Tuesday, April 7, 2009

Ég elska nudd

Er svo heppin að fá nudd á sérstaklega góðum kjörum hjá ný útskrifuðum nuddara:)

Unnar var í sérstöku stuði í gær og ég fékk æææðislegt nudd með Nick Cave á fóninum. Ég hafði akkúrat fengið vöðvabólgu í axlirnar fyrr um daginn svo það var einstaklega heppilegt að eiga pantaðan nuddtíma. Unnar sá meira að segja ástæðu til að nota kínverska bólgueyðandi olíu svo mikil var vöðvabólgan og ég naut aldeilis góðs af því.

takk Unnar!

No comments: