Thursday, September 24, 2026

Guð minn góður

Það er komið að þessu.

Ég er að fara úr bænum. Ásetningurinn er slökun. Hvíld. Meiri slökun. Svo hvíld. Góður félagsskapur. Glens og grín vonandi. Býst við því. 

Get ekki beðið. Er svo tilbúin í þetta. 

Sólheimar. Hér kem ég. 

Friday, September 18, 2026

Ég hef ...

 ... sjaldan eða aldrei lent í því að þurfa að næsta helgi sé þessi helgi.

Næstu helgi er ég, ef allt fer samkvæmt áætlun, að fara í yoga og hvíldarhelgi á Sólheimum. Get ekki beðið. Ekki bara verður gott að komast út af heimilinu og borginni heldur er ég bara frekar þrotuð. Það tekur á að vera með tvo unglinga. Þetta eru bestu skinn auðvitað en eitthvað gerðist á þriðjudagskvöldið. Eitthvað sem hafði safnast saman lengi, með þau bæði. Í einu. Þetta var hræðilegt. 

Eldri táningurinn er búinn að yfirtaka bílinn. Hann virðist ekki skilja af hverju ég þurfi bílinn. Ég þurfti til dæmis bílinn á miðvikudaginn þar sem systir hans átti tannlæknatíma eftir vinnu hjá mér og skóla hjá henni. Er einhverjum meira drull en 18 ára táningi? Hann hélt að ég væri að færi að fara í yoga. Veit ekki hvort hann viti hvar ég vinn einu sinni. Hann hafði keypt allt í einu hlaupabretti. Hafði plantað því í stofuna, umbúðir út um allt. Morguninn eftir var í fyrsta og eina skiptið sem ég öskraði af ergelsi, í bílnum, á bílastæðinu fyrir utan heimili mitt. Ekki einu sinni lögð af stað. Helvítis umbúðirnar af hjólabrettinu tóku allan bílinn. Hann hafði plantað kassanum þannig að ég sá ekkert út um gluggann á skottinu. Kassinn var svo stór að ég kom honum engan veginn fyrir neins staðar og sá ekkert og keyrði þannig í vinnuna. Öskraði aftur. Þarf ég mömmufrí eða þarf ég mömmufrí?

Yngri táningurinn casually týndi hjólinu sínu. Það var ekki vandamálið. Vandamálið var stanslaust suð seint um kvöld um að komast í ferð með Saltkirkjunni og Kristiboðasambandinu til Færeyja. Þekki ekki þetta fólk, vinkonurnar fara ekki og hún skildi ekki af hverju ég sagði nei. Ég get ekkert verndað barnið mitt á fjölmennu móti í Færeyjum þar sem fullt af ungmennum frá ég veit ekki hvaðan koma saman. Fjandinn hafi það. 

Bóndinn er með svo stressaða orku þegar hann kemur heim að mér bregður svo í þögninni að ég öskra. Það gerðist reyndar bara einu sinni í síðustu viku. Samt. 

Verkefni vikunnar var bara algjörlega að lifa ofangreint af og ná mér á rétt strik. 

Hápunktur vikunnar var að vera samt glöð í vinnunni.

Lágpunktur vikunnar var allur miðvikudagurinn eins og hann lagði sig. Þetta var hræðilegt. Hef aldrei áður rifist svona við börnin mín. 

Bara hjálp. Þarf að komast í burt.

Namaste.

Friday, September 11, 2026

Hekl

 Mig hefur alltaf langað að vera kona sem prjónar og heklar. 

Hef horft öfundaraugum á aðrar konur sem geta prjónað peysur og svoleiðis fyrir fólkið sitt. Ég setti mér þrjú markmið fyrir þetta haust og eitt af þeim var að læra að hekla (prjónið kemur kannski seinna.) Fór til elskulegrar móður minnar sem gerir allt vel og hún kenndi mér að hekla borðtusku síðustu helgi. Þetta hefur reyndar reynst mér erfitt þar sem ég er aldrei viss um hvaða lykkju ég á að fara í gegnum og svo hefur þetta verið svo samanherpt hjá mér (kannski eins og ég stundum) eða of vítt (kannski líka eins og ég stundum) og liturinn á garninu svo dökkt að ég sé ekki almennilega götin eða lykkjurnar eða þið vitið. Allavega, ég er byrjuð og skil svo vel af hverju fólk heklar og prjónar. Þetta er svo afslappandi og næstum ánetjandi. Er búin að hekla alla vikuna og nýt þess mjög en fékk smá í herðarnar á miðvikudaginn.

Verkefni vikunnar var að fara til tannlæknis. Ég veit, það er nú ekki mikið verkefni en heyrið bara söguna. Ég þurfti að hafa dáldið fyrir þessu því þetta var á þriðjudaginn. Það var bongó á þriðjudaginn og ég hafði hjólað mínu fallega hjóli í vinnuna. Lauk vinnu kl 14 og tíminn var kl 15 á Grensásveginum svo ég ákvað að útrétta smá líka. Var að sækja dropp í N1 Borgartún. Þetta var geggjað. Hjólaði framhjá Hörpu og meðfram sjónum alla leið í Borgartúnið. Þegar þangað var komið sá ég enga hjólaboga fyrir utan og ekkert til að festa nýja, dýra rafmagnshjólið við svo hvað gerði ykkar kona? Jú, leiddi hjólið inn á bensínstöðina og geymdi það þar meðan ég var að ná í sendinguna. Ég vissi ekki hvert afgreiðslumaðurinn ætlaði! Stundum er ég smá skvetta. Kom líka á tannlæknastofuna í öllum mínum hjólaútgangi og já, það var smá fyrirferð í mér. Guðrún tannlæknir vill láta jaxlinn sem skagar svona mikið niður í friði og ekki gera neitt. So be it.

Hápunktur vikunnar var ofangreint. Það var gaman hjá mér á hjólinu á þriðjudaginn og sérstaklega hjálpaði það til að vera með dúndurgóða tónlist í eyrunum. Var að hlusta á Queen. Bohemian Rhapsody eldist einstaklega vel eins og öll þeirra lög reyndar. 

Lágpunktur vikunnar er kannski í dag þegar ég er með smá mammviskubit. Það er kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nemenda í 8.bekk á eftir sem mig bara langar ekki á. Nemendur eru um 80 talsins svo það verður fjölmennt. Þau eru komin með nýja kennara sem eru allir karlkyns. En, hún stendur sig svo vel í skólanum að ég þarf engar áhyggjur að hafa. Við fáum að öllum líkindum sendar glærurnar og já, ég held að ég sleppi þessu bara. Er búin að búa til yndislega self care dagskrá fyrir mig í dag sem ég vil ekki að neitt trufli.

Namaste.

Friday, September 4, 2026

Amma

 Amma Alla kom til mín í vikunni. 

Huglægt auðvitað. Það var minn mesti harmur í lífinu að missa hana. Hún var svo góð amma.

Hugur minn renndi í gegnum íbúðina hennar og afa í Espigerði og Gullsmára. Ég sé hana fyrir mér standa við spegilinn í Gullsmára og gera sig til. Hún var svo elegant. Allt sem hún gerði var elegant og hafði vissan sjarma yfir sér. Ég man eftir fötunum hennar. Hvað hún bar þau vel. Hvað hún bar sig vel. Hvað hún var skemmtileg. Alltaf í góðu skapi. Svo stolt af okkur öllum. Ég man hláturinn hennar. Augun hennar. Gáska hennar og gæsku. Hvað mér leið vel hjá henni. 

Það var alltaf vöfflukaffi hjá henni á laugardögum frá því ég man eftir mér og þangað til hún veiktist. Líklegast 36 ár. Þannig hélt hún okkur saman. Byggði traustan grunn fyrir okkur öll. Held að þessi vöfflukaffi á laugardögum kl 15 hafi verið stór hluti af því að okkur vegnaði flestum vel í lífinu. Henni fannst við hvort sem er öll frábær. (Hvað er árangur anyways.)

Á mínum 47 árum hef ég lent í ýmsu og ýmislegt gerst en það hefur ekkert fengið jafn mikið á mig og að missa hana. Ljós lífs míns.

Minn mesti harmur.

Hvíl í friði elsku amma.

Þín Svava.

Namaste.

Ljósið í mér sér ljósið í þér.