Thursday, April 30, 2009

Af hverju er mér í nöp við Framsóknarflokkinn?

Af því að þeir hafa látið mig missa trúna á lýðræði á Íslandi.

Hvernig gat það gerst í lýðveldisríkinu Íslandi að flokkur sem hafði u.þ.b. 5-7% fylgi allra landsmanna á bakvið sig komst í ríkisstjórn og klíndi tveim kolsvörtum blettum á sögu íslenska ríkisins?

Númer eitt: Stuðningurinn við stríðið í Írak (Halldór Ásgrímsson, þáverandi utanríkisráðherra). Skítur sem er óhreinsanlegur með öllu, svartur blettur á þjóðarsálinni.

Númer tvö: Einkavæðing bankanna (Valgerður Sverrisdóttir, þáverandi viðskiptaráðherra). Mind numbingly stupid. Olli kerfishruni.

Next up: skemmtileg ópólitísk færsla! :D

Wednesday, April 29, 2009

Æi..

Mikið væri gaman ef að vinstri menn gætu sameinast núna og bjargað málunum hérna á klakanum.

Það var hins vegar með því fyrsta sem ég lærði í stjórnmálafræðinni að vinstri stjórn hefur aldrei lifað heilt kjörtímabil hér á Fróni. Því fer nú verr og miður. Þær hafa alltaf sprungið vegna innri ágreinings.

Núna styð ég Samfylkinguna. Bæði af því að ég er jafnaðarmanneskja og vegna þess að ég Evrópusinni. Ég vildi óska að Vinstri grænir myndu hætta að vera svona neikvæðir og afturhaldssamir. Þetta virðast stundum bara vera nei-manneskjur upp til hópa.

Þetta er nú samt vara flokkurinn minn. Ég hef kosið hann hingað til.

Mér er í nöp við Framsókn og kem til með að skýra það nánar á morgun. Það var Framsóknarmaður að birtast í dyragættinni...

Tuesday, April 28, 2009

Why? Why?!!

Ohh. Var í Kringlunni og ákvað aldrei þessu vant að leita að e-u sem MIG vantar. Mig "vantar" nýtt veski og gallapils. Hætti mér inn í 17 og fann gallapils. Það voru til tvær gerðir. Önnur kostaði "fjórtánþússsund" og hitt var hideous (ekki mér að skapi). Uurrggh. Ég get ekkert verið að eyða "fjórtánþússsund" í gallapils!

Fór því næst í Topshop sem var nú bara fínt þar sem ég fann þrjá boli á fínu verði. En þar sem mig vantar veski ákvað ég að skoða veskjaúrvalið hjá þeim. Fann eitt veski sem ég gæti kannski einhvern tímann make peace with (það er rosalega erfitt að finna veskið "sitt") en nei, þá kostaði það 9.000 kall. Ái. Þaðan út og inn í Zara. Áleit að sú búð gæti hjálpað mér með vandamálið mitt (að finna veski). Nei. Öll veskin sem ég fann voru yfir 8.000 kall. Og öll gallapilsin í Topshop voru yfir 8.000 kall.

Why? Why?!

P.s. geri mér fullkomlega grein fyrir því að þetta er ekki alvöru vandamál. Just so people know. And FYI þá þoli ég ekki snobb. Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki í fari fólks þá er það snobb. Uurrggh.

Monday, April 27, 2009

Myrká

Jæja, nú er ég að klára Myrká eftir Arnald. Verð að segja að ég varð fyrir talsverðum vonbrigðum með þessa bók (á nú reyndar nokkrar blaðsíður eftir, kannski gerist eitthvað mergjað..).

Ástæðan er tvíþætt. Í fyrsta lagi er ég að lesa hana beint á eftir Karitas bókunum sem eru SNILLD, af einhverjum ástæðum held ég samt að karlmenn séu ekki sammála mér þar, enda eiga þeir erfitt með að skilja hvað konur eru með endæmum merkilegar.

Í öðru lagi fannst mér bara ekkert sérstaklega huggulegt að lesa um nauðgara sem notaði rohybnol nauðgunarlyfið til að koma vilja sínum fram við konur. Mér fannst það bara frekar sorglegt og viðbjóðslegt og ógeðslegt.

En, eins og ég segi, eitthvað gæti nú gerst á síðustu blaðsíðunum sem kemur mér til að skipta um skoðun, veit ekki alveg. Svo verð ég nú að segja að þó mér finnist frábært að þarna sé Elínborg í aðalhlutverki þá sakna ég nú Erlends..

Skrifað tveim dögum síðar: Bíddu, bíddu, eitthvað er nú að gerast í bókinni. A sudden twist. Hlutirnir ekki alveg eins einfaldir og þeir litu út fyrir að vera í fyrstu.. Núna á ég aðeins nokkrar blaðsíður eftir..

Skrifað þremur dögum síðar: Jú, jú. Meistaraverk. En það kom nú samt ekki í ljós fyrr en alveg í endann. Arnaldur klikkar ekki. Maður bíður næstu bókar sem hlýtur nú að snúast eitthvað um hann Erlend..

Saturday, April 25, 2009

AAaahh yes!

Loksins fattaði ég hvað ég þurfti.

Skundaði (keyrði) í World class í morgun og keypti mér mánaðarkort. Fékk sterkt hugboð um að núna væri kominn tími til að hreyfa sig. Fór í æðislegan eróbikk tíma og svitnaði ógó mikið. Svvvvooooo gott. Akkúrat og algjörlega það sem ég þurfti. Maður bara verður að fá útrás með hreyfingu stundum.. ;)

Feel absolutely ecstatic.

Monday, April 20, 2009

Ugliest jeans I've ever seen


I'm sorry Mischa. It's not you, its the pants!

(jikes..)

Tuesday, April 14, 2009

Karlar og tölvur

Am extremely concerned for the wellbeing of young men in this day of age.

Hvað er það með karlmenn og tölvur og tölvuleiki? Þeir virðast vera helteknir af þessu! Í vinahópi sonar míns (sem er 7 ára) er um fátt annað rætt en tölvuleiki. Fór á skólalóðina áðan og varð vitni að samræðum sem snerumst um hvernig kallar eru drepnir í tölvuleik og á hvaða borði þeir væru staddir í e-m tölvuleik.

Why? Why?!

Ekki eru eldri karlmennirnir betri. Kallinn minn er rooosalega mikið í tölvunni. Bara að skoða alls konar hluti. Ok, sumt sniðugt en...

mér finnst þetta bara ekkert allt of sniðugt:/

Wednesday, April 8, 2009

Halló, ég heiti Stefán Máni Svansson...

og ég er dúlla.




















Núna er ég kominn með nokkrar tennur og frekjuskarð! Klæjar mikið í gómnum:/ dáldið erfitt stundum út af því sko..




















Tíhí, hérna er ég búinn að rústa öllu skipulagi á skóm í forstofunni, aahhh




















híhíhí, hérna er ég á ganginum og búinn að taka hreinan þvott niður af þvottagrindinni;) mamma þooolir ekki þegar ég geri þetta! Hún er svo mikill sucker, nær mér aldrei..




















og hérna er ég í baði, ég er algert æði:)

Tuesday, April 7, 2009

Elsku Jóhanna

Ég sendi hér með hlýja strauma til Jóhönnu Sigurðardóttur og vona innilega að hún losni við að fá æxli (af stressi?) eins og forverar hennar. Ég vona að fólkið í kringum hana sjái til þess að hún fái nægan svefn og að hún ofgeri sér ekki. Já, eða bara að hún passi það sjálf..

Vona að hún fari vel með sig og hafi nógu þykkan skráp til að þola að vera í þessu mikilvæga embætti sem hún er nú í. Ég vona að það sé henni ekki um megn að vera líka formaður Samfylkingarinnar.

Power to you woman, you go girl

Mitt atkvæði fer til Samfylkingarinnar í ár. Am pro European Union.

Ég elska nudd

Er svo heppin að fá nudd á sérstaklega góðum kjörum hjá ný útskrifuðum nuddara:)

Unnar var í sérstöku stuði í gær og ég fékk æææðislegt nudd með Nick Cave á fóninum. Ég hafði akkúrat fengið vöðvabólgu í axlirnar fyrr um daginn svo það var einstaklega heppilegt að eiga pantaðan nuddtíma. Unnar sá meira að segja ástæðu til að nota kínverska bólgueyðandi olíu svo mikil var vöðvabólgan og ég naut aldeilis góðs af því.

takk Unnar!

Friday, April 3, 2009

Ja hérna

Fyrrverandi yfirmaður minn á Tryggingastofnun er orðinn yfirmaður Fjármálaeftirlitsins!

Ekkert nema gott um það að segja. Til hamingju Gunnar Andersen og í guðanna bænum komdu hlutunum í lag í þessari stofnun.