... virðist ég hafa misst tískuvitið.
Finn það gígantískt sterkt þegar ég er að horfa og hlusta á podcastið hennar Mæju vinkonu sem fjallar um tísku að ég hef misst eitthvað. Fann það til dæmis á miðvikudaginn þegar við bekkjarfulltrúarnir héldum vorslútt 7.bekkjar í Nauthólsvík.
Það hafði óvænt byrjað að rigna skömmu áður þó það hafi átt að vera þurrt þennan dag og norska spáin sýndi að það ætti eftir að rigna meira. Við vorum næstum búnar að flauta þetta af. Ég var sú eina sem mætti í regnjakka. Hvítum regnjakka. Það var fínt veður, hann (hver?) hékk þurr og allir aðrir voru bara flott klæddir. Afslappaðir í flottum fötum.
Fór líka í Vera moda um daginn og var alveg lost. Fann ekki eina einustu flík sem mér fannst flott. Finnst það líka þegar ég horfi í búðargluggana. Er bara ekki að tengja við neitt. Það segir mikið að það sem ég er mest í er eitthvað sem Svanur hefur keypt á mig.
Vikan var alls konar. Var nuddari á mánudaginn, kennari á þriðjudaginn en leið frekar illa á miðvikudaginn. Held ég sé búin að setja of mikla pressu á mig með að finna hina fullkomnu vinnu sem er hlutastarf með bestu vinnufélögunum og þar sem mér líður vel. Tók mig því til og hélt mér upptekinni í gær fimmtudag. Fór á hippasamkomu á Mama þar sem allt er velkomið. Leið þá betur og arkaði svo (Óli var með bílinn) í Borgartúnið að hitta atvinnutengilinn hjá Virk. Við sóttum um tvær vinnur allavegana. Er að reyna að hugsa ekki of mikið um það því oft fer ég að reyna að máta mig við aðstæður og fer að ofhugsa eitthvað sem verður líklega ekki.
Verkefni vikunnar er eiginlega kennslan í Mími. Í dag þarf ég að gera allt tilbúið fyrir kennsluna á mánudaginn. Prenta verkefnin út og svoleiðis. Maður veit aldrei hvað Svani dettur í hug með þetta hjólhýsi. Hann þarf ekki annað en að labba út þá er hann tilbúinn.
Hápunktur vikunnar var að hitta fólkið í vorslúttinu á miðvikudaginn. Var eitthvað einmana.
Lágpunktur vikunnar var lítið atvik sem tengist breytingaskeiðinu. Einhvers konar heilaþoka. Var að kaupa mér einn hlut í bónus og skildi ekki af hverju ég gat ekki borgað. Það var vegna þess að ég var með hlutinn á röngum stað; þar sem karfan á að vera en ekki á vigtinni. Svipað gerðist síðustu helgi þegar ég var að spila við Guðrúnu Höllu nýtt mannspil sem hún var að kenna mér og svo gerðist eitthvað svipað. Eitthvað mindfuck. Sagði við að hana að ég vissi ekki að þetta mætti þegar hún var bara að halda áfram með spilið. Þetta er frekar óþægilegt en það er samt gott að vita að ég er ekki ein því stundum sé ég tiktok um hvernig konur á ehemm.. mínum aldri lenda í því að gleyma hlutum eða lenda í einhverju svona mindfucki.
Namaste.

No comments:
Post a Comment