
Ég var fancy í gær og fannst það æðislega gaman!
Mér er neblilega boðið í TVÖ brúðkaup í sumar (bæði í ágúst). Og ég keypti mér dress í gær! Tvö dress!
Sat á Mokka kaffi (úti) og var bara að njóta lífsins og útsýnisins og lesa smá DV og svona; bara blaa þið vitið. Svo fatta ég að mig vantar dress fyrir brúðkaupin (ok, var reyndar búin að fatta það áður) og fatta á sama tíma að ég er búin að vera virða fyrir mér fancy svoleiðis búð sem er beint á móti (Boutique Bella).
Álpast svo þarna inn og varð um leið trapped. Þið vitið þegar maður er sá eini í búðinni og BÁÐAR konurnar eru að aðstoða mann. Ég bara varð að kaupa eitthvað.. En gerði nú reyndar kostakaup og er held ég bara mjög sátt við það sem ég keypti. Þetta er allaveganna fancy pancy og þannig er maður í brúðkaupi, yes?
Ég komst alveg í snobb fíling: "Ég er nefnilega að fara í tvö brúðkaup í ágúst. Eitt í nokkurs konar sveitakirkju hérna á Íslandi en annað í Englandi, svona sveitabrúðkaup í Bretlandi." Og þessar elskur sem vinna þarna snerust um mig eins og ég veit ekki hvað. Ég reyndar þoli ekki að máta föt. Af einhverjum ástæðum fer ég oft að svitna í mátunarklefum, sérstaklega þegar einhver er að bíða eftir að sjá mig í dressinu.. Og það var nú sérstaklega heitt í gær..
Anyhows, dresses for weddings:
SORTED
:)
Já svo fer nú að koma að því ég fari að skrá mig á Facebook.
Apparantly it's the latest thing
Daaahhh
(Af hverju er ég alltaf svona sein að gera svoleiðis hluti og geri þá yfirleitt þegar the trend has almost past?)
Why??