Friday, July 31, 2026

Ég er ...

 ... Brynhildur.

Man alltaf eftir þessum fóstbræðraskets þar sem hin þýska Brunhildur lætur allt gamalt fólk deyja (eða teygja.) Hló svo mikið þegar ég sá hann fyrst. Aldrei hefði mig grunað að ég ætti eftir að verða Brynhildur og láta allt gamalt fólk teygja.

En jú, þessi vika var fyrsta vikan mín í sjúkraþjálfuninni á Grund. Eins mikið og mér finnst cool að vinna í 101 Reykjavík þá er það smá höfuðverkur hvernig ég kemst í vinnuna (en auðvitað, ég ofhugsa allt.) Er þakklát henni Guðrúnu yfirmanni fyrir að ráða mig og hafa trú á mér. Það er þónokkuð að gera í vinnunni, það er aðallega ungt fólk að vinna þarna eins og er og allir eru að, alltaf. Ég smá elska það því ég hef svo gott af því. Á svo sannarlega eftir að gera mitt allra besta.

Er reyndar þreytt eftir fyrstu vikuna en það var jú viðbúið. Er að elska að fá heitan mat í hádeginu í vinnunni og er bara smá leið yfir að þurfa hugsanlega að elda smá í kvöld. 

Finnst skrýtið að það sé komin verslunamannahelgi. Er engan veginn tilbúin í ferðalag enda vorum við í ferðalagi síðustu helgi. Er farin að ofhugsa það því Svanur yfir höfuð veldur mér mikilli óvissu. Mikið svona spontant. Þoli ekki spontant. Vil vita nákvæmlega hvað ég er að fara gera og hvar og hvernig og klukkan hvað. Síðustu helgi datt upp úr honum á laugardeginum eftir að hafa sofið út hvort við ættum ekki að kíkja í Þórsmörk. 

Þetta veldur mér miklu hugarangri því ég veit að hann vill vera á kvöldvöku þarna:

Komumst við örugglega þangað? (straumharðar ár valda mér hugarangri)

Komumst við tilbaka?

Hvað í ósköpunum með kvöldmat og vistir, vatn og svoleiðis. 

Hvenær myndi kvöldmaturinn sem við erum ekki með vera í Þórsmörk?!

Og klukkan hvað?!

Þetta var smá innsýn í kvíðaheilann minn sem vaknaði með þessar hugsanir. Er bara ekkert að meika að fara eiginlega yfir höfuð. Yfirfull tjaldsvæði hafa aldrei nokkurn tímann heillað mig.

Er komin af sumarbústaðafólki.

Verkefni vikunnar var að byrja í nýrri vinnu.

Hápunktur vikunnar var að byrja í nýju djobbi og fíla það og líða vel.

Lágpunktur vikunnar var að styrkja appið Parka óþarflega mikið.

Namaste.

No comments: