
Við fórum beint í bátinn til ma+pa og grilluðum með þeim (eða réttara sagt pabbi grillaði), síðan röltum við um hátíðina og sáum (aðallega heyrðum) ýmis tónlistaratriði þ.á.m. Eirík Hauksson, Bo og Jóhann G. Æ, ég skammast mín ekkert fyrir að hafa sungið og dillað mér með;) Ég var bara að fíla mig með the oldies, já já. Svo tók Erna Hrönn tvö lög, mikið ofboðslega er hún góð söngkona! Það var svo mikil Rúnar Júl stemmning, gaman að heyra öll þessi gömlu og góðu lög, já, svo var bara gaman að vera með ma+pa á tónleikum, alveg hreint indælt.
Já, og svo var flugeldasýningin ekkert smá flott! Bara dúndurgott show,
takk fyrir okkur!
No comments:
Post a Comment