Saturday, February 6, 2016

Ferming. Omg.

Sælar. Sælir.

Mikið er mér létt. Það er að komast mynd á þessa blessuðu fermingu sem er jú um margt leiti dáldið sérstök. Óli viðurkennir fúslega að hann sé ekkert sérstaklega trúaður en sé að fermast fyrir gjafirnar. Það er eitthvað svo satt og rangt. Bæði á sama tíma.

Fyrst fékk ég ekki sent heim skráningarblaðið þar sem maður tiltekur daginn sem maður kýs að barnið fermist. Þetta átti að vera alveg svona; að ég myndi fá blaðið sent heim, svo átti ég að fylla það út með undirskrift minni og Óla og skila.

Fékk aldrei þetta blað í pósti og fór því í kirkjuna og gekk í málið. Dagsetning komin. Fínt.

Svo var heilmikið mál hvort að við Egill og Kittý myndum halda veisluna saman eða ekki. Fyrst æltuðum við að halda tvær, svo eina, en þá var vandamál að finna svona stóran sal...

Það var sem sagt að koma í ljós í dag, 6. febrúar að þetta verða tvær veislur. Þau fá hann beint eftir athöfnina í hádegismatsveislu en svo ég í kaffi- og kökuveislu. Eða þá að ég gæti haldið veisluna á laugardeginum eða eitthvað.

Núna er ég sem sagt ekki með sal. En ef ég býð bara fáum þá fæ ég kannski að halda veisluna á ættaróðalinu út á Álftanesi... Ef mér á einhvern undraverðan hátt get reddað sal þá gæti ég boðið fleirum..

Verð að viðurkenna að mig langar samt eiginlega mest til að halda þetta á ættaróðalinu. Það myndi kannski minnka flækjustigið...

Mamma, elsku mamma...

No comments: