Það má heldur betur segja að ég hafi verið virk í vikunni enda er ég nú formlega útskrifuð úr Virk.
Dauðþreytt en virk. Var að nudda á mánudaginn og vinna svo á Grund restina af vikunni og alltaf gera eitthvað eftir vinnu. Svona gerir annað fólk þetta. Er svo þreytt alltaf að ég sef vel á nóttunni. Stend nú (eða sit) frammi fyrir þeim veruleika að allt sem hefur setið á hakanum og þarf að gerast raðast á daginn í dag. Er með sirka 5 hluti á dagskránni.
Það sem ég þoli ekki við að eldast er að ég er farin að mikla allt fyrir mér. Sumir hlutir virðast eitthvað svo óyfirstíganlegir en er fyrir öðru fólki kannski ekkert mál. Þarf til dæmis að koma jeppanum á viðgerðarstæði út af aftanákeyrslunni í sumar. Það er alltaf svo erfitt að missa bílinn og ég má aldrei við því. Vaknaði í morgun og fór strax að spá hvernig og hvenær ég ætlaði að fara að þessu og fékk næstum hausverk.
Verkefni vikunnar ... já. Ég er ekki komin á þann stað að þessi liður sé kominn í gagnið. Er ennþá í nýrri vinnu og á fullt í fangi með það.
Hápunktur vikunnar var að vinna í sjúkraþjálfuninni á Grund. Það er ansi stórt skref frá því að vera óvirk og gera kannski einn hlut á dag eða tvo yfir í að vera að allan tímann í vinnunni í fjóra tíma í senn að kynnast nýju fólki.
Lágpunktur vikunnar var að fjölskyldumeðlimur þurfti bara að vera brotin heima hjá sér (slösuð) í 10 daga og fær ekki tíma í aðgerð fyrr en á morgun. Trú mín á Ísland og hvernig hlutirnir virka hérna lækkaði um alla stuðlana. Hvað erum við ef við getum ekki sinnt slösuðum þegnum landsins? Ég skil allt og ekkert núna. Í hvað fara fjármunirnir og hvernig er þetta ekki forgangur; að koma bráðamóttökunni í mannsæmandi stand?
Pirruð.
Namaste.

No comments:
Post a Comment