Wednesday, September 30, 2009

AAaahh yes!

Fékk nákvæmlega það sem ég þurfti síðustu helgi.

Ferð út á land þar sem ég komst í nána snertingu við íslenska náttúru og hreint loft ... á hestbaki!! Það er nú bara orðið dáldið síðan að ég hef fundið svona djúpa ánægjutilfinningu enda er ég farin að halda að svoleiðis upplifi maður ekki í menguðu borgarloftinu.

Við fórum norður á Ljótunnarstaði til tengdó í smölun. Það var bara aldeilis fínt að eltast við þessar rollur út í íslenskri víðáttunni. Ég tala nú ekki um þegar ég komst óvænt á hestbak, ég sem hef aðeins gert svoleiðis tvisvar áður!

Síðan var bara Svavan í banastuði á hestbakinu með Þurý (systir hans Svans) að reka kindur yfir ár og firnindi í hríð og kulda, shi.. hvað þetta var gaman:) Svo átti ég að reka kindurnar meðfram sjónum nema hvað að ég er í svo miklu stuði að ég fer bara jíííha! langt framúr öllum hinum sem voru að smala (það átti sko ekki að gerast)..

Anyways, svo gistum við á í Tangarhúsinu á Borðeyri og þetta var bara allt yndislegt:)

Monday, September 14, 2009

Haustlitirnir

Elska haustlitina. Það er ótrúlegt hvað þessir haustlitir geta komið vel út í gróðrinum hérna í borginni. Heilu runnarnir eru bara orðnir að listaverkum:)

love it

Wednesday, September 9, 2009

Aarg!

Mér líður eins og ég búi í bavíanalýðveldi.

Fréttir um kynferðislegt ofbeldi á börnum í stofnunum þessa lands er eins og að kasta olíu á eld vaxandi vantrúar minnar á íslenska ríkið og eftirlitsstofnanir. AAaaarrgghh! Does "eftirlit" mean squat to you people??!! Kræst.

Það var sannarlega sárt fyrir íslensku þjóðina að frétta af þeim hörmungum sem áttu sér stað á vistheimilinu í Breiðuvík fyrir rúmri hálfri öld síðan, en að frétta í ofanálag af kynferðislegu og andlegu ofbeldi á heyrnarlausum börnum í Heyrnaleysingjaskólanum og á vistheimilunum Kumbaravogi og Bjargi er bara fáránlegt. Ég er hreinlega búin að missa trúna á íslenska ríkið og mér líður eins og ég búi í bavíanalýðveldi.

Ég er eiginlega reiðari yfir þessu heldur en eftirlitsleysi stjórnvalda yfir fjármálakerfi landsins í aðdraganda hrunsins. Í tilfelli vistheimilanna er um saklaus börn að ræða sem koma til með að bera ör á sálinni fyrir lífstíð vegna þess að þeim var komið í hendur á hálfvitum af íslenska ríkinu. Var ekki nógu mikið lagt á þessi börn að vera heyrnarlaus? Það hefur komið fram að allaveganna einn heyrnarlaus drengur framdi sjálfsmorð í kjölfar þessa atburða.

Í kjölfar Breiðavíkursmálsins kom í ljós að flestir af "Breiðavíkurdrengjunum" gekk afar illa að fóta sig í lífinu eftir vistina á Breiðuvíkurheimilinu og eru rónar og eyðilagðir menn í dag.

Eftirlit - eftirlit - eftirlit. It's not just a word. It actually has a meaning and needs to be enforced efficiantly. EFFICIANTLY!!

Djöfull er ég orðin þreytt á þessu landi.

Nei annars, það er ekki rétt. Ég er frekar þreytt á aðstæðunum hérna.

Sunday, September 6, 2009

Ljósanótt Reykjanesbæ

Skelltum okkur á Ljósanótt í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Mikið ofboðslega sé ég ekki eftir því:)

Við fórum beint í bátinn til ma+pa og grilluðum með þeim (eða réttara sagt pabbi grillaði), síðan röltum við um hátíðina og sáum (aðallega heyrðum) ýmis tónlistaratriði þ.á.m. Eirík Hauksson, Bo og Jóhann G. Æ, ég skammast mín ekkert fyrir að hafa sungið og dillað mér með;) Ég var bara að fíla mig með the oldies, já já. Svo tók Erna Hrönn tvö lög, mikið ofboðslega er hún góð söngkona! Það var svo mikil Rúnar Júl stemmning, gaman að heyra öll þessi gömlu og góðu lög, já, svo var bara gaman að vera með ma+pa á tónleikum, alveg hreint indælt.

Já, og svo var flugeldasýningin ekkert smá flott! Bara dúndurgott show,

takk fyrir okkur!

Friday, September 4, 2009

Ready, willing and able

er í krísu.

Ég er svo tilbúin til að fara vinna. Strákarnir eru báðir núna komnir með vistun allan daginn (Óli fer eftir hádegi á frístundaheimili og Máni er hjá dagmömmu) en ég er ENNÞÁ atvinnuleitandi.

God, this is so harsh:/

Ég er byrjuð að fara í viðtöl sem er nú ágætt. Þangað til fannst mér eins og umsóknirnar mínar hyrfu bara inn í eitthvert svarthol þar sem ég heyrði aldrei blíb.. Fór í eitt viðtal í Háskóla Íslands. Þar sóttu víst 38 um stöðuna og ég veit núna að ég fékk hana ekki. Ég fór í viðtal í gær og svo er bara að vona, og biðja..

fingers crossed!

Later!