Jebb.
Prufaði þetta í dag.
Vá! Ég er ekki frá því að það hafi réttst duglega úr bakinu mínu og nokkrar hrukkur horfið sökum mjög aukins blóðflæðis til höfuðsins um stund.
Er mjög hrifin af þessu. Það er svo gott finnst mér núna að fara út fyrir hringinn sem maður er alltaf í. Prufa að hreyfa sig öðruvísi, gera öðruvísi yoga og svona. Labbaði sem sagt niður í bæ í 101 yoga á Njálsgötunni. Sultuslök á eftir en var dáldið svona skrýtin í höfðinu í smá stund eftir á eftir að hafa hangið svona á hvolfi.
Ætla að halda þessu eitthvað aðeins áfram:)
Namaste.
Monday, November 28, 2016
Monday, November 21, 2016
24 tímar án þess að kvarta
Ég las þetta í morgun á snappinu hjá einni. Svona ágæt áskorun inn í daginn. Þetta leit út fyrir að vera mjög auðveld áskorun. Mjög.
Svona jákvæð manneskja eins og ég? Að kvarta ekkert í 24 tíma? Ekki málið.
Ég féll kl. 13:15 sirka.
En þá er bara að hisja upp um sig brækurnar og reyna meira og aftur.
:)

Wednesday, November 16, 2016
Takk elsku mamma (hjarta)
Í gær var ég svo heppin að Guðrún Halla fór til ömmu sinnar eftir leikskólann. Þó ég sé nú ekki að gera mikið þessa dagana þá er samt gott að fá smá frí frá frökeninni. Skellti mér í zumba partý og naut þess að vera ekki heima hjá mér á þessum "úlfatíma" sem er á milli kl. 16 og 20 eins og mömmur þekkja.
Fyndið hvernig það er allt öðruvísi en að vera úti að deginum til.
Allavegana, takk mamma. Tilbreyting er æði.
Svo líka var ég búin að missa af laugardagszumba tvo laugardaga í röð og var komin með fráhvörf. Þurfti bara aðeins að hrista rassinn. Og gott var það:)

Monday, November 14, 2016
Lán í óláni
Það sem maður er stundum heppinn í óheppninni.
Í dag átti ég fund varðandi framtíð mína. Fundurinn var kl. 11 og eins og oft áður var ég að drífa mig út þegar ég var að leggja af stað. Næ í hjólið niðrí geymslu og bruna af stað. Þegar ég er komin á staðinn fatta ég að ég er rennandi blaut í klofinu:/ Útvortis!!
Óli minn sem sagt sem notar hjólið mitt lika hafði gleymt því úti í eina eða tvær nætur og svo setti ég það niðrí geymslu í gær. Sá bara ekki að hnakkurinn var gegnblautur. Var síður að spá í því í morgun.
Allavegana. Þetta var það mikil bleyta að ég hefði ekki meikað fundinn svona. Sem betur fer var viðmælandinn veikur! Eða hafði hringt sig inn veika. Ég er ekkert að vona að manneskjan sé veik en þið vitið...
Ég gat því brunað aftur heim. Ætlaði að koma við í VÍS og ná í húfur á krakkana en nei. Þetta var neyðartilfelli!
Ji, hef sjaldan drifið mig eins mikið upp stigana hérna í Stigahlíðinni og þegar ég kom heim.
Úff! Blautt!

Wednesday, November 2, 2016
Gildin mín
Það sem ég var að gera hjá Markþjálfanum, henni Ástu, var að komast nær því sem ég vil gera í lífinu. Það skiptir mig miklu máli að vinna við það sem mig langar til að vinna við, að andrúmsloftið í vinnunni sé afslappað og alveg streitulaust.
Ég fékk það erfiða verkefni að raða niður gildunum mínum. Ég fékk fullt af gildum. Ætli þau hafi kannski verið um 50? Eitthvað þannig. Svo fékk ég það heimaverkefni að flokka þessi gildi í Mjög mikilvæg, Mikilvæg og Ekki mikilvæg eða eitthvað svoleiðis. Í tímanum í gær vorum við að vinna með Mjög mikilvægustu gildin, ég átti að minnka niður í 10 og svo 5. Það var erfitt.
Allavegana, hér er útkoman
Pha! Þetta sést ekki vel.
Allavegana, þau eru:
Heimsfriður, innri friður, heilbrigði, hreysti, sjálfstraust, náin tengsl, fjölskylda, ást, húmor og gaman.
Ég er sem sagt hippi og er búin að ákveða að læra að vera nuddari. Ég er búin að fara námskeið í heilun/reiki og mér finnst þetta rosalega áhugavert. Ég hef áhyggjur af öllu þessu fólki sem er að glíma við streitu og vesen. Mig langar ekki að vera eitt af þessu fólki lengur svo ég ætla að hlúa að mér og hlúa svo að öðrum.

Tuesday, November 1, 2016
yes suree Bob!
Er að ennþá að koma niður af það sem ég held að sé kallað "Runners high."
Ég fór í morgun í síðasta tímann til markþjálfarans sem er góð kona sem býr í Rauðalæk. Það er búið að vera mjög gott að tala við hana og hún hefur hjálpað mér við að komast nær því sem ég vill í rauninni gera og vinna við. Dásamlegt í rauninni:)
Hjá henni unnum við meðal annars með lífsgildin hvað er mikilvægt fyrir mig og svona en það er efni í annan pistil. Það sem ég gerði eftir að ég var hjá henni er það sem mig langar til að blogga um núna. Ég sem sagt ákvað að skokka heim en Svanur skutlaði mér þangað í morgun.
Rauðalækur er nálægt sjónum svo ég skokkaði meðfram sjónum (æði!) niður í bæ, framhjá Hörpu og stjórnarráðinu og svo heim. Mikið ofboðslega var þetta gott!!
MMMMMmmmmm daaaa.
Er ennþá að læra almennilega á forritið Runkeeper en sem sagt opnaði það og ýtti á eitthvað og röddin byrjaði að tala þannig að ég hélt að ég hefði ýtt á "go" takkann en svo var það víst ekki. Svo ég veit ekki hvað þetta var langt! En allt í lagi. Ég bara veit að ég get hlaupið 10k með Tryggva bróður mínum á gamlársdag! :)

Subscribe to:
Posts (Atom)