Tuesday, August 26, 2008

Leiðist ekki..



Jæja, brúðkaup bestu vinkonunnar og skírn Mána næstu helgi, kvarta ekki yfir að hafa ekki neitt að gera:)

Hef í hyggju að gera myndasögu á blogginu um Englandsferðina miklu en það
kannski bíður þangað til eftir næstu helgi..

Og Tinna mín, í september skrifa ég þér bréf og þar verður innifalið boðskort í skírnina. Það verður auðvitað allt of seint þar sem skírnin verður búin þá en það hlýtur nú að vera í lagi, since you can't make it and all.. :D

Monday, August 25, 2008

Komin heim:)

Jæja, þá er maður komin heim eftir yndislega (yet stressful) ferð til Englands. Sé alls ekki eftir að hafa farið. Þetta var mikil upplifun.

Undir það síðasta var ég komin á að flytja bara þangað. En við erum ekki með vinnu þarna né íbúð þannig að myndi bara vera vesen.

Back home again then.. sounds a wee bit boring.. but nah, skólinn að byrja hjá Óla og svona. Bara gaman:)

Sunday, August 17, 2008

Gæsun!!

Phaha!!

Gæsunin hennar Siggúar heppnaðist einstaklega vel og bara gaman að sumt fór ekki alveg samkvæmt áætlun. Það eru svona hlutir sem gera daginn ógleymanlegan:)

Ég vona að Siggú sé sátt við okkur eftir daginn. Það sem mér finnst eftirminnilegast er þegar greyið Siggú stóð dansandi í pínupilsi í Hreyfingu með bundið fyrir augun og með músík í hæsta í eyrunum, ekki hafandi hugmynd um hvar hún var, öskrandi:

"Er ég í Kringlunni!!??"

"Þetta er mjög óþægilegt!!?? Má ég sitjast??!!"

Og svo batt Máni, uppáhalds þolfimikennarinn hennar, frá augunum hennar og man, hvað hún var hissa:)

pha!

Good times.

Tuesday, August 12, 2008

Plebbi

Hvurs lags PLEBBI gleymir afmælisdegi móður sinnar?

That would be me:/

Fyrirgefðu elsku mamma. Ég elska þig og innilega til hamingju með afmælið.

Ég næ vonandi að bæta þér þetta upp í náinni framtíð..

Austfirðir 2008

Jæja, þá er maður búinn að jafna sig eftir svaðilförina til Egilsstaða. Eða svona hér um bil..

Við vorum í yndælis bústað á Einarsstöðum, rétt hjá Egilsstöðum. Ég fékk bústaðinn á um 17.000 kall hjá starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, sem er nú bara ágætt:)

Þar sem við vorum með ÞRJÚ börn með okkur dugaði ekkert annað en Toyota Land Cruser jeppi undir liðið. Nýjasta gerð að mér skilst. Mér leið eins og drottningu í þessum bíl, tja, eða allaveganna prinsessu.. Við fengum jeppann að láni sem bjargaði ferðalaginu alveg því það dugar nú ekkert minna undir allt þetta lið.

Við urðum auðvitað að gista á leiðinni (báðar leiðir) þar sem þetta er svo svakalega löng leið að keyra, en mikið afskaplega er fallegt á Norðurlandi og Austfjörðum! Ég hafði aldrei komið þarna áður og mikið er ég fegin að ég fór:)

Við gistum fyrstu nóttina á Mývatni (crazy beautiful) og skoðuðum Dimmuborgir eftir það:











































Óli varð fyrir því óláni að detta og meiða sig í Dimmuborgum svo Svanur varð að halda á bæði honum og Emilíu.. Hetjan mín..

Á milli þess sem við vorum að chilla í bústaðnum fórum við að skoða:















Atlavík í Hallormsstaðaskógi,
















Skriðuklaustur,
















Dettifoss,




















Ásbyrgi,

Kárahnjúka, Dalatanga, Neskaupsstað, Seyðisfjörð, Mjóafjörð og eflaust eitthvað meira sem ég man ekki í svipinn. Fallegast af öllu fannst mér Ásbyrgi. Staðurinn er himnaríki! OMG. Þar er séns að finna frið og ró (eftir að maður er búinn að slátra öllum túristunum..)

Allaveganna, læt hér við sitja af photobloggi mínu af Austfjarðaferðinni.

Lifið heil

Saturday, August 9, 2008

I'm back..

Já, komin heim frá Austfjörðum! Wow, what a trip.. Er voða þreytt núna, vorum bara að koma.. Set inn myndir á næstu dögum...