Í gær var ég svo heppin að Guðrún Halla fór til ömmu sinnar eftir leikskólann. Þó ég sé nú ekki að gera mikið þessa dagana þá er samt gott að fá smá frí frá frökeninni. Skellti mér í zumba partý og naut þess að vera ekki heima hjá mér á þessum "úlfatíma" sem er á milli kl. 16 og 20 eins og mömmur þekkja.
Fyndið hvernig það er allt öðruvísi en að vera úti að deginum til.
Allavegana, takk mamma. Tilbreyting er æði.
Svo líka var ég búin að missa af laugardagszumba tvo laugardaga í röð og var komin með fráhvörf. Þurfti bara aðeins að hrista rassinn. Og gott var það:)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment