Monday, July 14, 2008

I had the weirdest dream last night...



Oftast man ég ekki drauma nema rétt þegar ég vakna, svo hverfa þeir. Þetta er víst algengt. En draumurinn sem mig dreymdi í nótt situr ennþá í mér, sem er svoo óvenjulegt.

Ok, here goes:

Ég var að flytja en það voru bara ég og Óli sem vorum að flytja (eins og þetta hafi verið á þeim tíma þegar við vorum bara tvö í familyunni). Við vorum að flytja í Vesturbæinn og ég var að gera við rakaskemmdir í loftinu í nýju íbúðinni (err.. hello!). Í íbúðinni var ultra cool eldhús. Það var rosa spacað með sixties þema eða diskóþema eða eitthvað. Það var eins konar neon fílingur í því og það var myrkvað (mjög spes) og skápahurðarnar voru svipaðar og amerískar ísskápshurðir, nema neonfjólubláar.

Anyways, svo er ég í strætó í nýja hverfinu og eru ekki Ingibjörg Sólrún og Steingrímur J. Sigfússon í strætó!! Og þau voru svooo kumpánleg og mestu mátar, alveg eins og síamstvíburar eða eitthvað. Þau voru MJÖG kát og glöð og voru að segja mér eitthvað, man ekki hvað.


Svo vakna ég við það að ég er í nýju íbúðinni og er að spá: "hey, þarf ég ekki að selja gömlu íbúðina til að hafa efni á þeirri nýju?...."

??!!

Hvað þýðir þetta? Ætli það sé að koma vinstri stjórn á Íslandi?? Þar sem umhverfismál verða í brennidepli?? Er ég að fara flytja? Hhhmmmm...

No comments: