnu og ætli okkur hafi ekki tekist að njóta vel sumarfrísins saman. Í gær var eðalstund á Hliðsnesi á ættaróðalinu. Mitt elsta og mitt yngsta og sonarsonur að spila saman og spjalla saman. 

Lágpunktur vikunnar var kannski bara aðstaðan á Suðurlandsbrautinni. Það er ekki bara það að loftið verði þyngra á sumrin þar heldur eru búnir að vera iðnaðarmenn að vinna á hæðinni undanfarna mánuði og ég er orðin rosalega þreytt á því að vera með nuddþega og eitthvað gerist í sambandi við framkvæmdirnar á hæðinni. Það var sem sagt verið að setja upp eldvarnarhurð við hliðina á kaffiaðstöðunni til að bæta brunavarnir. Hún fór einmitt af stað í miðju nuddi á þriðjudaginn. Brunabjallan. Lengi og þrisvar. Nuddþeginn var orðin órólegur eins og gefa ber að skilja. 

Glatað.

Namaste.


Friday, July 17, 2026

Hvalfjörður ...

... hefur verið mér nærri undanfarna viku. 

Bæði var Guðrún Halla í Vindáshlíð og svo var Óli og Katrín og Styrmir líka í bústað þar í vikunni. Við Svanur fórum svo og löbbuðum Glym á sunnudaginn. 

Ég gisti í Hvalfirðinum í fyrrinótt og þótt það var rigning var samt flott og gott að vera þarna. Minnti mig á Breiðafjörð. Gott að Guðrún Halla fílar óvæntar uppákomur (ég geri það ekki) því hún samþykkti að koma með mér nokkurn veginn beint eftir að hún kom úr Vindáshlíð.

Er að undirbúa mig andlega fyrir að Styrmir Orri (3ja ára) gisti hér um helgina. Verð að viðurkenna að ég er kvíðin. Hann sýnir mér ekki áhuga og ég veit að hann á eftir að gráta mikið. Hann vill helst vera hjá foreldrum sínum auðvitað. Er búin að fyrirskipa all hands on deck og krakkarnir hjálpa mér. Vona að það dugi til. Vona að hann sofi vel. 

Verkefni vikunnar var ekkert sérstakt. Of mikið rót á öllu svona um hásumar þegar allir eru út um allt. Finn að Styrmir saknar rútínunnar sinnar (leikskólinn í sumarfríi.) Ég geri það líka.

Hápunktur vikunnar var klárlega að gista með fjölskyldunni í Hvalfirði. Hafði gott af því. Líður alltaf betur þegar ég fer út af heimilinu.

Lágpunktur vikunnar var að við Guðrún Halla lentum í aftanákeyrslu þegar við vorum að leggja af stað í Hvalfjörðinn. Bara á Miklabrautinni á ljósunum. Ökumaðurinn sagðist hafa got distracted og bombaði aftan á okkur. Var í sjokki allan þann dag og að reyna að átta mig á hvort ég hefði fengið högg eða eitthvað alveg þangað til núna. Það er stundum gott að vera á Pathfinder jeppa. Sást lítið á okkar bíl þó það þurfi víst að skipta um stuðara en hinn bíllinn leit mun verr út. 

Mér brá svakalega. Við Guðrún Halla vorum að syngja Tvær úr tungunum og rosa stuð og gaman. Svo bara bomm. Ég var orðin svo sein. Ætlaði að vera löngu farin úr bænum. Hafði engan tíma í þetta.

Ef bara allir ökumenn hefðu fulla athygli á því sem þeir eru að gera at all times - þá væri það frábært.

Namaste. 

P.s. sá fallegan foss og læk:)



Friday, July 10, 2026

Ái

 Afsakið,

mér er illt í kálfanum (vöðvaverkir) og rófubeinið og spjaldhryggurinn og mjaðmargrindin er ekki alveg á réttum stað. En það lagast. Það gerir það alltaf. 

Er á hálfgerðum bömmer að geta ekki bara klifrað næsta fjall og spriklað meira en ég geri. Það er 10.júlí og mér líður eins og ég hafi ekki hitt náttúruna, séð foss eða lækjarnið upp á fjalli. Er með mikið FOMO varðandi það. Gott að það er náttúran en ekki eitthvað annað. 

Vikan var viðburðarrík með meiru. Ég kynntist Svíþjóð betur, eignaðist vini (allavega Facebook vini) og myndaði tengsl. Hitti Sunnevu vinkonu og dýpkaði tengslin við hana. Er mjög ánægð með að hafa hitt hana og dóttur hennar og kærasta dóttur hennar sem ég man ekki hvort heitir Axel eða Alex, manninn hennar, Ulv og son hans. Já og tvær kisur sem eru stórkostlegir karakterar. 

Ég var á viðburðarríkri kvöldvakt með stelpunum (33 sirka talsins) í skólanum þar sem þær gistu þar sem ég kynntist dásamlegri perlu sem heitir Randi og er listakona. Maðurinn hennar Ingólfur er ágætur líka. Við Randi komumst að því að við eigum báðar ættir að rekja til Noregs og á afskaplega svipaðan hátt. 

Komst að því að Svíar tala yfirleitt bara sænsku. Þeir eru ekki að skipta yfir í ensku eins og við gerum og þegar þeir borga inn á lánin sín þá actually lækka þau. Þeir sjá það tölurnar minnka. Merkilegt. 

Hápunktur vikunnar var klárlega að hitta Sunnevu mína í Gautaborg og að mynda öll þessi tengsl. 

Lágpunktur vikunnar var að koma heim. Erfitt á marga vegu. Ég var strax öskrandi í bílnum í gær. Það er annað sem Svíarnir gera, þeir eru með svo fína umferðarmenningu. Ekkert stress, bara ekki neitt. Mikill munur frá þessari íslensku þar sem ... þetta er bara svo mikið stress. 

Verkefni vikunnar var nú bara að koma okkur heim. 

Hej do.  


Namaste.

Friday, July 3, 2026

Skeyti

Er í GOTHenburg. Stopp. Þreytt. Stopp. Samt mjög gaman og er að kynnast nýju fólki. Stopp. Rúmlega 30 13 ára stelpur saman í sal er not for the weak. Stopp. Í morgun unnu þær fyrsta leikinn sinn. Það var gaman. Stopp. Í háloftunum eru nú sonur minn og maður. Ekki í sömu vélinni. Stopp.

Namaste