Tuesday, August 12, 2008

Austfirðir 2008

Jæja, þá er maður búinn að jafna sig eftir svaðilförina til Egilsstaða. Eða svona hér um bil..

Við vorum í yndælis bústað á Einarsstöðum, rétt hjá Egilsstöðum. Ég fékk bústaðinn á um 17.000 kall hjá starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, sem er nú bara ágætt:)

Þar sem við vorum með ÞRJÚ börn með okkur dugaði ekkert annað en Toyota Land Cruser jeppi undir liðið. Nýjasta gerð að mér skilst. Mér leið eins og drottningu í þessum bíl, tja, eða allaveganna prinsessu.. Við fengum jeppann að láni sem bjargaði ferðalaginu alveg því það dugar nú ekkert minna undir allt þetta lið.

Við urðum auðvitað að gista á leiðinni (báðar leiðir) þar sem þetta er svo svakalega löng leið að keyra, en mikið afskaplega er fallegt á Norðurlandi og Austfjörðum! Ég hafði aldrei komið þarna áður og mikið er ég fegin að ég fór:)

Við gistum fyrstu nóttina á Mývatni (crazy beautiful) og skoðuðum Dimmuborgir eftir það:











































Óli varð fyrir því óláni að detta og meiða sig í Dimmuborgum svo Svanur varð að halda á bæði honum og Emilíu.. Hetjan mín..

Á milli þess sem við vorum að chilla í bústaðnum fórum við að skoða:















Atlavík í Hallormsstaðaskógi,
















Skriðuklaustur,
















Dettifoss,




















Ásbyrgi,

Kárahnjúka, Dalatanga, Neskaupsstað, Seyðisfjörð, Mjóafjörð og eflaust eitthvað meira sem ég man ekki í svipinn. Fallegast af öllu fannst mér Ásbyrgi. Staðurinn er himnaríki! OMG. Þar er séns að finna frið og ró (eftir að maður er búinn að slátra öllum túristunum..)

Allaveganna, læt hér við sitja af photobloggi mínu af Austfjarðaferðinni.

Lifið heil

No comments: