Saturday, February 27, 2016

I.love.this.country.

Finnst það eitthvað svo æðislegt við litla góða Ísland að iðullega á fólk nafnið sitt eitt. Enga alnafna. Tja, allavegana ekki samkvæmt ja.is. Stórkostlegt.

Er núna að fara í gegnum fjölskyldumeðlimi á ja.is af því að ég er að gera boðskortin fyrir ferminguna og þetta á við um næstum alla. Sætt.

Patrick J. Adams (leikari frá USA) skrifaði um þetta um áramótin á Instragram þegar hann var staddur hér á landi. Hann tók eftir því á gamlárskvöld að í kringum kl. 22:30 hættu allir að skjóta upp og fóru inn að horfa á sama þáttinn (áramótaskaupið.) Það var bara enginn á götunum og lítil sem engin umferð. Honum fannst þetta svo frábært og skrifaði þetta eða eitthvað á þessa leið: "I.love.this.country."

Sætt.

Þroskasaga konu, framhald

skrýtið hvernig maður finnur sjálfan sig þroskast.

Núna er að koma að ferðalaginu stóra og ég er að ákveða í hverju ég ætla að vera á þessu langa ferðalagi.. hef aldrei farið í svona langt ferðalag. Vá. Er að fara alla leið til Indónesíu...

Allavegana, hippabóheminn tekst á við þroskann. Ok, ég er ekki unglingur lengur og það á kannski ekki við að fara í þröngum of litlum gallajakka og dáldið sjúskaðri lopapeysu við...

Æ, nei. Þarf að fara fá mér aðeins fágaðri föt...

Fágaðri Svava. Heyriru það? Fágaðri!

;)

Saturday, February 20, 2016

Vendipunkturinn

Hér er ég nýbökuð móðir með frumburðinum.

Mikil blessun sem þetta barn hefur fært mér. Alger vendipunktur í mínu lífi síðan ég "átti" hann (maður á jú ekki börnin sín..) Allt hefur verið á uppleið síðan janúar 2002. Ákvað í fæðingarorlofinu að fara í háskólanám og góðir hlutir fóru að gerast.

Gaman að finna gamlar myndir.

I am stronger than yesterday

Mikið ofboðslega er ég ánægð. Hemoglubinið komið upp í 128!

Ég er komin inn á skalann og back in the game!

You go girl.

Takk ég sjálf. Takk. :)

Wednesday, February 17, 2016

Ég er ástfangin...

... af bók.

Elskuleg móðir mín kom með þessa yndislegu bók Britt-Marie var hér.

Ég er kolfallin fyrir bæði bókinni og aðalsöguhetjunni henni Britt-Marie. Þessi bók á mína óskipta athygli þangað til yfir líkur.

Það er bara þannig.

p.s. internetið er með stæla og vill ekki leyfa mér að setja mynd af bókinni inn en þetta er sem sagt eftir sama höfund og gerði bókina Maður sem heitir Ove og ég geri ráð fyrir að sé sænskur.


Monday, February 15, 2016

Quiz up

Elska þetta app svo mikið að þetta er komið inn í daglegu rútínuna mína. Sem favorites hef ég general knowledge, country's of Europe og name the celebrity.

Það gefur mér ekkert smá mikið að vinna í þessum leikjum. Eins verð ég pirruð ef ég tapa. Vann tiltölulega fljótt í gærkvöldi, hvort það hafi bara verið í fyrsta leik, þá varð ég rosa stolt af sjálfri mér. Er með svona persónulegt markmið að vinna einn quiz up á dag. Það er hluti af daglegu rútínunni.


Saturday, February 13, 2016

Við erum alveg ágæt

Var að finna þessa mynd frá því í sumar á Tenerife. Good times:)

Fann líka þessa

oh hvað þetta var nice!


Sunday, February 7, 2016

Helgin

Ji hvað ég elska þessa helgi sem er að líða. Svo góð helgi. MMmmmm..

Þessi helgi var bara alveg eins og ég vil hafa helgar. Ekkert á dagskránni, ekkert stúss, ekkert stress. Í gærmorgun, laugardag, fór ég í Zumba á Hlíðarenda. Love it, love it, love it! Svo góð leið til að byrja helgina:) Frænkurnar voru í þetta skipti svo það var gaman að hitta þær. Maður fer í svo góðan fíling að dansa svona. Svo eru þau bara með óvenju góð lög og dansa. Maður fær þetta alveg á heilann.

Svaf líka svo vel báðar næturnar, einmitt af því að það var nákvæmlega ekkert í gangi. Fór svo núna áðan í Sólir, yogastöðina út á Granda, í Asthanga I-II í HEITUM sal. Það var rosalegt. Ekki þurr þráður á mér eftir tímann. En það er eins með þetta. Manni líður svo rosalega vel eftir á:) En þetta var nú þokkalega erfitt á meðan get ég sagt ykkur!

Þá var ég að klára 10 tíma klippikortið mitt þar. Á ekki lengur klippikort þar... Á einn tíma eftir í Zumbanu, einn í World Class en alveg svona 8 eða eitthvað í Yogashala... Já, konan þarf sína hreyfingu, hvað er þetta?

Allavegana, er svo þakklát fyrir yndislega og rólega helgi þar sem slökun var í fyrirrúmi. Æði. Algert æði.


Saturday, February 6, 2016

Ferming. Omg.

Sælar. Sælir.

Mikið er mér létt. Það er að komast mynd á þessa blessuðu fermingu sem er jú um margt leiti dáldið sérstök. Óli viðurkennir fúslega að hann sé ekkert sérstaklega trúaður en sé að fermast fyrir gjafirnar. Það er eitthvað svo satt og rangt. Bæði á sama tíma.

Fyrst fékk ég ekki sent heim skráningarblaðið þar sem maður tiltekur daginn sem maður kýs að barnið fermist. Þetta átti að vera alveg svona; að ég myndi fá blaðið sent heim, svo átti ég að fylla það út með undirskrift minni og Óla og skila.

Fékk aldrei þetta blað í pósti og fór því í kirkjuna og gekk í málið. Dagsetning komin. Fínt.

Svo var heilmikið mál hvort að við Egill og Kittý myndum halda veisluna saman eða ekki. Fyrst æltuðum við að halda tvær, svo eina, en þá var vandamál að finna svona stóran sal...

Það var sem sagt að koma í ljós í dag, 6. febrúar að þetta verða tvær veislur. Þau fá hann beint eftir athöfnina í hádegismatsveislu en svo ég í kaffi- og kökuveislu. Eða þá að ég gæti haldið veisluna á laugardeginum eða eitthvað.

Núna er ég sem sagt ekki með sal. En ef ég býð bara fáum þá fæ ég kannski að halda veisluna á ættaróðalinu út á Álftanesi... Ef mér á einhvern undraverðan hátt get reddað sal þá gæti ég boðið fleirum..

Verð að viðurkenna að mig langar samt eiginlega mest til að halda þetta á ættaróðalinu. Það myndi kannski minnka flækjustigið...

Mamma, elsku mamma...