Mig hefur alltaf langað að vera kona sem prjónar og heklar.
Hef horft öfundaraugum á aðrar konur sem geta prjónað peysur og svoleiðis fyrir fólkið sitt. Ég setti mér þrjú markmið fyrir þetta haust og eitt af þeim var að læra að hekla (prjónið kemur kannski seinna.) Fór til elskulegrar móður minnar sem gerir allt vel og hún kenndi mér að hekla borðtusku síðustu helgi. Þetta hefur reyndar reynst mér erfitt þar sem ég er aldrei viss um hvaða lykkju ég á að fara í gegnum og svo hefur þetta verið svo samanherpt hjá mér (kannski eins og ég stundum) eða of vítt (kannski líka eins og ég stundum) og liturinn á garninu svo dökkt að ég sé ekki almennilega götin eða lykkjurnar eða þið vitið. Allavega, ég er byrjuð og skil svo vel af hverju fólk heklar og prjónar. Þetta er svo afslappandi og næstum ánetjandi. Er búin að hekla alla vikuna og nýt þess mjög en fékk smá í herðarnar á miðvikudaginn.
Verkefni vikunnar var að fara til tannlæknis. Ég veit, það er nú ekki mikið verkefni en heyrið bara söguna. Ég þurfti að hafa dáldið fyrir þessu því þetta var á þriðjudaginn. Það var bongó á þriðjudaginn og ég hafði hjólað mínu fallega hjóli í vinnuna. Lauk vinnu kl 14 og tíminn var kl 15 á Grensásveginum svo ég ákvað að útrétta smá líka. Var að sækja dropp í N1 Borgartún. Þetta var geggjað. Hjólaði framhjá Hörpu og meðfram sjónum alla leið í Borgartúnið. Þegar þangað var komið sá ég enga hjólaboga fyrir utan og ekkert til að festa nýja, dýra rafmagnshjólið við svo hvað gerði ykkar kona? Jú, leiddi hjólið inn á bensínstöðina og geymdi það þar meðan ég var að ná í sendinguna. Ég vissi ekki hvert afgreiðslumaðurinn ætlaði! Stundum er ég smá skvetta. Kom líka á tannlæknastofuna í öllum mínum hjólaútgangi og já, það var smá fyrirferð í mér. Guðrún tannlæknir vill láta jaxlinn sem skagar svona mikið niður í friði og ekki gera neitt. So be it.
Hápunktur vikunnar var ofangreint. Það var gaman hjá mér á hjólinu á þriðjudaginn og sérstaklega hjálpaði það til að vera með dúndurgóða tónlist í eyrunum. Var að hlusta á Queen. Bohemian Rhapsody eldist einstaklega vel eins og öll þeirra lög reyndar.
Lágpunktur vikunnar er kannski í dag þegar ég er með smá mammviskubit. Það er kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nemenda í 8.bekk á eftir sem mig bara langar ekki á. Nemendur eru um 80 talsins svo það verður fjölmennt. Þau eru komin með nýja kennara sem eru allir karlkyns. En, hún stendur sig svo vel í skólanum að ég þarf engar áhyggjur að hafa. Við fáum að öllum líkindum sendar glærurnar og já, ég held að ég sleppi þessu bara. Er búin að búa til yndislega self care dagskrá fyrir mig í dag sem ég vil ekki að neitt trufli.
Namaste.


No comments:
Post a Comment