Ósjálfrátt verð ég spennt þegar áramótaskaupið er á dagskrá eða Söngvakeppnin (undankeppnin fyrir Eurovision.) En þvílík vonbrigði með bæði núna. Ég veit ekki hvað málið er. Hvar er gleðin? Hvar er dúndrið?
Mér fannst undankeppnin fyrir Eurovision hérna heima einkennast af andlausum, óspennandi, daufum og slöppum lögum. Frá þessu eru ein eða tvær undantekningar en þrátt fyrir flotta og spennandi söngvara kom ekkert dúndur, ekkert spennandi lag. Dálítil vonbrigði. Við komumst allavegana ekki áfram í ár, það virðist gefið.
Vita lagahöfundarnir ekki að fólk vill kraftmikla gleði og dúndur en ekki dofna og sorglega ástarsöngva?
Allavegana, það eru þrír eða fjórir vonargeislar og þeir komust áfram en það er ekkert dúndur í ár.
Vil varla tala um áramótaskaupið. Fatta ekki hvað á að vera skemmtilegt við einelti. Af hverju að taka einstaklinga fyrir og gera grín að þeim langt út fyrir öll mörk og móðga heilu þjóðfélagshópana (núna fatlað fólk.) Fíla ekki svona húmor og bara næ honum ekki.
En ég verð límd við skjáinn næsta laugardagskvöld að fylgjast með úrslitunum í forkeppninni fyrir Eurovision. Að sjálfsögðu á það sama við um næsta áramótaskaup líka.
Maður er alltaf jafn spenntur og vonar alltaf það besta.
Monday, January 28, 2013
Friday, January 25, 2013
Borða, biðja, elska
Æðisleg bók. Stelpubók. Langar að kaupa hana til að eiga.
Ég naut þessarar bókar fram í fingurgóma, hverrar blaðsíðu. Hugleiðslukaflinn höfðaði sérstaklega vel til mín þar sem ég hef nú tekið þá iðju upp.
Mæli með henni við allar stelpur, ég meina konur.
:)
Ég naut þessarar bókar fram í fingurgóma, hverrar blaðsíðu. Hugleiðslukaflinn höfðaði sérstaklega vel til mín þar sem ég hef nú tekið þá iðju upp.
Mæli með henni við allar stelpur, ég meina konur.
:)
Monday, January 14, 2013
stemningin í fjölmiðlum
Mér finnst stemningin í íslenskum fjölmiðlum svo undarleg núna.
Eftir hátíð ljóss og friðar, verslunaræðis og almennrar gleði færist drunginn yfir þjóðina með ítarlegri umræðu og umfjöllun um barnaníðinga, nauðganir, hópnauðganir, kynferðisafbrotamenn og barnagirnd. Og þetta í janúar sem getur nú verið ansi dimmur og drungalegur.
Undarleg stemning.

Sunday, January 6, 2013
Kelly Taylor
af hverju fæddist ég ekki með fallega ljóst hár eins og Kelly Taylor? Af hverju gat ég ekki fæðst sem Kelly Taylor?
Ein ringluð.
Ein ringluð.
Saturday, January 5, 2013
Mecca spa
mér hefur oft liðið eins og ég hafi verið egypsk prinsessa í fyrra lífi. Aldrei meir samt eins og í dag þegar ég fór í Mecca spa í boði kærastans. Leið eins og ég væri loksins komin heim.
Þarna var stjanað við mig. Fór í handsnyrtingu og fótsnyrtingu og líður svo vel í puttunum og tásunum að ég man ekki eftir annarri eins tilfinningu.
Bliss.
Þarna var stjanað við mig. Fór í handsnyrtingu og fótsnyrtingu og líður svo vel í puttunum og tásunum að ég man ekki eftir annarri eins tilfinningu.
Bliss.
Subscribe to:
Posts (Atom)