Allt fram streymir endalaust
ár og dagar líða
Nú er komið hrímkalt haust
horfin sumars blíða.
Kristján Jónsson fjallaskáld
Eins gaman og það var að komast í burtu var ekkert svo sérstakt að koma heim. Hefði alveg verið til í að vera lengur ein í burtu frá öllu. Aðallega heimilinu. Samt er það alltaf best. Allavegana..
Vikan var bara ágæt svosem. Byrjaði vel, varð svo smá erfið og þreytandi og endaði með skelli. Ég var náttúrulega hátt uppi þegar ég kom heim hafandi verið í burtu. Það er dásamlegt hvað smá hreint loft getur gert manni gott. Það var kona þarna á retreatinu sem ég fékk svo far með heim sem er með podcastið Með lífið í lúkunum. Hlustaði af því tilefni á einn þátt af því. Þar er viðtal við unga konu sem mig minnir að heitir Íris Líf. Hún er bókari og rosalega góð í að spara. Hún kom sem sagt með ýmis sparnaðarráð. Ég varð fyrir miklum innblæstri og eftir að ég kom heim leit ég í nokkur horn þar sem ég gæti sparað eða þar sem ég er að borga of mikið. Þar kom verkefni vikunnar:
Verkefni vikunnar var að fá leiguna mína á rýminu á Suðurlandsbraut lækkaða þar sem ég er núna bara einn dag í viku að nudda. Það þarf að fara vel að svona hlutum, ekki bara hafa samband og krefjast. Það var því ákveðin kúnst að fara vel að kæru Siggu sem er eða var partnerinn minn í rýminu. Núna er það meira orðið þannig að ég er að leigja hjá henni. Hún fær núna báða reikningana og sér um allt. Verkefnið tókst vel og mér tókst að fá leiguna lækkaða.
Hápunktur vikunnar var eiginlega á mánudaginn þegar mér leið vel eftir helgina og kom ekki buguð eftir helgina í rýmið heldur bara góð.
Lágpunktur vikunnar var Kveiksþáttur á RUV þar sem verið var í stuttu máli að tala illa um vinnustaðinn minn. Fréttin var ríkjandi alla vikuna. Gefið var sterklega í skyn að íbúarnir væru að fá of mikið af alls konar geðlyfjum og geðrofslyf af minnsta tilefni. Mér fannst það smá erfitt.
Vikan endaði með skelli því núna rétt áðan tókst mér að taka ekki eftir því að vatnið flæddi úr sturtunni og yfir flísarnar og vonandi ekki mikið undir parketið. Í gær hætti þurrkarinn að virka svo við tókum út eitthvað unit (eftir 24 ár af að vera húsmóðir veit ég ekki hvað það heitir.) Það var allt í ryki og Svanur mælti með að skola af því í sturtunni. Auðvitað stíflaðist niðurfallið og við hvorug föttuðum að hreinsa það eftir á.
Eitt stykki reiður maður í morgunsárið fyrir mig. Bölvað klúður.
Namaste.

No comments:
Post a Comment