Tuesday, March 31, 2015

31/3 2015

Skítsæmilegur dagur.

Mikið fallegur dagur reyndar. En ég er þreytt þennan dag. Átti eitthvað erfitt með að sofna í gærkvöldi/nótt og hugsaði sterklega til sterka kaffisins á hárgreiðslustofunni sem var líklegast ekki svo góð hugmynd eftir allt þó að var ferlega notalegt á meðan á honum varði...

Monday, March 30, 2015

30/3 2015

Skellti mér í permanett í dag.

Fékk alveg nóg af hárinu mínu í morgun með þessum afleiðingum og núna er svona líka rosalega stæk lykt af hárinu. Liggur við að ég þurfi að fara út á svalir að viðra það, ég er bara alveg undirlögð af þessari lykt. Svona vond góð lykt..

29/3 2015

alveg þokkalegur sunnudagur.

Einn af þessum dögum sem ég leggst í hýði og rétt fer út úr húsinu til að fara í yoga:)

Saturday, March 28, 2015

28/3 2015

Fór hingað í morgun í alveg dásamlegan yogatíma hjá honum Tómasi. Ji, hann er svo mikið æði og tíminn var bara MMMMmmmm gersemi. Alveg.

Svo kemur hann stundum með svona gullmola þegar maður er kannski í erfiðari stöðu og segir eitthvað eins og "við erum hvort annað."

Elska. Elska þessa tíma.

27/3 2015

Erfiður dagur.

Mér leið illa af því að ég fékk ekki svefninn minn kvöldið áður af því að Guðrún Halla bara var ekki á þeim buxunum að fara sofa og orgaði og orgaði og hélt fyrir mér vöku.

Ofboðslega þreytt þennan dag. Gos virkaði ekki einu sinni en það nær oft að bjarga mér þegar ég svona rosalega þreytt. Bara var ekki að meika tilvist mína þennan dag. Gat ekkert gert heima til að láta mér líða betur. Bara beið og beið í algerri vanlíðan þangað til nóttin kom og ég gat farið að sofa í guðs friði.

#aldreifleiribörn #terribletwo's #fml

Thursday, March 26, 2015

26/3 2015

Góður dagur.

Mér líður vel með fólkinu sem ég vinn með. Það hefur allt með starfsánægju mína að gera. Og það að ég komst í sund um kl. 14:30 í dag. Get bara ekki sett verðmiða á svoleiðis lúxus. Ég meina, þá eru svo fáir í sundi!

#happygolucky

25/3 2015

Ég ætla nú ekkert að vera væla en

#vælogsjálfsvorkunn #omgomgomg #hleypégaldreiaftur? #edaferízumba?

Búhú :(

Tuesday, March 24, 2015

24/3 2015

Dómsdagur.

Kírópraktorinn benti alvarlegur á röntgenmyndina sem var í raunstærð og þá sérstaklega á hryggskekkjuna sem er orsakavaldurinn að því að taugar klemmast með þeim afleiðingum að ég finn sársauka.

Viðurkenni að ég fékk nett sjokk. Þetta er ekki hægt að laga og ég verð með þessa hryggskekkju það sem eftir er.

Hann hnykkti mig og mér varð óglatt eftir á. Hélt það myndi líða yfir mig þegar ég var að skipta um föt eftir tímann en það gerðist nú reyndar ekki. Núna þarf ég að koma þrisvar í viku fyrst um sinn og svo fækkar skiptunum.

Shit.

23/3 2015

Ekkert spes dagur.

Þjáning og sterkar verkjatöflur. Talið niður í fyrstu meðferðina hjá kírópraktor.

Monday, March 23, 2015

22/3 2015

Brutal decluttering day.

Þennan dag fór Svanur með öll börnin (guði sé lof) út á land þar sem það var fimleikamót á Selfossi hjá Emilíu Sól.

Mamman fór í hot yoga sem var einstaklega gott og átti svo daginn ein heima. Æði. Tók mig til og henti fullt af drasli. Djöfull var það gott.

#minnadrasl #declutter #morespace #mamahappy

Saturday, March 21, 2015

21/3 2015

Þessi hérna gerði mig næstum því alveg vitlausa í dag. Terrible two's on full blast. Full.

Jú, hún er algert rassgat en omg, ég þarf frí frá henni. Frí. Bara í einn dag eða eitthvað skiljiði.

#nomorebabiesneverever #fml

yes:)

Merkilegur dagur fyrir þær sakir að ég tók mikilvæga og afar góða ákvörðun. Að sleppa takinu á ákveðnum aðstæðum og setja fókusinn annað, á sjálfa mig. Ætla ekkert að fara nánar út í þessa sálma en þetta er mjög góð ákvörðun. Mjög.

#letgo

Thursday, March 19, 2015

19/3 2015

omfg.

Fór í göngutúr í gær og núna er ég bara verkjuð. Hjálpi mér allir heilagir. Íbúfen og sjálfsvorkunn.

Ef kírópraktorinn getur ekki bjargað mér á þriðjudaginn, hvað þá?

Wednesday, March 18, 2015

18/3 2015

Kæra dagbók.

Í dag fékk ég mér of mikið kaffi í vinnunni. Byrjaði mjög vel og fékk mér bara einn bolla. Komst öll í stuð og það var mikið fjör í vinnunni, allt í gangi. Missti mig og fékk mér annan, vitandi hvað áhrif þessir sterku kaffibollar í vinnunni hafa á mig. Svo náttúrlega byrja ég bara að svitna og axlirnar að stífna og svo framvegis...

Þannig að núna ætla ég bara að fá mér einn bolla. Ekki meir! Svo verð ég bara í te-inu,

lofa:)

Tuesday, March 17, 2015

17/3 2015

Þreytt, þreyttari, þreyttust.

Úff, núna vill Guðrún Halla ekki fara að sofa á kvöldin og er með massa vesen. Skjótið mig, einhver.

16/3 2015

Ekkert sérstakur dagur.

Fór reyndar á Kírópraktorstöðina sem ég er rosalega ánægð með þar sem nú er von um bata. Fór í myndatöku og alls konar rannsóknir og svo á meðferð að hefjast eftir viku.

Gott mál.

15/3 2015

Hmmm... góður dagur.

Fór í hot yoga og barnaafmæli. Mættum reyndar dáldið seint í barnaafmælið bara svona af því að ég er ég og við erum við. Var með dáldinn móral yfir því.


Saturday, March 14, 2015

14/3 2015

Hinn fullkomni dagur.

Ji, hvað ég er alltaf skemmtileg. Hinn fullkomni dagur hjá mér er að vakna úthvíld, lesa smá með kaffi upp í rúmi. Kela smá. Fara svo í sund. Ein. Fara svo heim og liggja í leti. Lesa smá meira. Smá meira kaffi. Taka til. Skrifa bréf. Dúlla mér. Horfa á sjónvarpið. Fara upp í rúm með tölvuna og í rúminu er hitateppið í gangi og ég get stillt í hvaða stellingu rúmið er (núna sit ég) og fara svo að sofa.

Ji, elska þetta. Elska.

13/3 2015

Alveg var ég búin að gleyma hvað Eddie Murphy er magnaður. Í föstudagsletinni eftir vinnu leigði ég á Vodinu (takk Svanur) Beverly Hills Cop og bara vá, hvað það var rétt valið hjá mér. Love it!

Var svo búin að gleyma hvað hann er svalur dúddi. Held að hann hljóti að vera svalasti leikari ever. Allavegana, mér finnst hann æði.


MMMMMmmmmmm...

Thursday, March 12, 2015

12/3 2015

Skítsæmilegur dagur en ekkert meira en það.

Ætla nú ekkert að vera væla en vaknaði verkjuð og þurfti að taka verkjatöflu. Rófubeinið aftur að stríða mér, það er aumt og viðkvæmt:/

Allavegana, það sem gerðist fallegt í dag er að ég uppgötvaði að Guðrún Halla ELSKAR Sveppa. Hann er með einhverja barnaþætti á stöð 2 sem virka þannig að hann kemur fyrst með innslag og kynningu og svo byrjar einhver svona barnateiknimynd eins og Svampur Sveinsson eða Latibær eða eitthvað nema hvað að Guðrún Halla hefur engan áhuga á því og við eigum bara að spóla yfir það í tímaflakkinu þangað til Sveppi byrjar aftur:) Þetta er ekkert smá sætt, sérstaklega af því hún segir eitthvað eins og Happi! af því hún getur ekki alveg sagt Sveppi ennþá;)

Dætt. Svo dætt.

Wednesday, March 11, 2015

11/3 2015

jújú, ágætis dagur.

Alltaf fjör í vinnunni. Æsti mig á fundi. Stend með mér.

Ákvað hvað ég ætlaði að gera við óskaskrínið sem Svanur gaf mér í jólagjöf (dekur.) Valið stóð á milli klippingar og hárþvottar, 30 mín nudds eða 60 mín andlitsmeðferðar. Hafði ekki svo mikinn áhuga á hinu sem var í boði.

Ákvað svo í morgun að það væri kominn tími á að gera eitthvað fyrir hárið svo ég pantaði klippinguna í Sjoppunni og það var laust í dag. Þetta var bara ágætis dekur:)

Núna er ég að horfa á Greys anatomy:)

Tuesday, March 10, 2015

10/3 2015

Fínn dagur þangað til brjálaður stormur kom!

En ég lifði þetta af og jú, ætli maður geti ekki sagt að þetta sé dáldið hressandi bara:) Fór í sund um kl. 14:30 í Kópavogslaug og ji minn eini hvað það var mikil snilld! Ég var næstum ein í búningsklefanum og ein í sundi og ein í heita pottinum með brjálæðislega góðu nuddinu.

Omg. Þetta var ÆÐI.

Fór fyrst í nuddið í heita pottinum í storminum. Hljóp svo berfætt í sundbolnum í innilaugina að synda og svo aftur út í storminn í pottinn og svo aftur í innilaugina. Þetta var bara MMmmmm.. svo gott:)

Vaknaði í morgun og er bara verkjuð. Finn til í spjaldhryggnum og svæðinu þar. Núna er ég aftur búin að panta tíma hjá kírópraktor svo ég er að fara á mánudaginn í myndatöku skilst mér..

9/3 2015

Ágætis dagur.

Hápunkturinn var þegar Ásdís vinkona kom með mörg kíló af barnafötum fyrir Guðrúnu Höllu sem dóttir hennar er vaxin upp úr. Svo fékk hún líka tvo sæta litla stóla:)

Sunday, March 8, 2015

8/3 2015

Fínn dagur.

Afmælispartý fyrir Guðrúnu Höllu, fínasta kaffiboð. Stelpan fékk föt og gjafir og Svanur þreif klósettið rosalega vel. Allir ánægðir:)

Saturday, March 7, 2015

7/3 2015

Omg. Vagninn er seldur!!

Blendnar tilfinningar í gangi. Ég hélt ég yrði svo fegin að losna við hann því þar með er ég einu skrefi nær frelsinu. Verð aldrei, ALDREI, aftur með barn í barnavagni.

En.. ég verð þá aldrei aftur með barn í barnavagni... Og finn aldrei lyktina af ungabarni sem er mitt aftur.

Í guðanna bænum Svava, hættu þessu. Þú ert einu stóru skrefi nær frelsinu fjandinn hafi það!

:) Skil nýbakaðar mæður vel en þegar maður er búin að vera 13 ár með barn undir 5 ára aldri þá er nóg komið.

Nóg.

6/3 2015

Ég held áfram að hlusta á gömlu geisladiskana mína í bílnum þar sem ég er mikið á ferðinni í vinnunni. Núna er ég búin að vera heillengi með Bubbleflies "á fóninum." Er með lag 1-5 á repeat í þvílíku stuði.

Þetta var bara nokkuð gott band þó þeir hafi verið í ruglinu..

"The world is still alive. The world is still alive!" :)

Thursday, March 5, 2015

5/3 2015

aldeilis fínn vinnudagur með góðum vinnufélögum. Vantar aldrei fjörið á þessum vinnustað:)

Keyrði um frussandi rappi út úr mínum miðaldra munni og ruglaðist oft. Gamla setti Eminem á fóninn í bílnum og hækkaði volumið. Stuð á kellu.


4/3 2015

Elsku ljósið okkar 2ja ára í dag. Ji, hvað ég er heppin með hana. Hún er algert æði. Þvílíkur gullmoli:)


Tuesday, March 3, 2015

3/3 2015

Ágætis vinnudagur. Alltaf eitthvað óvænt sem kemur upp á í þessari vinnu en það er nú bara gaman.

Er að verða betri í göngulaginu. Fór í sundlaugina góðu út á Seltjarnarnesi og var með sólheimaglottið af vellíðan í heita pottinum með bubblunum. Elska svona kraftmikla nuddpotta:) Fannst einstaklega gaman af því að það var maður við hliðina á mér með svipað sólheimaglott og ég hlýt að hafa verið með. Þetta er bara svo gott. Hann var meira svona kjurr á meðan ég var alltaf að breyta um stellingar svo að nuddið næði sem best yfir hægri mjaðmagrindina.

Eru ekki allir sexy? :)

Monday, March 2, 2015

2/3 2015

Vinni vinni vinni vinn...


Sunday, March 1, 2015

1/3 2015

Hefðbundinn sunnudagur.

Fór í sundlaugina á Seltjarnarnesi og synti smá og var í pottinum. Þessi pottur gerði mjög góða hluti fyrir mjaðmagrindina mína þar sem hann var með nuddi í ggrrrr..... Það er ennþá mikið að gera í vinnunni svo ég verð að vinna og undirbúa morgundaginn..

Heimilisstörf og Ísland got talent. Búa til hráköku...

28/2 2015

Frekar góður dagur.

Var að vinna um morguninn en fór svo í skírn hjá Siggú og Hjörvari. Skírnin var haldin í Gullsmára 7 þar sem amma mín heitin átti heima. Hún er tiltölulega ný farin svo það var dáldið ljúfsárt og undarlegt að labba þarna inn. Hún birtist mér/ég sá hana fyrir mér labbandi út eins og hún gerði í þau fjölmörgu skipti sem ég sótti hana þangað....

Allavegana, gaman að hitta Sólrúnu og Tinnu Sól hennar (4ra ára held ég að hún sé, næstum viss) og nýja barnið fékk nafnið Hrafnkatla Hjörvarsdóttir. Það er mikið að gera á stóru heimili og nú hafa Siggú og Hjörvar þrjú börn undir fimm ára aldri.

Allavegana, líður aðeins betur í skrokknum en er samt ekki alveg 100% ennþá. Verð að fara varlega...