Það er svo sannarlega kominn miður október.
Skammdegið er mætt með smá drunga og lægðirnar herja á landið, hver af annarri. Flensan náði Guðrúnu Höllu um daginn og sýnist hún vera að ná Svani líka. Framundan er skrall sem ég er engan veginn tilbúin í. Það er á svona dögum sem mér finnst ég ekki vera eins og allir aðrir.
Það er nefnilega kvennakvöld Vals í kvöld og kvöldið byrjar á fordrykk. Svo er fordrykkur á undan fordrykknum. Er komin með drykkjukvíða því ekki má ég fá of marga fordrykki. Félagsskapurinn er mömmurnar í vinkonuhóp Guðrúnar Höllu svo ég verð aðallega að halda á þessum blessuðu fordrykkjum í fleirtölu.
Dagurinn byrjar ekki vel því Svanur vakti mig í nótt. Hann fór inn í eldhús að vaska upp með látum. Frábært. Yfirskrift kvöldsins er glimmer og glamúr eða eitthvað álíka og hmmm.. það hefði verið svo miklu betra að fá svefninn minn allavegana.
Vikan var þokkaleg. Fékk hrós og faðmlag í nuddinu sem var ágætt. Vinnan gekk svo sinn vanagang. Held áfram að vera þakklát fyrir góða vinnufélaga.
Verkefni vikunnar var að spá í endurgreiðslu frá stéttarfélaginu varðandi líkamsræktarkortið mitt í World class og kíró. Sótti um greiðsluþátttöku fyrir þónokkru síðan og var að spá af hverju það hefði ekki borist. Kom í ljós að jú, ég fékk greiðsluþáttöku en bara afskaplega litla. Það er auðvitað af því að ég er að vinna svo lítið í nuddinu að ég á bara 26,5% hlutfallsleg réttindi hjá Eflingu svo greiðslur eru eftir því. Launaseðlarnir úr nuddinu eru jú ansi lágir og ég er bara að nudda einn dag í viku. Segir sig kannski sjálft.
Hápunktur vikunnar var á mánudaginn þegar báðir nuddþegarnir mínir voru ánægðir með mig. Hrósuðu mér báðar og önnur faðmaði mig.
Lágpunktur vikunnar er í dag þegar það er lágt á mér risið eftir svefnlitla nótt.
Namaste.
P.s. hér er mynd af okkur handboltamömmunum á kvennakvöldinu

No comments:
Post a Comment