Tuesday, February 14, 2012

Það kvelur ei auga sem ei kemur í það

Þennan málshátt fékk ég í dag.

Hvað (í andsk.) þýðir þetta?

Af hverju segir fólk bara ekki það sem það meinar? Mér finnst þetta líka um flest ljóð. Stundum fara ljóð alveg í taugarnar á mér. Af hverju að fela í orðum það sem manni liggur á hjarta? Af hverju ekki bara að segja það sem maður vill segja?

Ef maður felur það sem manni liggur svona mikið á hjarta í fullt af fínum orðum þá misskilur fólk það bara!

Eins og t.d. þessi málsháttur. Er verið að tala um augnlinsur eða, eða HVAÐ?

Mig rennur í grun að hér sé ekki verið að tala um augnlinsur þar sem orðið "ei" er aftur úr fornöld en hvað merkir þetta eiginlega? Ást? Ha?

Confused.

Svana mín

Alveg elska ég þegar fólk út í bæ kallar mig Svöluna sína eða Svönuna sína.

Alveg. Elska.

Not.

Thursday, February 9, 2012

Mad men













Er búin að horfa á síðasta þáttinn (í bili?) af Mad men og er bara miður mín.

Ég hef ekki hugmynd um af hverju ég sakna Don Draper svona mikið. Veit ekki af hverju ég heillast af týpunni. Það er óskiljanlegt með öllu.

Af hverju laðast konur að drullusokkum?

En það er eitthvað við þáttinn og tíðarandann sem er svo heillandi. Fötin, konurnar og háttarlag þeirra. Mér finnst reyndar viðbjóðslegt hvað er reykt mikið alls staðar alltaf. Svo drekkur hann mikið og heldur fram hjá hægri og vinstri þessi Don.

Af hverju, AF HVERJU er ég þá að sakna hans?

Æ, hann á bara svo bágt eitthvað.

Friday, February 3, 2012

old men driving

Alveg getur gamalt fólk farið í taugarnar á mér.

Um daginn þá lagði ég bílnum á bílastæði og var eitthvað að dunda mér í kyrrstæðnum bílnum þegar gamall kall á jeppa leggur alveg við hliðina á mér (það var sko alveg fullt af öðrum bílastæðum) og þegar hann opnar hurðina þá skellir hann henni frekjulega (að mér fannst) beint í hliðina á mínum bíl.

Hann hefur líklegast ekki séð neitt eða heyrt neitt eða neitt hann var svo gamall. Svo labbaði hann ellilega inn á tannlæknastofu þar sem mót fyrir góma eru tekin.

Svo þoli ég ekki þegar gamalt fólk er svo "út á þekju" að það ýtir helvítis bónuskörfunni á mann í biðröðinni við kassann á Bónus. Ég set út á þekju í gæsalappir því ég veit ekki hvort þetta fólk sé að gera þetta viljandi (out of spite) eða óviljandi (sem ég efa.)