Friday, November 6, 2026

Grund er víst hipp og kúl

 Elska svo mikið stemmninguna þegar ég mætti í vinnuna á miðvikudaginn. 

Þurfti að hlaupa við fót þegar ég var á leiðinni á Grund því að forsetabíllinn #1 var að renna í hlaðið með forseta vor Höllu Tómasdóttur innanborðs. Þegar ég kom að innganginum var einn spenntur húsvörður sem sagði mér að ég yrði að tékka á þessu. Opnunarhátíð Iceland airwaves hvorki meira né minna. 

Það var gaman að sjá fólk sem var að mæta á opnunina og hlusta á tónlistina. Svona fólk sem fer á Iceland Airwaves. Ekki bara starfsfólk og hjólastólar. Gaman.

Það er samt dásamlegt að vera komin í helgarfrí. Elska að eiga "frídag" sem ég set í gæsalappir þar sem ég er nú að gera eitthvað. Verð að sinna þessum líkama með að komast í ræktina og svo langar mig í salsatíma í Kramhúsinu. Svo held ég að sinni the lords work með að sjálfboðaliðast og hitta konuna mína. Það er nokkurnveginn plan dagsins. 

Verkefni vikunnar var ... vegabréfið hennar Guðrúnar Höllu. Kom í ljós að það rennur út í janúar svo verðum að fá nýtt. Gerði dæmið í tölvunni en hún á eftir að fara í myndatökuna. 

Hápunktur vikunnar var miðvikudagurinn eins og hann lagði sig. Bæði opnunarhátíðin og svo fór ég í Sundhöllina. Þessar ferðir mínar í Sundhöllina bjarga mér stundum alveg. Hafði verið með vöðvaspennu (aðallega í kálfunum) nóttina áður og sá fyrir mér langa útipottinn í hyllingum. Átti yndislega sundferð, var svo ein að synda í lauginni (já, það gerðist stundum) og átti svo gott spjall við konu í gufunni. Sú var útlensk og búin að búa hér í tvö ár. Elskar landið og sagði mér að henni fyndist andi Íslands vera kvenmaður (I think the sprit of the land is female.)

Lágpunktar vikunnar voru nú ekki margir ef einhverjir. Líklega þessi vöðvaspenna aðfaranótt miðvikudags. Lifi ennþá á helginni en við Svanur fórum óvænt út að borða og svo í Hús Máls og menningar að sjá The Bookstore band. Skemmti mér svo vel. Svo gaman. Búin að vera í góðu skapi síðan.

Namaste.

Friday, October 30, 2026

End of an era

 Það kom yfir mig í gær staðfesta.

Tilfinning og hugboð um að segja upp leigunni á Suðurlandsbrautinni og tilkynna 3ja mánaða uppsagnarfrestinn. Var búin að fá skilaboð frá höndunum mínum undanfarna nætur og daga að nú væri komið gott. Sendi Siggu skilaboð um þetta og vona að það dugi til.

Viti menn, höndunum mínum leið betur á eftir. 

Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Kannski byrja ég aftur annars staðar (hugsanlega í Skipholtinu) en ég held að tima mínum á Suðurlandsbrautinni sé lokið.

Fyrir utan þetta finn ég fyrir óútskýrðu álagi. Er bara eitthvað taugaveikluð. Innri spennan er að trufla. Yogatímarnir í Skipholtinu hjálpa svo mikið. My haven. My safe space. 

Guðrún Halla er að fara á handboltamót fyrir norðan um helgina. Er í þessum skrifuðu orðum að reyna að vekja Stefán sem ætlar að skutla henni í Val. Hún á að vera mætt 08:15 og klukkan er 07:51. Hann er ekki vaknaður né kominn framúr. Mmm.. 

Annars gerðist það í vikunni að við keyptum flugmiða til Tene. Tvær vikur í kringum áramótin og geðheilsunni minni borgið! Skammdegið hefur aldrei farið vel í mig. Dáist að manninum mínum fyrir að búa til pening og kaupa flugmiða fyrir okkur öll. 6 fullorðnir og tvö börn takk fyrir. 

Eigum eftir að redda okkur gistingu reyndar...

Vikan var í survival mode. Stundum er það þannig hjá mér. Taugakerfið úrþanið og það er full vinna að vera ég. Erfitt að útskýra fyrir neurotypical fólki sem er alltaf í góðum málum. Hafði reyndar fyrir því að skipta um stíl á hárinu. Í staðinn fyrir snúðinn góða setti ég í mig fléttur með blautt hárið og leysti þær svo í kringum hádegið. Liðirnir komu vel út:)

Verkefni vikunnar var að fatta allianz lífeyrisgreiðslurnar. Fæ stundum umslag með yfirliti yfir væntanlegar lífeyrisgreiðslur og var búin að gleyma að ég hef flétt því inn í greiðslur mínar til Gildis í gegnum nuddið. Var ekki að finna færslurnar til Allianz en þarna liggur sem sagt hundurinn grafinn. Írónískt að ég ákvað í vikunni að nokkurn veginn hætta að nudda því þá falla þessar greiðslur allar niður. Er reyndar að fá launaseðla fá tveimur öðrum stöðum og er því að greiða í tvo aðra lífeyrissjóði þannig að ég ætti að vera góð. 

Hápunktur vikunnar skipti engan annan máli en mig en ég náði hárinu mínu svo flottu í gær. Var virkilega ánægð með það og það skipti máli fyrir almenna líðan. Gerði sem sagt flétturnar um morguninn með blauta hárið, spreyjaði einhverju root booster í það áður og leysti þær í hádeginu og setti í spennur. Er fastlega búin að ákveða að hætta að lita það. Langar að sjá hvernig það er náttúrulegt með áherslu á orðið náttúrulegt. Eins og Tinna vinkona segir þá eru þessir blessuðu litir eitur. Ok, kannski dáldið sterkt til orða tekið. 

Lágpunktur vikunnar var líðan mín í gær. Þarf virkilega að huga að taugakerfinu mínu næstu daga. Það er óvelkomin spenna í kerfinu sem er þenja allt út. Líklegast orsökin að stoðkerfisvandamálunum mínum. 

Come on inner peace!

Namaste.

Friday, October 23, 2026

Skökk

 Örvæntingarfulla húsmóðirn okkar er frekar örvæntingarfull. 

Stoðkerfisvandamál eru að hrjá mig þessa vikuna. Er reyndar alveg róleg því þetta hefur nú oft gerst áður. Kannski tvisvar á ári og oft á þessum tíma árs. Veit ekki hvað það er. Meðgöngur barna minna skildu mig eftir með smá vesen. Spjaldið festist ýmist eða .. eitthvað. Á erfitt með að lýsa þessu. Þurfti allavegana að keyra í yoga þessa vikuna en er stolt af mér fyrir að hafa gert allt eins og vanalega. Samstarfsfólkið tók ekki eftir neinu og krakkarnir komu í mat og no problem. Var bara í því að spara skrefin einhvern veginn. 

Ái.

Langar alveg obbosens mikið að taka því rólega um helgina og gera sem minnst. Það er vetrarfrí hjá krökkunum svo ég vona mitt allra besta að einhver annar geti haft ofan fyrir baby því þessi amma (ég) þarf að hvíla mig. 

Vikan gekk sinn vanagang. Það var bleikur dagur á miðvikudaginn svo ég var í því eina bleika sem fannst á heimilinu; bleiku tutu pilsi (tjullpils.) Ætli Guðrún Halla hafi ekki fengið það þegar hún tók þátt í Color run með vinkonum sínum hér um árið. 

Verkefni vikunnar var að selja brúðkaupskjólinn minn. Mig hefur langað það lengi. Hef ekkert við hann að gera núna og það er ekki eins og ég ætli að nota hann aftur. Ég finn fyrir miklum mun því ég hef sett hann áður inn á Marketplace. Þá komu fyrirspurnir um leið. Fólki fannst þetta spennandi. Núna hef ég ekki fengið nein viðbrögð. Mér líður eins og fólk sé að halda að sér höndum dáldið og spara. Það er heldur ekkert að gera í nuddinu. Kannski smá kreppa í gangi?

Hápunktur vikunnar var á miðvikudaginn þegar krakkarnir komu í mat með Styrmi Orra. Það er með endæmum hvað hann er flottur og hvað þau standa sig vel með hann. Núna er hann hættur alveg með duddur og er að sjálfsögðu líka löngu hættur með bleyju, 3ja ára yndisbitinn hennar ömmu sinnar. Mér tókst að gera góða máltíð sem þau hrósuðu mér fyrir og voru mjög ánægð:) 

Lágpunktur vikunnar var á mánudaginn þegar ég var eins og spýtukall og Ingó kíró þurfti að hjálpa mér á bekknum svo hann gæti hnykkt mig. Goddem bobbilí.

Einhvern veginn ætla ég samt í prufutíma í salsa í hádeginu í Kramhúsinu með þessar mjaðmir. Það er bara búið að vera á to do listanum svo lengi að læra salsa. Sjáum til hvernig það fer..

Er svo að fara í Bowen (bandvefsslosun) 16:30 sem ég bind vonir við að nái að gera eitthvað við alla þessa þreytu í mjöðmunum og fótunum og kálfunum...

Namaste.

Friday, October 16, 2026

Já nei nei

 Það er svo sannarlega kominn miður október.

Skammdegið er mætt með smá drunga og lægðirnar herja á landið, hver af annarri. Flensan náði Guðrúnu Höllu um daginn og sýnist hún vera að ná Svani líka. Framundan er skrall sem ég er engan veginn tilbúin í. Það er á svona dögum sem mér finnst ég ekki vera eins og allir aðrir. 

Það er nefnilega kvennakvöld Vals í kvöld og kvöldið byrjar á fordrykk. Svo er fordrykkur á undan fordrykknum. Er komin með drykkjukvíða því ekki má ég fá of marga fordrykki. Félagsskapurinn er mömmurnar í vinkonuhóp Guðrúnar Höllu svo ég verð aðallega að halda á þessum blessuðu fordrykkjum í fleirtölu.

Dagurinn byrjar ekki vel því Svanur vakti mig í nótt. Hann fór inn í eldhús að vaska upp með látum. Frábært. Yfirskrift kvöldsins er glimmer og glamúr eða eitthvað álíka og hmmm.. það hefði verið svo miklu betra að fá svefninn minn allavegana. 

Vikan var þokkaleg. Fékk hrós og faðmlag í nuddinu sem var ágætt. Vinnan gekk svo sinn vanagang. Held áfram að vera þakklát fyrir góða vinnufélaga. 

Verkefni vikunnar var að spá í endurgreiðslu frá stéttarfélaginu varðandi líkamsræktarkortið mitt í World class og kíró. Sótti um greiðsluþátttöku fyrir þónokkru síðan og var að spá af hverju það hefði ekki borist. Kom í ljós að jú, ég fékk greiðsluþáttöku en bara afskaplega litla. Það er auðvitað af því að ég er að vinna svo lítið í nuddinu að ég á bara 26,5% hlutfallsleg réttindi hjá Eflingu svo greiðslur eru eftir því. Launaseðlarnir úr nuddinu eru jú ansi lágir og ég er bara að nudda einn dag í viku. Segir sig kannski sjálft.

Hápunktur vikunnar var á mánudaginn þegar báðir nuddþegarnir mínir voru ánægðir með mig. Hrósuðu mér báðar og önnur faðmaði mig. 

Lágpunktur vikunnar er í dag þegar það er lágt á mér risið eftir svefnlitla nótt. 

Namaste.

P.s. hér er mynd af okkur handboltamömmunum á kvennakvöldinu



Friday, October 9, 2026

Nokkur orð ...

 ... um vináttu.

Ég sakna þess að eiga ekki vinkonuhóp. Öfunda konur sem eru í saumaklúbbum og hitta vinkonuhópinn reglulega. Það er víst búið að sanna að það sé heilsa líka, að vera í góðum félagslegum tengslum. 

Ég á fáar en góðar vinkonur. Tinna er besta vinkona mín. Hún er traust og góð og sýnir mér raunverulegan áhuga. Hún er að kenna mér að vera spontant sem tekur stundum á því spontant er ég ekki.

Hin alvöru vinkona mín er Anna Lára. Hún sýnir mér líka raunverulegan áhuga. Skrítið hvað það er sjaldgæft. Þessi elska er týpan sem kemur með mér og hjálpar mér í missionum. Við erum núna að reyna að hittast einu sinni í viku til að labba saman en í þessari viku kom hún, sótti mig og kom með mér í mission að finna nýjar vinnubuxur. Þetta er ekki einfalt mál fyrir konu sem líður ekki vel í búðum vegna allra ljósanna og svoleiðis og Anna Lára var alveg með mér í þessu. Talaði um fyrir mér því ég var næstum því búin að kaupa rangar buxur. Þetta voru réttu buxurnar nema þær voru rauðar. Hún vissi eins og er að það myndi aldei ganga. Þessi elska kom með mér í Útilíf og hjálpaði mér að velja buxur. Var svona stuðningsaðili. Það er gulls ígildi að eiga góða vini. Buxurnar sem við fundum eru æði og voru líka helmingi ódýrari en þessar rauðu.

Vikan var alls konar. Byrjaði harkalega en skánaði svo eftir því sem leið á. 

Verkefni vikunnar var að selja gamla retro eldhúsljósið okkar úr Bauhaus sem við keyptum 2013. Það passar ekki inn í nýja ásýnd íbúðarinnar. Mér tókst að selja það á 8.000 kr á Marketplace sem mér finnst ágætis árangur. Set kannski mynd af því hér inn á eftir en þá sjást gardínurnar mínar í stofunni. Þær eru komnar á það stig að ég skammast mín fyrir þær. Sjáum til. 

Hápunktur vikunnar var klárlega samverustundin með Önnu Láru. Það er gott að eiga svona góða vinkonu.

Lágpunktur vikunnar var á mánudaginn þegar mér leið ekki vel. Fékk OCD kast upp í aðstöðu. Það er fullkomlega óþolandi.

Namaste.

P.s. elsku hjartans dóttir mín er komin með rúmlega 39 stiga hita. Alvöru veik :/

Friday, October 2, 2026

Nýr mánuður

 Allt fram streymir endalaust

ár og dagar líða

Nú er komið hrímkalt haust 

horfin sumars blíða.

Kristján Jónsson fjallaskáld

Eins gaman og það var að komast í burtu var ekkert svo sérstakt að koma heim. Hefði alveg verið til í að vera lengur ein í burtu frá öllu. Aðallega heimilinu. Samt er það alltaf best. Allavegana..

Vikan var bara ágæt svosem. Byrjaði vel, varð svo smá erfið og þreytandi og endaði með skelli. Ég var náttúrulega hátt uppi þegar ég kom heim hafandi verið í burtu. Það er dásamlegt hvað smá hreint loft getur gert manni gott. Það var kona þarna á retreatinu sem ég fékk svo far með heim sem er með podcastið Með lífið í lúkunum. Hlustaði af því tilefni á einn þátt af því. Þar er viðtal við unga konu sem mig minnir að heitir Íris Líf. Hún er bókari og rosalega góð í að spara. Hún kom sem sagt með ýmis sparnaðarráð. Ég varð fyrir miklum innblæstri og eftir að ég kom heim leit ég í nokkur horn þar sem ég gæti sparað eða þar sem ég er að borga of mikið. Þar kom verkefni vikunnar:

Verkefni vikunnar var að fá leiguna mína á rýminu á Suðurlandsbraut lækkaða þar sem ég er núna bara einn dag í viku að nudda. Það þarf að fara vel að svona hlutum, ekki bara hafa samband og krefjast. Það var því ákveðin kúnst að fara vel að kæru Siggu sem er eða var partnerinn minn í rýminu. Núna er það meira orðið þannig að ég er að leigja hjá henni. Hún fær núna báða reikningana og sér um allt. Verkefnið tókst vel og mér tókst að fá leiguna lækkaða.

Hápunktur vikunnar var eiginlega á mánudaginn þegar mér leið vel eftir helgina og kom ekki buguð eftir helgina í rýmið heldur bara góð.

Lágpunktur vikunnar var Kveiksþáttur á RUV þar sem verið var í stuttu máli að tala illa um vinnustaðinn minn. Fréttin var ríkjandi alla vikuna. Gefið var sterklega í skyn að íbúarnir væru að fá of mikið af alls konar geðlyfjum og geðrofslyf af minnsta tilefni. Mér fannst það smá erfitt. 

Vikan endaði með skelli því núna rétt áðan tókst mér að taka ekki eftir því að vatnið flæddi úr sturtunni og yfir flísarnar og vonandi ekki mikið undir parketið. Í gær hætti þurrkarinn að virka svo við tókum út eitthvað unit (eftir 24 ár af að vera húsmóðir veit ég ekki hvað það heitir.) Það var allt í ryki og Svanur mælti með að skola af því í sturtunni. Auðvitað stíflaðist niðurfallið og við hvorug föttuðum að hreinsa það eftir á. 

Eitt stykki reiður maður í morgunsárið fyrir mig. Bölvað klúður.

Namaste.

Thursday, September 24, 2026

Guð minn góður

Það er komið að þessu.

Ég er að fara úr bænum. Ásetningurinn er slökun. Hvíld. Meiri slökun. Svo hvíld. Góður félagsskapur. Glens og grín vonandi. Býst við því. 

Get ekki beðið. Er svo tilbúin í þetta. 

Sólheimar. Hér kem ég. 

Friday, September 18, 2026

Ég hef ...

 ... sjaldan eða aldrei lent í því að þurfa að næsta helgi sé þessi helgi.

Næstu helgi er ég, ef allt fer samkvæmt áætlun, að fara í yoga og hvíldarhelgi á Sólheimum. Get ekki beðið. Ekki bara verður gott að komast út af heimilinu og borginni heldur er ég bara frekar þrotuð. Það tekur á að vera með tvo unglinga. Þetta eru bestu skinn auðvitað en eitthvað gerðist á þriðjudagskvöldið. Eitthvað sem hafði safnast saman lengi, með þau bæði. Í einu. Þetta var hræðilegt. 

Eldri táningurinn er búinn að yfirtaka bílinn. Hann virðist ekki skilja af hverju ég þurfi bílinn. Ég þurfti til dæmis bílinn á miðvikudaginn þar sem systir hans átti tannlæknatíma eftir vinnu hjá mér og skóla hjá henni. Er einhverjum meira drull en 18 ára táningi? Hann hélt að ég væri að færi að fara í yoga. Veit ekki hvort hann viti hvar ég vinn einu sinni. Hann hafði keypt allt í einu hlaupabretti. Hafði plantað því í stofuna, umbúðir út um allt. Morguninn eftir var í fyrsta og eina skiptið sem ég öskraði af ergelsi, í bílnum, á bílastæðinu fyrir utan heimili mitt. Ekki einu sinni lögð af stað. Helvítis umbúðirnar af hjólabrettinu tóku allan bílinn. Hann hafði plantað kassanum þannig að ég sá ekkert út um gluggann á skottinu. Kassinn var svo stór að ég kom honum engan veginn fyrir neins staðar og sá ekkert og keyrði þannig í vinnuna. Öskraði aftur. Þarf ég mömmufrí eða þarf ég mömmufrí?

Yngri táningurinn casually týndi hjólinu sínu. Það var ekki vandamálið. Vandamálið var stanslaust suð seint um kvöld um að komast í ferð með Saltkirkjunni og Kristiboðasambandinu til Færeyja. Þekki ekki þetta fólk, vinkonurnar fara ekki og hún skildi ekki af hverju ég sagði nei. Ég get ekkert verndað barnið mitt á fjölmennu móti í Færeyjum þar sem fullt af ungmennum frá ég veit ekki hvaðan koma saman. Fjandinn hafi það. 

Bóndinn er með svo stressaða orku þegar hann kemur heim að mér bregður svo í þögninni að ég öskra. Það gerðist reyndar bara einu sinni í síðustu viku. Samt. 

Verkefni vikunnar var bara algjörlega að lifa ofangreint af og ná mér á rétt strik. 

Hápunktur vikunnar var að vera samt glöð í vinnunni.

Lágpunktur vikunnar var allur miðvikudagurinn eins og hann lagði sig. Þetta var hræðilegt. Hef aldrei áður rifist svona við börnin mín. 

Bara hjálp. Þarf að komast í burt.

Namaste.

Friday, September 11, 2026

Hekl

 Mig hefur alltaf langað að vera kona sem prjónar og heklar. 

Hef horft öfundaraugum á aðrar konur sem geta prjónað peysur og svoleiðis fyrir fólkið sitt. Ég setti mér þrjú markmið fyrir þetta haust og eitt af þeim var að læra að hekla (prjónið kemur kannski seinna.) Fór til elskulegrar móður minnar sem gerir allt vel og hún kenndi mér að hekla borðtusku síðustu helgi. Þetta hefur reyndar reynst mér erfitt þar sem ég er aldrei viss um hvaða lykkju ég á að fara í gegnum og svo hefur þetta verið svo samanherpt hjá mér (kannski eins og ég stundum) eða of vítt (kannski líka eins og ég stundum) og liturinn á garninu svo dökkt að ég sé ekki almennilega götin eða lykkjurnar eða þið vitið. Allavega, ég er byrjuð og skil svo vel af hverju fólk heklar og prjónar. Þetta er svo afslappandi og næstum ánetjandi. Er búin að hekla alla vikuna og nýt þess mjög en fékk smá í herðarnar á miðvikudaginn.

Verkefni vikunnar var að fara til tannlæknis. Ég veit, það er nú ekki mikið verkefni en heyrið bara söguna. Ég þurfti að hafa dáldið fyrir þessu því þetta var á þriðjudaginn. Það var bongó á þriðjudaginn og ég hafði hjólað mínu fallega hjóli í vinnuna. Lauk vinnu kl 14 og tíminn var kl 15 á Grensásveginum svo ég ákvað að útrétta smá líka. Var að sækja dropp í N1 Borgartún. Þetta var geggjað. Hjólaði framhjá Hörpu og meðfram sjónum alla leið í Borgartúnið. Þegar þangað var komið sá ég enga hjólaboga fyrir utan og ekkert til að festa nýja, dýra rafmagnshjólið við svo hvað gerði ykkar kona? Jú, leiddi hjólið inn á bensínstöðina og geymdi það þar meðan ég var að ná í sendinguna. Ég vissi ekki hvert afgreiðslumaðurinn ætlaði! Stundum er ég smá skvetta. Kom líka á tannlæknastofuna í öllum mínum hjólaútgangi og já, það var smá fyrirferð í mér. Guðrún tannlæknir vill láta jaxlinn sem skagar svona mikið niður í friði og ekki gera neitt. So be it.

Hápunktur vikunnar var ofangreint. Það var gaman hjá mér á hjólinu á þriðjudaginn og sérstaklega hjálpaði það til að vera með dúndurgóða tónlist í eyrunum. Var að hlusta á Queen. Bohemian Rhapsody eldist einstaklega vel eins og öll þeirra lög reyndar. 

Lágpunktur vikunnar er kannski í dag þegar ég er með smá mammviskubit. Það er kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nemenda í 8.bekk á eftir sem mig bara langar ekki á. Nemendur eru um 80 talsins svo það verður fjölmennt. Þau eru komin með nýja kennara sem eru allir karlkyns. En, hún stendur sig svo vel í skólanum að ég þarf engar áhyggjur að hafa. Við fáum að öllum líkindum sendar glærurnar og já, ég held að ég sleppi þessu bara. Er búin að búa til yndislega self care dagskrá fyrir mig í dag sem ég vil ekki að neitt trufli.

Namaste.

Friday, September 4, 2026

Amma

 Amma Alla kom til mín í vikunni. 

Huglægt auðvitað. Það var minn mesti harmur í lífinu að missa hana. Hún var svo góð amma.

Hugur minn renndi í gegnum íbúðina hennar og afa í Espigerði og Gullsmára. Ég sé hana fyrir mér standa við spegilinn í Gullsmára og gera sig til. Hún var svo elegant. Allt sem hún gerði var elegant og hafði vissan sjarma yfir sér. Ég man eftir fötunum hennar. Hvað hún bar þau vel. Hvað hún bar sig vel. Hvað hún var skemmtileg. Alltaf í góðu skapi. Svo stolt af okkur öllum. Ég man hláturinn hennar. Augun hennar. Gáska hennar og gæsku. Hvað mér leið vel hjá henni. 

Það var alltaf vöfflukaffi hjá henni á laugardögum frá því ég man eftir mér og þangað til hún veiktist. Líklegast 36 ár. Þannig hélt hún okkur saman. Byggði traustan grunn fyrir okkur öll. Held að þessi vöfflukaffi á laugardögum kl 15 hafi verið stór hluti af því að okkur vegnaði flestum vel í lífinu. Henni fannst við hvort sem er öll frábær. (Hvað er árangur anyways.)

Á mínum 47 árum hef ég lent í ýmsu og ýmislegt gerst en það hefur ekkert fengið jafn mikið á mig og að missa hana. Ljós lífs míns.

Minn mesti harmur.

Hvíl í friði elsku amma.

Þín Svava.

Namaste.

Ljósið í mér sér ljósið í þér.


Friday, August 28, 2026

vendingar

 Lífið er allt að gerast núna.

Verkefni vikunnar var af stærra taginu. Það snýst um nuddstofuna og þá staðreynd að ég er bara einu sinni í viku þar núna. Er eitthvað að spá í að bjóða upp á laugardaga í vetur en veit samt ekki alveg með það. Partnerinn minn á stofunni er þar meirihlutann af tímanum og þess vegna meikar það sens að hún taki við prókúrunni, sem sagt reikningunum frá Eik sem koma tveir í hverjum mánuði. Hef verið að fá þá í minn einkabanka undanfarin ár og rukka svo hina og núna hana. Það er heilmikið mál að losna við prókúruna, það var reyndar ekki svo mikið mál, nokkrir tölvupóstar bara, en meira svona, núna hef ég ekki undir höndum reikningana og alla ábyrgðina, núna færist það á hana. Hef verið stödd á ýmsum stöðum og margt mismunandi í gangi en sama hvað þurft að passa upp á leiguna tvisvar í mánuði. Chip of my shoulder indeed. Smá mál en líka stórt.

Hver veit hvað ég á eftir að nudda lengi í viðbót? Allar þær sem voru að læra með mér og eru á svipuðum aldri og ég eru hættar að nudda. Fengu álagsmeiðsl (eins og ég gerði reyndar líka) og eru að gera eitthvað annað núna. Er búin að vera að þessu í 7 ár núna og myndi finnast erfitt að hætta því það að vera heilsunuddari og meðferðaraðili er eitthvað sem ég elska og vil ekki sleppa. Það er hluti af sjálfsmyndinni minni. 

Vikan var alls konar. Það eru svo innilega árstíðaskipti og komið haust. Yogað mitt í Skipholtinu byrjaði aftur í vikunni og allt er að komast í rútínu. Það er auðvitað líka allt í gangi hjá Guðrúnu Höllu. Hún ætlar að halda áfram í handboltanum og kannski dansinum í DWC og svo verður hún á leirnámskeiði á föstudögum í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Fermingarfræðslan verður líka yfir og alltumlykjandi held ég.

Verkefni vikunnar var sem sagt að losna við prókúruna á Suðurlandsbraut 32. Það meikar bara meira sens að Sigga sé með hana því hún er þarna meirihlutann af tímanum. Ég er bara einn dag í viku núna.

Hápunktur vikunnar var klárlega þegar ég mannaði mig upp í að hjóla í vinnuna. Ég veit, þetta er nú ekki það mikið mál, en þegar maður er á rándýru rafmagnshjóli sem maður er hálf hræddur við þá er þetta smá mál. Var líka að segja við strákana (vinnufélagana) að eftir að ég ákvað að hjóla í vinnuna fyrir einhverjum vikum sá ég varla annað í fréttum en fréttir af slysum þar sem keyrt var á hjólreiðafólk. Varð meira að segja vitni af einu slíku í sumar. Frétti af öðru þar sem keyrt var á hjólreiðakonu þar sem gönguljósið var grænt hjá henni. Allt þetta varð til þess að það var frekar stressandi að hjóla í og úr vinnu þarna á þriðjudaginn. Umferðin á Suðurgötunni er nú alveg eitthvað líka.

Lágpunktur vikunnar var hvað ég var þreytt á miðvikudaginn. Labbaði heim úr vinnunni sem er nú alveg ágætis vegalengd en var svo bara sófakartafla eftir það. Var nú eiginlega búin að ákveða að vera það samt. Það fór úr hófi. Svani ofbauð. Það var smá erfitt. Það er líka smá brutal hvað ég er obsessed með Beverly hills 90210. Núna er ég komin á sjöundu seríu (af 10.) Í hverri seríu eru um 30 þættir og hver þáttur er um 45 min. 30 sinnum 45 min sinnum sex ... mikið hámhorf. Fjölskyldan mín er bara já.. er bara verið að horfa á Bev..? Aftur..?

En hey, it reminds me of my youth and feels like home. (Stundum segir enskan hlutina betur.)

Namaste.



Friday, August 21, 2026

Jæja.

 Þessi vika var eitthvað. 

Ég held áfram að venjast lífinu sem vinnandi kona og er áfram þreytt eftir 4ra tíma vinnudag. Ráðgjafinn minn hjá Virk segir að það taki í kringum 3 mánuði að venjast nýrri vinnu.

Það er heldur ekki bara lífið á Grund sem ég er að venjast heldur það að vinna í hópi, vera með vinnufélaga og bara það að sitja með vinnufélögunum í mat í hádeginu er eitthvað sem ég er að venjast. Ég var nú að hobbitast og introvertast alein í 7 ár. Higly sensitive person indeed.

Ég er með yndislega vinnufélaga, er svo heppin og yfirmaðurinn minn er frábær líka. 

Þegar ég var í ferlinu að fá vinnu komu yfir mig öll þau móment sem mér hefur ekki liðið vel í vinnunni í fyrri vinnum. Ég féll ekki inn í hópinn eða lenti í leiðindaatvikum eða klúðraði.. Hef alveg lent í ýmsum atvikum á lífsleiðinni. 

Það er ekki einungis líkamlega sem vinnan í sjúkraþjálfuninni á Grund hentar mér vel, er jú með tvær hryggskekkjur, brotið rófubein, sacrum er eitthvað í ruglinu og svo fékk ég brjósklos í hálsinn. Ég gæti aldrei unnið skrifstofuvinnu þar sem ég þyrfti að sitja við skrifborð til að mynda. 

Vinnutíminn er líka  eitthvað sem ég secretaði og manifestaði, sem sagt frá kl 10-14 þrisvar í viku. Það er nóg fyrir mig.

Það segir kannski eitthvað um orkustigið mitt að verkefni vikunnar var að hringja í tannlækninn til þess eins að fá tíma. Það er eitthvað obbosens vandræði á einum jaxlinum í efri góm. Hann er ofvaxinn og skagar niður, miklu lengri en aðrar tennur. Finn stundum fyrir honum og hvernig hann togar í góminn..

Hápunktur vikunnar var þegar ég stóð mig vel sem nuddari og heilari í aðstöðunni á mánudaginn. 

Lágpunktur vikunnar var þegar það voru grísakótilettur í raspi í vinnunni á miðvikudaginn og kartöflurnar í einhverju sósujukki. 

Svavan var ekki ánægð með þá máltíð.

Namaste.


Friday, August 14, 2026

Virk

 Það má heldur betur segja að ég hafi verið virk í vikunni enda er ég nú formlega útskrifuð úr Virk. 

Dauðþreytt en virk. Var að nudda á mánudaginn og vinna svo á Grund restina af vikunni og alltaf gera eitthvað eftir vinnu. Svona gerir annað fólk þetta. Er svo þreytt alltaf að ég sef vel á nóttunni. Stend nú (eða sit) frammi fyrir þeim veruleika að allt sem hefur setið á hakanum og þarf að gerast raðast á daginn í dag. Er með sirka 5 hluti á dagskránni.

Það sem ég þoli ekki við að eldast er að ég er farin að mikla allt fyrir mér. Sumir hlutir virðast eitthvað svo óyfirstíganlegir en er fyrir öðru fólki kannski ekkert mál. Þarf til dæmis að koma jeppanum á viðgerðarstæði út af aftanákeyrslunni í sumar. Það er alltaf svo erfitt að missa bílinn og ég má aldrei við því. Vaknaði í morgun og fór strax að spá hvernig og hvenær ég ætlaði að fara að þessu og fékk næstum hausverk. 

Verkefni vikunnar ... já. Ég er ekki komin á þann stað að þessi liður sé kominn í gagnið. Er ennþá í nýrri vinnu og á fullt í fangi með það. 

Hápunktur vikunnar var að vinna í sjúkraþjálfuninni á Grund. Það er ansi stórt skref frá því að vera óvirk og gera kannski einn hlut á dag eða tvo yfir í að vera að allan tímann í vinnunni í fjóra tíma í senn að kynnast nýju fólki. 

Lágpunktur vikunnar var að fjölskyldumeðlimur þurfti bara að vera brotin heima hjá sér (slösuð) í 10 daga og fær ekki tíma í aðgerð fyrr en á morgun. Trú mín á Ísland og hvernig hlutirnir virka hérna lækkaði um alla stuðlana. Hvað erum við ef við getum ekki sinnt slösuðum þegnum landsins? Ég skil allt og ekkert núna. Í hvað fara fjármunirnir og hvernig er þetta ekki forgangur; að koma bráðamóttökunni í mannsæmandi stand?

Pirruð.

Namaste.

Friday, August 7, 2026

Mismunandi æviskeið

 Ég finn svo djúpt fyrir því að ég er komin á næsta æviskeið. 

Tók mér óvart svona chick lit eða bók um konu í kringum þrítugt sem er að leita að ástinni og fann ástina og ... klára nú alltaf það sem ég byrja á en ég var mjög lengi með þessa bók af því að ég hafði bara engan áhuga. Eða eins og ég sagði á Goodreads um bókina: "ég er of gömul og bitur fyrir þessa bók."

Það er samt gaman að vera vinna með ungu fólki. Kona þarf jú að halda sér aðeins nær ungdómnum en tja.. dauðanum? Eða gömlu fólki. Þarna næ ég báðum endum í vinnunni á Grund. Sýnist samstarfsfólk mitt allt vera á þrítugsaldri svo erum við yfirmaðurinn ömmurnar í hópnum. Vinnan gengur vel. Hef verið ágætlega þreytt en náði að komast í hot yoga einu sinnu í vikunni. Það munaði öllu.

Verkefni vikunnar var eiginlega bara að meika hana. Ég er ennþá að venjast því að vera í svona mikilli virkni. Finn að ég hef mikið gott af því. Kvíði smá fyrir að sjá launaseðilinn samt. 

Hápunktur vikunnar var að komast að því að ég get verið að vinna og haft gaman og gott af.

Lágpunktur vikunnar var að frétta af meiðslum hjá fjölskyldumeðlim. Bömmer.

Next up er að ykkar kona er að fara í ræktina og nálastungur. Hugsanlega að hitta konuna mína niðrí bæ (göngufélaga minn.) Svo er Styrmir Orri að koma til ömmu sinnar:)

Namaste.

Friday, July 31, 2026

Ég er ...

 ... Brynhildur.

Man alltaf eftir þessum fóstbræðraskets þar sem hin þýska Brunhildur lætur allt gamalt fólk deyja (eða teygja.) Hló svo mikið þegar ég sá hann fyrst. Aldrei hefði mig grunað að ég ætti eftir að verða Brynhildur og láta allt gamalt fólk teygja.

En jú, þessi vika var fyrsta vikan mín í sjúkraþjálfuninni á Grund. Eins mikið og mér finnst cool að vinna í 101 Reykjavík þá er það smá höfuðverkur hvernig ég kemst í vinnuna (en auðvitað, ég ofhugsa allt.) Er þakklát henni Guðrúnu yfirmanni fyrir að ráða mig og hafa trú á mér. Það er þónokkuð að gera í vinnunni, það er aðallega ungt fólk að vinna þarna eins og er og allir eru að, alltaf. Ég smá elska það því ég hef svo gott af því. Á svo sannarlega eftir að gera mitt allra besta.

Er reyndar þreytt eftir fyrstu vikuna en það var jú viðbúið. Er að elska að fá heitan mat í hádeginu í vinnunni og er bara smá leið yfir að þurfa hugsanlega að elda smá í kvöld. 

Finnst skrýtið að það sé komin verslunamannahelgi. Er engan veginn tilbúin í ferðalag enda vorum við í ferðalagi síðustu helgi. Er farin að ofhugsa það því Svanur yfir höfuð veldur mér mikilli óvissu. Mikið svona spontant. Þoli ekki spontant. Vil vita nákvæmlega hvað ég er að fara gera og hvar og hvernig og klukkan hvað. Síðustu helgi datt upp úr honum á laugardeginum eftir að hafa sofið út hvort við ættum ekki að kíkja í Þórsmörk. 

Þetta veldur mér miklu hugarangri því ég veit að hann vill vera á kvöldvöku þarna:

Komumst við örugglega þangað? (straumharðar ár valda mér hugarangri)

Komumst við tilbaka?

Hvað í ósköpunum með kvöldmat og vistir, vatn og svoleiðis. 

Hvenær myndi kvöldmaturinn sem við erum ekki með vera í Þórsmörk?!

Og klukkan hvað?!

Þetta var smá innsýn í kvíðaheilann minn sem vaknaði með þessar hugsanir. Er bara ekkert að meika að fara eiginlega yfir höfuð. Yfirfull tjaldsvæði hafa aldrei nokkurn tímann heillað mig.

Er komin af sumarbústaðafólki.

Verkefni vikunnar var að byrja í nýrri vinnu.

Hápunktur vikunnar var að byrja í nýju djobbi og fíla það og líða vel.

Lágpunktur vikunnar var að styrkja appið Parka óþarflega mikið.

Namaste.

Friday, July 24, 2026

ládeyða

 er það ekki mannskepnunni eðlislægt að vera með rútínu?

Eitthvað fast sem gerist á hverjum degi. Hlakka til dæmis til að skólinn hjá Guðrúnu Höllu byrji. Veit að hún gerir það ekki en það er bara erfitt að hanga svona mikið. Sérstaklega í rigningunni sem var samfleytt í marga marga daga. Við erum aðallega búnar að hanga þessa vikuna. Það er alveg næs auðvitað. En það eru margar vikur í að skólinn byrji. Allar vinkonur hennar eru í ferðalögum og ... þetta er alltaf rosalega langt sumarfrí. Allt í gangi í fyrra hlutanum en núna er ekkert námskeið eftir og ef það er þurfa vinkonur að koma með. 

Það verða gífurlega mikil viðbrigði þegar ég byrja að vinna í næstu viku. Vona svo innilega að það gangi vel. Það verður mikill viðsnúningur í mínu lífi og ég verð bara að sjá til með nuddið. Það fer niður í einn dag í viku og hugsanlega laugardaga. 

Mínar vinkonur eru líka í ferðalögum. Skrýtið að vera í hálftómri borg. Við erum líklegast að fara um helgina eitthvað út á land. Alltaf hálfgerð óvissa þegar maður er með hjólhýsi og spontaneus mann eins og Svan. 

Verkefni vikunnar var aftur ekkert sérstakt. Við Guðrún Halla erum í fríi. Ég býst við að markmiðin komi með haustinu. Ætli verkefni vikunnar hafi ekki verið að líða vel og líða betur. Þáttur í því að fara í yogatíma hjá Klöru í Yogashala á þriðjudaginn. Almáttugur. Þessi tími var allt. Stelpan er snillingur. Líður núna vel í bakinu og sef eins og engill.  

Hápunktur vikunnar var eiginlega að njóta með Guðrúnu Höllu. Þetta var síðasta vikan fyrir nýja vinnu og ætli okkur hafi ekki tekist að njóta vel sumarfrísins saman. Í gær var eðalstund á Hliðsnesi á ættaróðalinu. Mitt elsta og mitt yngsta og sonarsonur að spila saman og spjalla saman. 

Lágpunktur vikunnar var kannski bara aðstaðan á Suðurlandsbrautinni. Það er ekki bara það að loftið verði þyngra á sumrin þar heldur eru búnir að vera iðnaðarmenn að vinna á hæðinni undanfarna mánuði og ég er orðin rosalega þreytt á því að vera með nuddþega og eitthvað gerist í sambandi við framkvæmdirnar á hæðinni. Það var sem sagt verið að setja upp eldvarnarhurð við hliðina á kaffiaðstöðunni til að bæta brunavarnir. Hún fór einmitt af stað í miðju nuddi á þriðjudaginn. Brunabjallan. Lengi og þrisvar. Nuddþeginn var orðin órólegur eins og gefa ber að skilja. 

Glatað.

Namaste.


Friday, July 17, 2026

Hvalfjörður ...

... hefur verið mér nærri undanfarna viku. 

Bæði var Guðrún Halla í Vindáshlíð og svo var Óli og Katrín og Styrmir líka í bústað þar í vikunni. Við Svanur fórum svo og löbbuðum Glym á sunnudaginn. 

Ég gisti í Hvalfirðinum í fyrrinótt og þótt það var rigning var samt flott og gott að vera þarna. Minnti mig á Breiðafjörð. Gott að Guðrún Halla fílar óvæntar uppákomur (ég geri það ekki) því hún samþykkti að koma með mér nokkurn veginn beint eftir að hún kom úr Vindáshlíð.

Er að undirbúa mig andlega fyrir að Styrmir Orri (3ja ára) gisti hér um helgina. Verð að viðurkenna að ég er kvíðin. Hann sýnir mér ekki áhuga og ég veit að hann á eftir að gráta mikið. Hann vill helst vera hjá foreldrum sínum auðvitað. Er búin að fyrirskipa all hands on deck og krakkarnir hjálpa mér. Vona að það dugi til. Vona að hann sofi vel. 

Verkefni vikunnar var ekkert sérstakt. Of mikið rót á öllu svona um hásumar þegar allir eru út um allt. Finn að Styrmir saknar rútínunnar sinnar (leikskólinn í sumarfríi.) Ég geri það líka.

Hápunktur vikunnar var klárlega að gista með fjölskyldunni í Hvalfirði. Hafði gott af því. Líður alltaf betur þegar ég fer út af heimilinu.

Lágpunktur vikunnar var að við Guðrún Halla lentum í aftanákeyrslu þegar við vorum að leggja af stað í Hvalfjörðinn. Bara á Miklabrautinni á ljósunum. Ökumaðurinn sagðist hafa got distracted og bombaði aftan á okkur. Var í sjokki allan þann dag og að reyna að átta mig á hvort ég hefði fengið högg eða eitthvað alveg þangað til núna. Það er stundum gott að vera á Pathfinder jeppa. Sást lítið á okkar bíl þó það þurfi víst að skipta um stuðara en hinn bíllinn leit mun verr út. 

Mér brá svakalega. Við Guðrún Halla vorum að syngja Tvær úr tungunum og rosa stuð og gaman. Svo bara bomm. Ég var orðin svo sein. Ætlaði að vera löngu farin úr bænum. Hafði engan tíma í þetta.

Ef bara allir ökumenn hefðu fulla athygli á því sem þeir eru að gera at all times - þá væri það frábært.

Namaste. 

P.s. sá fallegan foss og læk:)



Friday, July 10, 2026

Ái

 Afsakið,

mér er illt í kálfanum (vöðvaverkir) og rófubeinið og spjaldhryggurinn og mjaðmargrindin er ekki alveg á réttum stað. En það lagast. Það gerir það alltaf. 

Er á hálfgerðum bömmer að geta ekki bara klifrað næsta fjall og spriklað meira en ég geri. Það er 10.júlí og mér líður eins og ég hafi ekki hitt náttúruna, séð foss eða lækjarnið upp á fjalli. Er með mikið FOMO varðandi það. Gott að það er náttúran en ekki eitthvað annað. 

Vikan var viðburðarrík með meiru. Ég kynntist Svíþjóð betur, eignaðist vini (allavega Facebook vini) og myndaði tengsl. Hitti Sunnevu vinkonu og dýpkaði tengslin við hana. Er mjög ánægð með að hafa hitt hana og dóttur hennar og kærasta dóttur hennar sem ég man ekki hvort heitir Axel eða Alex, manninn hennar, Ulv og son hans. Já og tvær kisur sem eru stórkostlegir karakterar. 

Ég var á viðburðarríkri kvöldvakt með stelpunum (33 sirka talsins) í skólanum þar sem þær gistu þar sem ég kynntist dásamlegri perlu sem heitir Randi og er listakona. Maðurinn hennar Ingólfur er ágætur líka. Við Randi komumst að því að við eigum báðar ættir að rekja til Noregs og á afskaplega svipaðan hátt. 

Komst að því að Svíar tala yfirleitt bara sænsku. Þeir eru ekki að skipta yfir í ensku eins og við gerum og þegar þeir borga inn á lánin sín þá actually lækka þau. Þeir sjá það tölurnar minnka. Merkilegt. 

Hápunktur vikunnar var klárlega að hitta Sunnevu mína í Gautaborg og að mynda öll þessi tengsl. 

Lágpunktur vikunnar var að koma heim. Erfitt á marga vegu. Ég var strax öskrandi í bílnum í gær. Það er annað sem Svíarnir gera, þeir eru með svo fína umferðarmenningu. Ekkert stress, bara ekki neitt. Mikill munur frá þessari íslensku þar sem ... þetta er bara svo mikið stress. 

Verkefni vikunnar var nú bara að koma okkur heim. 

Hej do.  


Namaste.

Friday, July 3, 2026

Skeyti

Er í GOTHenburg. Stopp. Þreytt. Stopp. Samt mjög gaman og er að kynnast nýju fólki. Stopp. Rúmlega 30 13 ára stelpur saman í sal er not for the weak. Stopp. Í morgun unnu þær fyrsta leikinn sinn. Það var gaman. Stopp. Í háloftunum eru nú sonur minn og maður. Ekki í sömu vélinni. Stopp.

Namaste

Friday, June 26, 2026

overwhelmed í öðru veldi


 

Það er of mikið að gerast á sömu stundu.

Er ekki að ná hausnum mínum utan um það. Það að það vantar fyrstu tvo stafina í orðið hér fyrir ofan lýsir ástandinu vel. 

Enn og aftur ætla ég að hringja í Icelandair út af fluginu okkar. Núna er orðið skýrt að Svanur fer ekki. Við Stefán fljúgum til Stokkhólms á sunnudaginn. Það er betra flug seinna þennan dag sem er beint flug til Gautaborgar sem er miklu betra. Við erum á biðlista ef einhver forfallast. Kannski meiri líkur að við fáum það flug tvö heldur en þrjú. Þá myndum við komast aðeins fyrr til Gautaborgar og losna við rúmlega 4ra tíma lestartíma. 

Það truflar mig líka frekar mikið að Stefán hefur ekki svo mikinn áhuga á þessari ferð. 

Svo fattaði fallegi hausinn minn í gær að ég á eftir að redda lest fyrir Stefán frá Gautaborg þar sem hann fer fyrr heim (3.júlí.) Er ennfremur ekki viss um ég hafi actually pantað lestarmiða fyrir sjálfa Guðrúnu Höllu heim. Þetta svona eiginlega hélt fyrir mér vöku plús allt hitt sem þarf að muna. 

Elska að Gautaborg heitir Gothenburg af því að Sunneva vinkona sem á heima þar var einu sinni goth.

En loksins er þetta að gerast. Hún fer á morgun og við Stefán hinn. Er lúmskt spennt en vildi bara að þetta væri ekki allt að gerast á sama tíma. Veisla fyrir flug hljómar skringilega. Þess vegna er ég svo spennt fyrir hinu fluginu sem fer beint til Gautaborgar. Það fer ekki fyrr en 16:55 á sunnudaginn eða eitthvað álíka. 

Biðst afsökunar á leiðinlegu bloggi. Þetta er bara nokkurn veginn það sem ég er að hugsa núna og get ekki annað. 

Líka, eru notaðar evrur í Svíþjóð?

Namaste.

Friday, June 19, 2026

confused

 Nú hef ég ágætlega oft farið erlendis.

Oftast er þetta frekar basic; panta flug á ákveðnum dagsetningum, panta hótel á sömu dagsetningum og málið dautt. 

Þessi Svíþjóðarferð næstu helgi er eitthvað allt annað. Guðrún Halla er sem sagt að fara með liðinu sínu (5.fl.kvk í Val) á Partille cup í Svíþjóð. Þegar ég bókaði hana í janúar eða febrúar hugsaði ég þetta sem aðal sumarfrí fjölskyldunnar og bókaði of langt frí á tíma sem hentar feðgunum eiginlega ekki. Þetta er einmitt tíminn sem allt er í gangi hjá Grjótavík. Mánðarmótin jún/júl. Þetta var eitthvað fjarlægt þarna í janúar eða febrúar þegar ég var að bóka þetta.

Það var kannski fyrsta vísbendingin um að þetta væri skýtin ferð að þegar ég bókaði flugin var ekki hægt að bóka flug beint til Gautaborgar. Við fljúgum því til Stokkhólms í staðinn og tökum lest þaðan. Ég var búin að bóka hótel þar í byrjun og enda ferðar en svo breyttist allt þegar kom í ljós að útskrift Óla og Katrínar er þarna 27.júní þegar við ætluðum að fljúga út. Allt í lagi. Stytti flugin um einn dag í báða enda. Þetta var hvort sem er allt of langt ferðalag. Upphaflega alveg 12 dagar. Búin að afpanta hótelin í byrjun og enda ferðarinnar þar sem við tökum lest frá Stokkhólmi til Gautaborgar sama dag og við lendum. Sem sagt 28.júní. Keypti miða á fyrsta farrými í lestina vegna þess að þeir eru refundable þar sem mig grunaði að það yrði fleiri breytingar. Sem virðist vera raunin.

Það var ekki ókeypis að breyta miðunum en ég var búin að sætta mig við þann kostað. Síðan kemur í ljós að Stefán minn vill helst ekki fara með (það skilja það allir) en hann ætlar nú samt að fljúga með mér út og vera í viku. Það er kannski of mikið fyrir hann. Ég vona að honum leiðist ekki of mikið. Breytti hans flugmiða. Kostaði um 48.000 kr.

Síðan er það að ég hef aldrei verið í veislu kvöldið fyrir flug. Undantekningarlaust er ég bara að undirbúa ferðalagið kvöldið áður, eða eftirmiðdaginn áður, því ég vil fara að sofa snemma þið vitið. Vakna í flug. Núna verð ég hins vegar fáandi mér kampavín deginum áður og á svo að vakna og fara kl 08 eða fyrr. 

Það stressar mig.

Nýjasta nýtt er að Svanur hefur engan tíma í þessa ferð. Skiljanlega. Það er allt á fullu spani í vinnunni! Hann er að tala um að fara ekki. Ætlar hann þá að afbóka flugmiðann? Hef ekki hugmynd.

Já og til að setja punktinn yfir i-ið á þessari skrýtnu ferð þá fljúgum við með Icelandair. 

Svo kannski verður bara ekkert flogið!? 

See my confusion?

Ofan á allt þá verður Guðrún Halla í búblu með liðinu sínu á meðan mótinu stendur og við megum helst ekkert tala við hana. Megum horfa á hana spila jú. Er að reyna að hugsa ekki um hvað ég verð stundum socially awkward í svona aðstæðum þar sem ég á að mingla við aðra foreldra. Svanur er betri í svoleiðis. 

Eitt annað sem er að trufla mig er að á fundi í Val sem ég fór á vegna ferðarinnar var minnst á að á þessum tíma er ekki hægt að ganga að því vísu að fá borð á veitingastað. Vegna þess hversu margir eru á svæðinu í kringum þetta mót veit maður bara aldrei!

Namaste.

Friday, June 12, 2026

Gullbrúðkaup

 Þvílíkur dagur.

Það stefnir í bongó og foreldrar mínir eiga gullbrúðkaup! 

50 ár í hjónabandi. Það er rosalegt. Foreldrar mínir eru líka í svo góðu hjónabandi. Þau gera allt saman og líður vel saman sem er gull út af fyrir sig. Aldrei nokkurn tímann hef ég heyrt þau segja styggðarorð um hvort annað eða heyrt þau rífast eða eitthvað slíkt. Bara fegurð, ást og samlyndi. 

Þau eru auðvitað mjög samhent líka. Það hefur aldrei verið neitt drama heldur alltaf bara allt gott að frétta. Hlakka til að hitta þau í dag og fagna með þeim 50 árunum. Ég giska á að það verði kampavín og gleði.


Vikan var viðburðarík með meiru þar sem ég fór í atvinnuviðtal. Var að kenna á mánudeginum, nudda á þriðjudeginum og svo atvinnuviðtal á miðvikudeginum, hippasamkoma og doing the lords work (sjálfboðavinnan) í gær og svo útrétta og veisla í dag. Læt ykkur vita meira um viðtalið síðar auðvitað ef af þessu verður. Það er ekki komið alveg á hreint.

Verkefni vikunnar var að koma Stefáni fyrr heim úr Svíþjóðarferðinni. Það sýna því allir skilning að hann vilji ekki vera með okkur allan tímann. Ég líka. Það er bara skrýtið að strákurinn minn er orðinn lögráða og ég eigi bara eitt barn eftir sem er ekki svo mikið barn lengur. 

Hápunktur vikunnar var í gær þegar ég fékk loksins almennilegt faðmlag. Sá nefnilega að vinur minn Lorens sem er kallaður Lolo stundum var með Free your voice með Victori. Hann gefur góð faðmlög. Þetta var svo góður dagur í gær að mér var næstum sama hvað svona samkomur geta stundum verið skrýtnar. Við áttum meðal annars að tóna hvernig okkur liði ein í einu í hringnum fyrir framan alla. Það var smá skrýtið en allt í lagi. Merkilegt hvað sumir karlmenn geta talað um tilfinningar sínar en aðrir bara alls ekki. 

Lágpunktur vikunnar var á þriðjudaginn þegar ég varð eitthvað döpur. Mætti í vinnuna í aðstöðuna með tvö slökunarnudd framundan og það voru menn á hæðinni að bora og með framkvæmdalæti. Auðvitað sagði ég ekkert við þá. Ég vissi að þetta ætti að gerast en var eitthvað miður mín að þetta myndi koma niður á kúnnunum mínum. Sem betur fer hættu þeir að bora og allt varð frábært. Engin læti í nuddunum.

Sem betur fer.

Namaste.

Friday, June 5, 2026

Einhversstaðar á leiðinni ...

 ... virðist ég hafa misst tískuvitið.

Finn það gígantískt sterkt þegar ég er að horfa og hlusta á podcastið hennar Mæju vinkonu sem fjallar um tísku að ég hef misst eitthvað. Fann það til dæmis á miðvikudaginn þegar við bekkjarfulltrúarnir héldum vorslútt 7.bekkjar í Nauthólsvík. 

Það hafði óvænt byrjað að rigna skömmu áður þó það hafi átt að vera þurrt þennan dag og norska spáin sýndi að það ætti eftir að rigna meira. Við vorum næstum búnar að flauta þetta af. Ég var sú eina sem mætti í regnjakka. Hvítum regnjakka. Það var fínt veður, hann (hver?) hékk þurr og allir aðrir voru bara flott klæddir. Afslappaðir í flottum fötum. 

Fór líka í Vera moda um daginn og var alveg lost. Fann ekki eina einustu flík sem mér fannst flott. Finnst það líka þegar ég horfi í búðargluggana. Er bara ekki að tengja við neitt. Það segir mikið að það sem ég er mest í er eitthvað sem Svanur hefur keypt á mig.

Vikan var alls konar. Var nuddari á mánudaginn, kennari á þriðjudaginn en leið frekar illa á miðvikudaginn. Held ég sé búin að setja of mikla pressu á mig með að finna hina fullkomnu vinnu sem er hlutastarf með bestu vinnufélögunum og þar sem mér líður vel. Tók mig því til og hélt mér upptekinni  í gær fimmtudag. Fór á hippasamkomu á Mama þar sem allt er velkomið. Leið þá betur og arkaði svo (Óli var með bílinn) í Borgartúnið að hitta atvinnutengilinn hjá Virk. Við sóttum um tvær vinnur allavegana. Er að reyna að hugsa ekki of mikið um það því oft fer ég að reyna að máta mig við aðstæður og fer að ofhugsa eitthvað sem verður líklega ekki.

Verkefni vikunnar er eiginlega kennslan í Mími. Í dag þarf ég að gera allt tilbúið fyrir kennsluna á mánudaginn. Prenta verkefnin út og svoleiðis. Maður veit aldrei hvað Svani dettur í hug með þetta hjólhýsi. Hann þarf ekki annað en að labba út þá er hann tilbúinn.

Hápunktur vikunnar var að hitta fólkið í vorslúttinu á miðvikudaginn. Var eitthvað einmana. 

Lágpunktur vikunnar var lítið atvik sem tengist breytingaskeiðinu. Einhvers konar heilaþoka. Var að kaupa mér einn hlut í bónus og skildi ekki af hverju ég gat ekki borgað. Það var vegna þess að ég var með hlutinn á röngum stað; þar sem karfan á að vera en ekki á vigtinni. Svipað gerðist síðustu helgi þegar ég var að spila við Guðrúnu Höllu nýtt mannspil sem hún var að kenna mér og svo gerðist eitthvað svipað. Eitthvað mindfuck. Sagði við að hana að ég vissi ekki að þetta mætti þegar hún var bara að halda áfram með spilið. Þetta er frekar óþægilegt en það er samt gott að vita að ég er ekki ein því stundum sé ég tiktok um hvernig konur á ehemm.. mínum aldri lenda í því að gleyma hlutum eða lenda í einhverju svona mindfucki.

Namaste.


Friday, May 29, 2026

Lítið skref fyrir mannkynið, stórt skref fyrir...

... örvæntingafullu húsmóðurina okkar.

Þau undur og stórmerki gerðust í vikunni að Stefán Máni varð 18 ára. Orðinn lögráða og hvarf út úr einkabankanum mínum og Innu og allt saman. Forsvundt. Lít á hann núna sem fullorðinn einstakling. Það gerðist líka í vikunni að hann flutti í nýja herbergið sem var einu sinni eldhúsið okkar.

Þetta hefur bara gerst einu sinni áður í mínu lífi. Það var þegar Óli minn varð 18 ára. Þá var það sérstaklega reykjavik.is man ég sem hann hvarf út af. 

Núna á ég bara eitt barn eftir og hún er orðin táningur. Þetta er allt að gerast.

Vikan var asnaleg. Náði einhvern veginn ekki í skottið á henni. Er með svona vikuleg verkefni sem ég er ekki ennþá búin að klára og verkefni vikunnar verður bara að bíða betri tíma. Það var náttúrulega frí þarna á mánudeginum og einhver sumarslaki búinn að slæðast inn.

Hápunktur vikunnar var afmæli Stefáns á miðvikudaginn. Við fórum út að borða á Hamborgarafabrikkuna sem var mikið stuð og mikið gaman. Frábær tónlist, stemmning og besti félagsskapurinn. Við erum 8 manna borð. Bara við. Klikkað.

Lágpunktur vikunnar var í gær. Sá fram á að komast ekki í yogað mitt og þá er ég frekar ómöguleg. Það voru heilir þrír hlutir sem ég þurfti að gera úti og mér fannst það dáldið mikið. Þetta er dáldil hagsmunabarátta þegar kona eins og ég þarf að fórna yoganu sínu fyrir fund. Ætli það hafi ekki verið hann sem ég kveið líka fyrir. Ef valið stendur á milli yoga og fundar þá vil ég alltaf velja yogað. Fór á fundinn sem var vegna Partille mótsins í sumar hjá Guðrúnu Höllu og er einhverju nær. Auðvitað var gott að mæta en núna finnur líkami og sál fyrir því að hugarrósskammturinn var ekki tekinn og ég er í óða önn að reyna að bæta mér það upp.

Kíró og hot yin yoga á eftir hið minnsta. 

Namaste. 

Friday, May 22, 2026

Alheimurinn talar

 Af einhverjum ástæðum er ég ekki eins andleg og ég var.

Hlusta af vana eftir skilaboðum frá almættinu og tek því oft sem merki frá alheiminum ef eitthvað gerist. Já, eða ekki. Ef eitthvað sem ég vill gerist ekki þá eru það augljóslega ekki mínar dyr. Svoleiðis.

Þess vegna finnst mér merkilegt að miðað við allan minn frítíma, sem er mikill, gerist oft eitthvað á nákvæmlega sama tíma. Tek þetta sem ástæðunni fyrir því að ég hef ekki verið að vinna í öll þessi ár. Núna er ég sem sagt komin með atvinnutengil hjá Virk og við erum basically að skoða alfred.is saman og reyna að finna vinnu við hæfi fyrir mig. Fundirnir með henni í Borgartúninu eru nú bara einu sinni í viku, til dæmis miðvikudag kl 13 eða 15. Setjum svo tíma fyrir vikuna á eftir. 

Hingað til hefur það ekki brugðist að eitthvað kemur upp á með krakkana. Einmitt á miðvikudegi kl. 13 eða 15. Þarf að sækja eða það er sýning á vegum GH. Eitthvað svoleiðis. 

Tek þessu að sjálfsögðu sem merki frá alheiminum um að fara ekki of geyst af stað í vinnu. Hef komist á flug með alls konar fabúleringar um hvað ég gæti farið að vinna við. Í gær fór ég að hugsa mikið um að vinna hlutastarf í einhverri verslun í miðbænum. Langar mikið að byrja á 4 tímum og svo kannski auka við mig.

Vikan var alls konar. Með fullt af tíma til að fylla upp í með einhverju að gera. Verkefni vikunnar var að fara í Ikea og kaupa alls konar fyrir heimilið. Aðallega stöng fyrir nýja skápinn í nýja herberginu hans Stefáns. Keypti líka gardínu í nýja herbergið sem ég er að vona að virki. Þetta er svipuð og er inni hjá GH og já, þetta er 6.000 kr gardína úr Ikea. Vona það besta bara.

Hápunktur vikunnar var þegar ég klæddi mig upp í Kronkron kjólinn minn í bongoblíðu og skundaði í Kringluna að hitta Önnu Láru. Við fórum á The devil wears Prada 2 í Sambíóunum. Myndin var æði og þvílík stemmning í bíó bara. Frekar mikið mood þessi mynd.

Lágpunktur vikunnar var þegar ég misskildi sjálfa mig og beið eftir kúnna eftir að hafa gert allt tilbúið fyrir nudd. Fattaði svo misskilninginn. Tíminn er aldeilis á sama tíma að viku liðinni.

Annars er ég frekar miður mín út af kosningunum. Ekki það að ég fíli ekki Sjálfstæðisflokkinn (það gerist með aldrinum.) Það er bara þetta helsta stefnumál þeirra sem böggar mig. Miklubrautargöng áttu að komast síðast samkvæmt undirrituðum samgöngusáttmála. Eftir að það væri búið að laga allt hitt. 

Skipta undirritaðir samningar engu máli lengur?

Namaste. 

Friday, May 15, 2026

These are the days of our lives

Það voru undur og stórmerki í lífi örvæntingarfullu húsmóðurinnar okkar síðasta sunnudag þegar hún hélt líklega síðasta barnaafmæli ævi sinnar. 

Barnið er orðið táningur og það er hugsanlegt að hún kríi út líka afmælisboð á næsta ári en það er fermingarárið og hugsanlega lætur hún sér það nægja. Allavega. Mér reiknast til að ég hafi haldið um 40 barnaafmæli fyrir börnin mín. Þetta er alltaf meira en að segja það og streitustigið oft ansi hátt síðustu tvo tímana fyrir veislu. Mig minnir að það hafi verið í fyrra eða þar á undan sem ég var slöpp og orkustigið var í lágmarki. Það var erfitt.

Ég man að það var ansi stórt og mikið fyrir mig þegar ég þurfti ekki lengur að sækja á leikskólann kl 16. Það var svo yfirgnæfandi hlutur af lífinu í 15 ár að þurfa alltaf að sækja á þessum tíma. 

Vikan var fræðandi. Byrjaði hana vel úthvíld og til í allt þegar ég henti vanhugsuðu skíti inn á Bluesky (eins og Twitter) varðandi borgarlínuna og allt varð vitlaust (eða svoleiðis.) Get sjálfri mér um kennt því ég gat sagt mér að það að segjast ekki vilja borgarlínu félli illa í kramið hjá vinstra fólki. Ástæðan er algerlega sjálfselsk því að þó að Miklubrautargöng hljómi skynsamlega og vel þá gerir sjálf framkvæmdin það ekki þar sem ég bý við Miklubraut. Hef sjaldan kynnt mér málin eins vel fyrir kosningar og núna og rýndi vel í það sem flokkarnir leggja áherslu á í samgöngumálum. 

Veit núna að borgarlínan og Miklubrautargöng eru alls ekki sami hluturinn. Henti vanhugsaða skítinu fyrst inn og kynnti mér málin svo í framhaldi af því. Borgarlínan hljómar mjög vel og hlutar hennar eiga vissulega rétt á sér en með henni er vissulega verið að þvinga fólk úr bílunum og ég skil vel að það gangi ekki fyrir alla.  

Endaði á að kjósa Framsóknarflokkinn í fyrsta skiptið á ævinni enda er Einar með fæturnar á jörðinni og er í miðjunni en ekki galhoppandi til hægri eða vinstri með einhverjar öfgar. Það má endurskoða allt og hlusta á það sem fólkið vill. Það má til dæmis bakka með áformin á Suðurlandsbraut og svo framvegis.

Hápunktur vikunnar var í gær þegar ég sveif um hjólastígana á nýja rafmagnshjólinu mínu alla leið út á Álftanes. Það bæði frelsandi og gaman. Fann til mín þegar ég var stundum á miðri götu svífandi niður hana. Já eða upp sem var auðvitað lítið mál með því að ýta á turbo;)

Lágpunktur vikunnar á mánudagsmorguninn þegar ég var miður mín vegna viðbragðanna við vanhugsaða skítinu. Það voru tvær konur sem settu athugasemdir inn. Hvort það vægi virkilega þyngra (geðheilsan mín) en bættar samgöngur fyrir alla á höfuðborgarsvæðinu. 

Var eiginlega miður mín vegna þessa alla vikuna og hlakka til að komast úr þessari borg óttans á eftir með góðum konum.

Namaste.





Friday, May 8, 2026

Mjög athyglisverð ...

 ... helgi að baki.

Ég var eiginlega vikuna að jafna mig eftir helgina. Kannski ekki alveg. En samt. 

Fór í svo athyglisvert matarboð/sextugsafmæli á laugardagskvöldið í Njarðvík að ég er ennþá að hugsa um það. Þær voru svo skemmtilegar Sigga frænka hans Svans og Eva vinkona hennar. Konur rétt rúmlega þrítugar. Eva var sérstaklega skemmtileg og kom skoðunum sínum svo fallega til skila. Enn og aftur hitti ég manneskju sem finnst cacao seremóníur harkalega glataðar og jóðlið í kringum það fáránlegt og meðaumkunnarvert. 

Það kemur mér svo mikið á óvart hvað margir, liggur við, hata eitthvað svona. Svo sterk mótstaða. Ég skil það ekki. Þar sem ég hef áður verið stimpluð sem djúpt sokkin í cacao-ið ákvað ég að þegja bara. Brosti reyndar og hafði ótrúlega gaman af þessum litríka karakter sem jú fer í svett en þolir ekki jóðlið í kringum það. Fékk mér smá rauðvín með Óla og Þurí og mætti svo vel stemmd í 3ja ára afmælið hans Styrmis Orra á sunnudeginum.

Hvað þessi strákur er fallegur og flottur. Hann krúttaði yfir sig í spiderman búning sem hann fékk í afmælisgjöf þar sem hann setti sig í stellingarnar og já, gríðarlega vel heppnað afmæli. Sólin var með okkur og hægt var að vera út á palli og í garðinum hjá foreldrum Katrínar. Dásamlegt. 

Vikan var skrítin vegna þess að Guðrún Halla var ekki heima. Hún var í Vatnaskóg með árganginum sínum (7.bekk) svo það var tómlegt í kotinu og mamman saknaði dóttur sinnar. Hún vill halda upp á fjölskylduafmælið sitt á sunnudaginn en eins og alltaf í maí er óvíst með mætingu á fólkinu. Skil það nú bara ágætlega reyndar. Er líka óviss hvað komast margir fyrir í "nýju íbúðinni" svo þetta kemur bara allt saman í ljós. 

Hápunktur vikunnar var á miðvikudaginn þegar ég átti góðan dag. Fór og hitti atvinnulífstengil í Virk í fyrsta skiptið. Núna á að skófla manni út á vinnumarkaðinn. Er samt þarna út ágúst nema ég fái vinnu fyrr. Kem til með að hitta hana vikulega svo núna fer nú eitthvað að gerast kannski. Væri ótrúlega sátt með að vera komin með eitthvað sem mér líður vel með fyrir haustið.

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar ég var eitthvað lítil í mér. Það rættist samt úr deginum og ég fór til kíró á nýjan stað og yogað mitt sem alltaf bjargar öllu. Haldreipi mitt í lífinu ef ég á að vera mjög dramatísk. Núna erum við í yoganu svo mikið að spá í kosningamiðstöðinni sem er komin tímabundið á jarðhæðina í Skipholtinu. Viðreisn. Þar sem Gummi og Talya fylgjast lítið með fréttum og samfélagsmiðlum eru þau að spyrja okkur hvað þessi flokkur stendur fyrir. 

Það eru reyndar stórfurðulegar og drastískar breytingar í mínum pólitíska haus. Eitthvað sem ég myndi seint viðurkenna fyrir öðrum og kemur sjálfri mér mikið á óvart. 

Vil ekki tala um það.

Namaste.

Saturday, May 2, 2026

Aftur..

 .. rugluðu frídagar mig. 

Jú, það var föstudagur í gær en það var frídagur. Ætli mér líði ekki þá eins og sé laugardagur. Fyrst það var 1.maí skilaði ég inn uppfærðu skjali til bókarans varðandi nuddið og bara steingleymdi að blogga. 

Þessi helgi er frekar annasöm sem er nú bara hressandi. Sextugs afmæli í kvöld hjá flottri mágkonu og fjölskyldunni hennar. Það segir svo margt um fólk þegar manni líður vel með því og þau eru þannig. Gulls ígildi. Elsku Styrmir minn verður 3ja ára á morgun sunnudaginn 3.maí. Það var handboltamót þessa helgi líka sem mér fannst á tímabili dáldið mikið af því að ég var á Ormstungu í Þjóðleikhúsinu líka á fimmtudagskvöldið með Óla mínum. Það bætti ekki úr skák að það gekk ekkert sérstaklega vel hjá stelpunum og það endaði með tapi í öllum leikjum. Það getur verið erfitt. 

Guðrún Halla er frekar svekkt með okkur foreldrana að vera ekki búin að kaupa Vals fatnaðinn fyrir mótið í sumar. Það er bara frekar mikið álag heima. Varð hugsað til Hliðsness í nótt þegar götuhreinsibíll vakti mig. Það er stundum mikil veisla að sofa beint upp við Miklubraut. Mikið um mótorhjól 1.maí til dæmis. Ef ég væri í Hliðsnesi væri ekki álag og svo sannarlega enginn götuhreinsibíll um miðja nótt. 

Samt langar mig ekki beint til að flytja í úthverfin. Frekar svona fá frí frá borgarlífinu stundum. 

Svo er pökkun fyrir Vatnaskóg beint eftir afmælið á morgun. Það verður svo skrýtið að hafa enga Guðrúnu Höllu í nokkra daga. 

Það var mjög gaman á mæðginadeiti með Óla mínum. Við fórum á Caruso sem við komumst að að er ítalskur staður. Auðvitað. Ormstunga var svo ævintýri út af fyrir sig:) Vorum á aftasta bekk sem setti smá strik í reikninginn. Hefði viljað sjá sýninguna í betra návígi. Það er líka alltaf smá vonbrigði þegar búið að hrósa sýningu í hástert. Hún sé einfaldlega ÆÐI. Væntingarnar eru þá kannski of háar. Eitthvað svoleiðis. 

Namaste.

Friday, April 24, 2026

Þessi vika...

 ... flaug áfram. Flaug.

Ringlaðist vegna frídagsins í gær. Rauður dagur á fimmtudegi. Fattaði einhvern veginn ekki að það væri föstudagur í dag og bloggaði þess vegna ekki í morgun. Þetta var virkilega góður frídagur í gær. Sumardagurinn fyrsti. Fann sterkt hvað allir voru í góðu skapi og eru ennþá í dag. Fólk brosir og brosir til mín. Mikið gaman, mikið fjör. Fór í Sundhöllina í gær og þar var stemmning. Það opnaði ekki fyrr en kl 11 og við vorum nokkur sem biðum kurteis fyrir utan. Starfsmaðurinn sem kom út var svo hress. Kona komin í sumarmúnderinguna; stuttbuxur og bleikan bol. Allir brosandi og slakir og sáttir í sundi. Fann líka þegar ég fór í Laugar áðan að allir voru í góðu skapi og brosandi. 

Allt svo leikandi létt:)

Vikan var eins og rússibani. Dáldið eins og kona á breytingarskeiðinu. Maður veit ekki alveg hvar maður hefur hana. Var leikandi létt fyrrihlutann svo kom dýfa á miðvikudeginum þegar ég var að fara í atvinnuviðtal eða svoleiðis. Vissi að um væri að ræða líklegast kvöld- og helgarvinnu. Það var kannski þess vegna sem ég var kvíðin. Ekki alveg tilbúin til að fórna kvöldunum og helgunum. Var í rauninni fegin þegar kom í ljós að þetta var ekki match. Þetta var swipe left. Passaði bara ekki og var ekki það sem ég hélt að þetta væri. Hélt að þetta væri dvalarheimili en þetta er eitthvað annað. Þær sáu líka að ég myndi ekki passa þarna inn. 

Hápunktur vikunnar var þegar ég var loksins búin að jafna mig á miðvikudaginn eftir viðtalið og ákvað að bjóða grasekklinum bróður mínum heim í rauðvín og grill. Það var gott og gaman að fá þá feðga Tryggva og Óðinn Pind í heimsókn. Þeir eiga heima hinum megin við götuna svo auðvitað! Konan hans er í Víetnam um þessar mundir á vegum EFTA nefndarinnar. Frekar svalt. 

Lágpunktur vikunnar var þennan sama dag, miðvikudag þegar ég var bara hrædd lítil mús á leiðinni í atvinnuviðtal. Hef ekki verið á vinnumarkaðnum í nokkur ár núna og er orðin eitthvað lítil í mér. Veit ekki einu sinni hvort ég höndli 100% vinnu. Held bara alls ekki svo ég er svona frekar að leita að 40% vinnu eða eitthvað. Leiðinlegt að finna fyrir kvíða. Ansi langt síðan síðast. Var að reyna að sjá fyrir mér að mæta á helgarvakt kl 08 þegar ég kemst ekki einu sinni í yoga kl 10 á laugardagsmorgnum. 

Hvað get ég sagt? Við erum B týpur og finnst gott að vakna í rólegheitunum um helgar. Engan asa. Finnst til dæmis óbærilegt að mæta með Guðrúnu Höllu á handboltamót um kl 09 svo ... já.

Konan er ennþá frjáls. 

Eða svoleiðis.

Namaste.

Friday, April 17, 2026

Beverly hills 90210

Mig rak í rogastans þegar Jón Brynjar bróðir sendi mér sms um að Beverly hills 90210 unglingaþættir lífs míns væru komnir á Sjónvarp Símans. 

Er í gegnum árin búin að leita að þessum þáttum alls staðar, á öllum streymisveitum með engum árangri. Loksins. Takk kærlega Sjónvarp Símans! Það er svo skrýtið að mér finnst eins og þessir þættir hafi gerst í gær. Elskaði þá svo mikið þegar ég var unglingur að það hálfa væri nóg. Fyrirgefðu elsku mamma fyrir að hafa æst mig þegar ég þú gleymdir í eitthvert skiptið að taka upp fyrir mig. Á videotækið þar sem hver þáttur var tekinn upp á eftir öðrum.. 

Það sem er verið að sýna núna eru alveg fyrstu þættirnir. Season 1. Er að rýna í bakgrunninn í sumum senum og já.. þetta er alveg fyrir svolitlu síðan. Hvernig fólk skreytti bakgrunninn þarna er næstum útí 80's. Þá er ég að tala bæði á heimili Kelly til dæmis og kaffihúsum og fleirum stöðum. Peach pit er samt alltaf flottur. Merkilegt miðað við að þættirnir gerðust í gær. Eða svoleiðis. Mér finnst þeir eldast vel. Eins og til dæmis Brenda klæðir sig er ennþá flott að mínu mati. Þættirnir voru teknir upp á árunum 1990 til 1995 fyrst. Svo aftur á árunum 1998 til 2000.

Er að reyna að muna ekki að Luke Perry, sem leikur Dylan er dáinn. Sömuleiðis Shannon Doherty sem lék Brendu. Elska að horfa á þessa þætti. Feels like home. Man eftir flestum af þeim og lifi mig alltaf jafn mikið inn í þá. Grét til dæmis í sófanum eitthvert kvöldið í vikunni þegar faðir Dylans dó með vofleglegum hætti. Beverly hills 90210 eru algerlega unglingsárin mín. Tíminn er svo skrýtinn, jú það eru sirka 33 ár síðan en damn hvað þeir eldast vel þættirnir. 

Í síðasta þætti var Kelly að taka megrunarpillur til að vera grennri, Andrea var að reyna að ná viðtali við Dylan fyrir skólablaðið og Brandon var kominn með gambling problem. David var að reyna að meika það sem tónlistarmaður með misjöfnum árangri og Dylan langaði að drekka frá sér vandamálin. Sem betur fer fékk hann að vera hjá Walsh fjölskyldunni til að ná áttum. Kom í ljós að mamma hans var í leynilögreglunni (held ég) og pabbi hans líka. 

Fyrir mér eru karakterarnir á undarlegan hátt vinir mínir. Unglingsárin mín. Æskan mín. 

Ég fylgist með eftirlifendum á Instagram. Steve Sanders (Ian Ziering) virðist seigastur af þeim. Sá að hann var að keppa í Dancing with the stars um daginn. Kelly Taylor (Jennie Garth) líka. Donna Martin (Tori Spelling) virðist ekki vera á góðum stað án þess að ég hafi kafað djúpt í málefni hennar. Ef ég skil þetta rétt þá hefur hún tapað auðævum sínum til fyrrverandi mannsins síns sem virðist hafa spilað með hana. Hún er fjögurra barna móðir og lenti í bílslysi um daginn en það er allt í lagi með hana og börnin. Hún er dóttir framleiðanda þáttanna (faðir hennar var Aaron Spelling) og átti mikinn pening. Leiðinlegt að þá er hún dáldið eins og karakterinn sinn Donna í þáttunum sem trúir á það góða í öllum. Lendir svo í manni sem nýtir sér það. 

Namaste.

Friday, April 10, 2026

heimkoman

 Tene var góð.

Eins og alltaf. Fórum á sömu staðina og vanalega í smá nostalgíu. Suka á Fanabe ströndinni, Luuma veitingastaðinn þar fyrir ofan og fylgdumst með breytingunum á ströndinni þar. Hún var aðeins öðruvísi núna. Vorum á amerísku ströndinni á hóteli sem við höfum ekki verið á áður H10 eitthvað, náðum því aldrei almennilega. Conquistador. Erfitt fyrir okkur að segja þetta orð, tíhí.

Heimkoman var hræðileg. 

Innra með mér er húsmóðir sem ljómar alls ekki. Auðvitað var allt út um allt út af framkvæmdunum. Flísari hafði verið að vinna í íbúðinni á meðan við vorum úti og já, í boði var klósett sem jú virkaði en mátti eiginlega ekki setjast á almennilega. Svanur er alltaf svo ofboðslega dramatískur með allt svona, sagðist þurfa að endurflísa kassann eða eitthvað ef það yrði sest of fast á það. Er eitthvað meira niðurlægjandi og auðmýkjandi en að komast ekki á klósettið heima hjá sér?

Auðvitað fór ég beint til mömmu (og pabba.) Hér hefur mér liðið æðislega vel. Hef sofið eins og steinn. Langar alls ekkert heim. Það er samt ekki eins og ég geti vælt yfir því að það sé ekkert að gerast. Það er bókstaflega allt að gerast. Flísarnar komnar á, parketið komið á, Stefáns herbergi tilbúið fyrir utan hurðina. Baðherbergið allt að koma skilst mér. Vona svo innilega að skápurinn og vaskurinn komist í gagnið í dag því það þýðir að ég get komið dóti aftur fyrir. Núna er allar baðherbergisvörur inn í stofu og allt út um allt. Þvottavélin farin aftur fram á gang og kaosið yfirþyrmandi. 

Í gær bjó ég basically í bílnum og passaði að pissa þar sem ég var rétt áður en ég kom heim. Það var ekki hægt að vera heima. Ég sótti actually um vinnu í gær á vinnustofu hjá Virk. Í allri þessari atvinnuleit er þetta í fyrsta skiptið sem ég geri það. Hehe.. sumir neurodivergent að passa upp á orkuna sína. 

Held ég fari aftur heim í dag þó mig langi það alls ekki. Mér finnst mjög erfitt að funkera í öllu þessu drasli. Held ég fái mér bara prosecco eða eitthvað.

Chiao bella,

Namaste


Thursday, April 2, 2026

Hvítvínskonan

Skrýtið að skipta um persónuleika í sama lífinu.

Ég kynni fyrir ykkur tadada: hvítvínskonuna. Áður stundaði ég stíft yoga í fríum. Núna er ég svo stíf að ég kemst ekki almennilega í downward dog en það er allt í góðu því bráðum verður klukkan wine o’clock.

Áhugavert.

Betra að sumu leyti. Helps to give less fucks I guess.

Annars er ég farin að hafa áhyggjur af því hvað öllum er sama heilt yfir. Það verða einhverjir að standa á sama. Annars gengur dæmið ekki upp.

Læt þetta duga í bili. Ekki gaman að blogga í símanum.

Namaste.

Thursday, March 26, 2026

Jæja Ísland

 Þetta hefur verið skrýtinn vetur. 

Fyrst froststillur og flott veður í janúar og febrúar og svo mætir mars eins og miðaldra kona á breytingarskeiði. Góð stundum en hálkublettir og skafrenningur og svo núna brjálæðiskast. Hún er búin að gera alla svo hrædda að vegum er lokað til hennar og frá. Það er beðið eftir að hún rói sig. Það á víst að gerast upp úr hádegi. 

Hef nú ekki tekið menopausal rage í langan tíma en datt þetta bara í hug í stjórnleysi stormsins hérna fyrir utan. Það er nú bara notalegt að vera inni og fylgjast með en þessi kona (ég) þarf að halda ró minni eins og endranær í dag og muna eftir öllu sem þarf að muna eftir. 

Mér finnst erfitt að hugsa þegar baðherbergisdót og skrifstofudót og núna ræstiskápurinn er í óreiðu á öðrum stað en það á að vera. Jú, þessi íbúð er hugsanlega orðin of lítil fyrir okkur en öryggisfíkillinn er ekki að fara selja þegar markaðurinn er óstöðugur og við líka. Atvinnumál og svoleiðis.

Það er markmið ársins 2026 að fá mér fasta atvinnu. Dreymir um hlutastarf á stað þar sem mér líður vel og fólkið er gott. Kannski ég sendi tvo tölvupósta í dag varðandi það. 

Það er smá óþægilegt að eiga flug á milli hríða. Er að reyna að hugsa ekki um það. Það er líka skrýtið að það verður flísari hérna sem jú er myndarlegur en ég þekki ekki að vinna hérna á meðan við erum úti. 

Annars verð ég að hrósa mér fyrir að vera ekkert búin að kvarta yfir að hér hefur ekki verið baðherbergisvaskur síðan í október og núna er engin sturta heldur. Er búin að kynnast sturtunni í World Class Kringlunni vel undanfarna daga og er með ábendingu til ræstingastjórans ef slíkur er þarna. 

Verkefni vikunnar var að höndla aðstæður heima með allt gjörsamlega út um allt og Svanur alltaf að finna leiðir til að búa til meiri óreiðu. Núna er hann að tala um að rífa niður baðherbergisskápana (í dag, degi fyrir brottför.) Hvar það dót á að fara veit ég ekki. Ofan í ferðatöskurnar?

Hápunktur vikunnar er stöðugleikinn sem ég finn fyrir núna þrátt fyrir draslið heima.

Lágpunktur vikunnar var líka núna þegar ég sé að ég er skráningarbanni í world class. Yogatími hefði verið mjög gefandi. Er orðin háð þessum infrarauða sal. 

Líka, fyrir konu sem er oftast með allt á hreinu er svekkjandi að hafa gleymt að afskrá mig úr yogatíma og vera í skráningarbanni eins og óþekkur krakki.

Namaste. 




Friday, March 20, 2026

Flækt

 Er búin að vera mjög flækt þessa vikuna. 

Það er ekki öllum gefið að búa á tveimur stöðum og vera með dótið sitt út um allt. Vera út um allt og hvergi. Ástandið heima er á mínum mælikvarða skelfilegt. Mæli það með því að um leið og ég kem heim stöðvast hugsun og ég get ekki hugsað. Funkera ekki í clutter og kaos. 

Það er verið að vinna í tveimur rýmum núna, baðherginu og nýja herberginu hans Stefáns. Þetta er ótrúlega mikið rask fyrir mig. Finnst þetta svo óþægilegt. Get ekki verið til í þessari óreiðu. Það er líka eitthvað við að hafa endalausa karlmenn vaðandi um allt í öllu draslinu sem ég get ekki. 

Fór þrisvar í yoga í vikunni til að vera einhvers staðar sem mér líður vel. Það hjálpaði. Það er líka ómetanlegt að vera hjá foreldrum mínum. Hér er kyrrð og hér er friður. Hreint og engar framkvæmdir. 

Fór á tvo fundi á vegum Virk í vikunni. Það er verið að loka mér. Brátt telst ég endurhæfð og á að fara vinna. Allt í lagi með það. Er svo mikið að vanda mig að vernda sjálfa mig fyrir álagi og áreiti. Langar svo að lenda á réttum stað þar sem mér líður vel. Þá gæti þetta virkað. 

Fór að sjá Krishna das í Hörpunni á þriðjudagskvöldið. Hátíð hippanna svo sannarlega. Árshátíð andlega heimsins á Íslandi. Þarna voru allir sem halda rými fyrir seremóníur og yoga. Æðislegt. Skemmti mér vel. 



Er að fara senda ferilskrána mína á einn stað á eftir. Mannaði mig upp í að hringja eitt símtal í gær til staðar sem ég hef haft augastað á. Það gæti gengið á báða bóga.

Verkefni vikunnar var ... ha? Veit varla hvar ég er eða hver ég er rn.

Hápunktur vikunnar var að sjá sjálfan Krishna das á sviðinu í Hörpu og kirja með honum. Háandleg stund.

Lágpunktur vikunnar var samansafn af imposter syndrome heima. Það er skítt að líða ekki vel heima hjá sér. 

Jú, það er kominn hiti í gólfin inná baði og þetta verður örugglega geggjuð sturta. Við fáum líka handklæðaofn. En damn it það eru búnar að vera fokking framkvæmdir síðan í október. Giska án djóks að það hafi sirka 200 karlmenn í það minnsta komið og skoðað eitthvað og unnið heima. 

Þetta er komið gott. 

Namaste.


Friday, March 13, 2026

Allt í fína Bína

 Ef þessi vika væri súlurit væri það einhvern veginn þannig að ég var svo stressuð á þriðjudaginn að ég hálf skalf þegar ég kom í aðstöðuna. Mjög mikið álag heima. Svo flutti ég mig yfir til mömmu (og pabba) og hef verið stöðug og hamingjusöm allar götur síðan:)



Var án djóks komin með einhvers konar fiðring í hausinn. Já, ennþá framkvæmdir. Núna baðherbergið. Fyrst var baðkarið fjarlægt og steinaveggurinn tekinn niður og svo ráðist í að bora fyrir nýju sturtunni og koma hita í gólfin inn á WC. Svanur hefur verið svo hugulsamur að senda mér myndir af ástandinu og það lætur mér líða verr og vilja alls ekki fara heim. Svo sagði Guðrún Halla í gær að allt væri rykugt heima og (nýju) gólfin skítug. Jeij. 

Kennslan í Mími kom í raun á góðum tíma. Rosalega gott að vinna smá og gera eitthvað svona til tilbreytingar. Ég var ekkert stressuð. Sem betur fer er þetta gott fólk í tímunum hjá mér. Held mér liði alls ekki vel ef þetta væru Íslendingar eingöngu sem ég væri að kenna. Þeir eru einhvern veginn dómharðari og óvægnari?

Verkefni vikunnar var eiginlega að lifa hana af. Asnalegt að skrifa þetta þegar það er fólk í heiminum sem þurfti actually að lifa hana af. Annars var það kennslan í Mími. Hún var einhverja hluta létt. Auðveld. Í fyrsta skiptið.

Hápunktur vikunnar var í gær þegar ég nemandi sat eftir og talaði við mig. Spurði út í mig og hvort ég kæmi ekki örugglega aftur. Gaf mér svo smá gjöf (nammi frá Tælandi) og gaf mér svo faðmlag og hrós. Það var gott í sálina. Mig langar til Tælands núna. 

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar ég var alveg út um allt. Búandi á tveimur stöðum og í bílnum hennar mömmu liggur við. Ætlaði að fá mér daglega cacaobollann áður en ég fór í kennslu en tækið (ninja booztið) brást mér og allt fór út um allt. Ok, það var eiginlega ég sem brást af því að ég skrúfaði dæmið ekki alveg rétt á. Svo braut ég óvart krukku í einhverjum æsing og það fóru glerbrot út um allt. Mamma þurfti að hjálpa mér eins og ég væri 10 ára krakki!

Annars hef ég verið óvenju létt. Finn líka að fleiri eru það. Vetrardrunginn aðeins farinn að létta á sér og blessuð birtan farið að staldra við lengur. Svo gott.

Namaste.


 


Friday, March 6, 2026

Ansans ári

Þessi vika er búin að vera alls konar. Frekar streitumikil ef ég á að segja satt. Er ekkert brjálæðislega ánægð með þennan vetur sem ákvað allt í einu að mæta á svæðið. 

Guðrún Halla varð 13 ára á miðvikudaginn sem þýðir að ég er ekki lengur með nein börn á mínu framfæri heldur unglinga. Tvo táninga. Það er nú eitthvað. Mér finnst það allavega smá merkur viðburður í mínu lífi. 

Herbergið hans Stefáns er tómt núna eftir að eldhúsinnréttingin var tekin niður síðustu helgi en það þarf að vinna heilmikið í því. Það er búið að plasta það eftir kúnstarinnar reglum og núna getur maður labbað inn í það með að opna það í rennilásar U-i. Dáldið eins og að labba inn til einhvers sem er í einangrun eða eitthvað. 

Ég er farin að stressa mig á næstu viku sem er regla nr 1 í núvitund um að gera einmitt ekki. Er að reyna að hugsa ekki um hana og ignora hana bara. Er sem sagt að fara kenna allt of mikið. Er svo fullkomlega out of my element þegar ég er að kenna. Með meiriháttar ljósfælni og sviðsskrekk og bara allan pakkann. Af hverju ertu ekki búin að finna eitthvað annað þá Svava? ...

Verkefni vikunnar var að hafa samband við Heilsuhælið í Hveragerði að athuga með vinnu. Sé mig dáldið fyrir mér inn á einhvers konar endurhæfingarmiðstöð. Myndi tengja svo vel við fólkið held ég.

Hápunktur vikunnar var á miðvikudaginn þegar við fórum út að borða á Ráðagerði. Finnst ég svo rík að panta borð fyrir 8 manns. Bara við. Fékk svo æðislega máltíð, Ráðagerðis lasagne og Prosecco. Við Emilía skáluðum saman. Þetta var ekkert smá gott. 

Lágpunktur vikunnar var í gærkvöldi þegar þvagblaðran höndlaði ekki að gluggarnir væru opnir í frostinu í yogatímanum. Bölvaði því að hafa ekki fengið plássið (mitt) hjá veggnum. Þá hefði þetta ekki gerst. Var sem sagt of nálægt gluggunum sem voru báðir opnir. Fann að þetta yrði erfitt kvöld og nótt með yfirþyrmandi verki. Poppaði fullt af pillum þegar ég kom heim, kviðurinn blés út eins og hann væri með fótbolta inn í sér (þetta vissi ég að myndi gerast þegar þetta var að gerast.) Sko yogatími er heilagur þannig að maður er ekkert að skipta um pláss eða loka gluggum þegar hann er byrjaður. Þetta var sem sagt sársaukafullt og þjáningafullt og algerlega óskiljanlegt af hverju líkaminn hagar sér svona. Vissi að ef ég færi að reyna að útskýra myndi enginn skilja. (Smá story of my life.)

Namaste.


 

Friday, February 27, 2026

as within so without

Þetta var úr fyrstu sjálfshjálparbókinni sem ég las. Bókin var Hámarksárangur eftir Brian Tracy. Geggjuð bók. Var hugsað til þess sem þar segir meðal annars um hvernig ytri raunveruleiki manns endurspeglar hinn innri. Sem sagt sá sem líður vel og er með allt á hreinu og allt er í fína bína er með allt í röð og reglu. Bíllinn er ekki með neinu drasli inní, heimilið manns er hreint og allt er í ró vegna þess að það er staður fyrir hvern hlut.


Núna erum við búin að vera í framkvæmdum frá því í október og eins og til dæmis í gær upplifði ég að allt væri bókstaflega á hvolfi. Svanur vill jú gera hlutina vel og var því að hræra flísalíminu eða hvað sem þetta heitir með risahræru í risafötu með risavatnsmælidóti. Þeir voru tveir að klára að flísalegga á milli efri skápa og borðplötunnar í nýja eldhúsinu. Allt á hvolfi og búið að vera lengi og hausinn minn eftir því. Átti von á gestum og var undir þrýstingi að mér fannst að færa allt úr gamla eldhúsinu yfir á no time. Það er sem sagt maður að koma á laugardaginn til að taka gamla eldhúsið niður.

Fékk einhvern kvíða og varð bara voða lítil allt í einu. Hún Hólmfríður á bókasafninu sá það kannski. Góð kona. Bíllinn var búinn að vera bilaður í nokkrar vikur svo ég var bíllaus og það var mér einhvern veginn ofviða að fara niðrí bæ og labba með göngufélaganum. Það var líka veður og vatnspollar út um allt. Í fyrsta skipti frá því ég byrjaði í þessu verkefni cancelaði ég hittingnum. Bara var ekki að meika neitt. Langaði að tala við Brian um að ég geti lítið að því gert að hausinn sé á hvolfi vegna þess að íbúðin sé að hvolfi. Það var ekki ég sem ákvað að taka baðherbergið líka!

Það er líka merki um öldrun að það að allt í einu hafi vetur skollið á og mín vildi bara vera heima í örygginu. Svo komu þau, blessað fólkið mitt og hjálpuðu okkur að færa ísskápinn yfir. Katrín, þessi kjarnakona, endurraðaði í ísskápinn svo úr varð betra skipulag. Þvílíkur snillingur. Styrmir minn er botnlaus um þessari mundir. Hesthúsaði í sig skál af bláberjum (sem amma passar að eiga alltaf þegar hann kemur) og smá skyri og svo áttum við langar samræður um mat. Allt frekar dúllulegt. Töluðum mikið um að Styrmir mætti ekki alveg strax fá hnetur, hann er ennþá tveggja að verða þriggja. Hann er svo klár og skyldi þetta fullkomlega. Úr varð að hann fékk nokkur trönuber úr hnetumixinu. Hjartað mitt.

Namaste.