Friday, July 24, 2026

ládeyða

 er það ekki mannskepnunni eðlislægt að vera með rútínu?

Eitthvað fast sem gerist á hverjum degi. Hlakka til dæmis til að skólinn hjá Guðrúnu Höllu byrji. Veit að hún gerir það ekki en það er bara erfitt að hanga svona mikið. Sérstaklega í rigningunni sem var samfleytt í marga marga daga. Við erum aðallega búnar að hanga þessa vikuna. Það er alveg næs auðvitað. En það eru margar vikur í að skólinn byrji. Allar vinkonur hennar eru í ferðalögum og ... þetta er alltaf rosalega langt sumarfrí. Allt í gangi í fyrra hlutanum en núna er ekkert námskeið eftir og ef það er þurfa vinkonur að koma með. 

Það verða gífurlega mikil viðbrigði þegar ég byrja að vinna í næstu viku. Vona svo innilega að það gangi vel. Það verður mikill viðsnúningur í mínu lífi og ég verð bara að sjá til með nuddið. Það fer niður í einn dag í viku og hugsanlega laugardaga. 

Mínar vinkonur eru líka í ferðalögum. Skrýtið að vera í hálftómri borg. Við erum líklegast að fara um helgina eitthvað út á land. Alltaf hálfgerð óvissa þegar maður er með hjólhýsi og spontaneus mann eins og Svan. 

Verkefni vikunnar var aftur ekkert sérstakt. Við Guðrún Halla erum í fríi. Ég býst við að markmiðin komi með haustinu. Ætli verkefni vikunnar hafi ekki verið að líða vel og líða betur. Þáttur í því að fara í yogatíma hjá Klöru í Yogashala á þriðjudaginn. Almáttugur. Þessi tími var allt. Stelpan er snillingur. Líður núna vel í bakinu og sef eins og engill.  

Hápunktur vikunnar var eiginlega að njóta með Guðrúnu Höllu. Þetta var síðasta vikan fyrir nýja vinnu og ætli okkur hafi ekki tekist að njóta vel sumarfrísins saman. Í gær var eðalstund á Hliðsnesi á ættaróðalinu. Mitt elsta og mitt yngsta og sonarsonur að spila saman og spjalla saman. 

Lágpunktur vikunnar var kannski bara aðstaðan á Suðurlandsbrautinni. Það er ekki bara það að loftið verði þyngra á sumrin þar heldur eru búnir að vera iðnaðarmenn að vinna á hæðinni undanfarna mánuði og ég er orðin rosalega þreytt á því að vera með nuddþega og eitthvað gerist í sambandi við framkvæmdirnar á hæðinni. Það var sem sagt verið að setja upp eldvarnarhurð við hliðina á kaffiaðstöðunni til að bæta brunavarnir. Hún fór einmitt af stað í miðju nuddi á þriðjudaginn. Brunabjallan. Lengi og þrisvar. Nuddþeginn var orðin órólegur eins og gefa ber að skilja. 

Glatað.

Namaste.


No comments: